Stingum af úr myrkri Íslands á miðjum vetri í exótík og dásemd við miðbauginn þar sem veðrið er hlýtt og sólin trygg. Höldum á vit ævintýra Taílands þar sem framandleikinn er samt svo blíður og þægilegur. Hér eru léttar og ljúfar en þó innihaldsríkar lúxusreisur um strandbæinn Hua Hin og höfuðborgina Bangkok
    7 til 10 dagar í vellystingum í Hua Hin og 2-3 dagar í einni ævintýralegustu borg heims
    Þægilegt flug sem færir ykkur 7 tímabelti austar yfir álfur og höf á meginland Suð-Austur Asíu. Flogið með Icelandair og Emirates flugfélaginu á tryggan máta á einum flugmiða sem gefur kost á innritun alla leið frá Keflavík til Bangkok – og til baka
    Sæki dagsetningar...

    Verð og dagsetningar

    Sæki verð...
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, morgunmatur, allur akstur á milli flugvalla og gististaða einsog tilgreint er í ferðalýsingunni, kynningarferð um Hua Hin og Bangkok við komu á staðina, og þjónusta erlendra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, "late/early check-in/out" - snemm-innritun eða síð-útskráning af hótelum, eða þjórfé, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan.

    Ferðalýsing

    Gistingar í boði

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Flug með Icelandair og Emirates
    • Dagskrá geti breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna eða góðra ástæðna/hugmynda.
    • Almennir skilmálar Ferðaskrifstofu Íslands ehf / Úrval Útsýn gilda
    • Gætið tímanlega að bólusetningum, gildistíma vegabréfs og ferðatryggingum