Halldór E. Laxness
fararstjóri
    Úrval Útsýn er með einstaka ferð fyrir Úrvalsfólk til Parísar 11.–15. september. París er alltaf sögð mest heillandi í maí og september. Borgin er þekkt fyrir glæsilega byggingarlist, sögulegar minjar og lifandi menningarlíf. Þar má finna heimsfræg kennileiti eins og Eiffelturninn, Louvre-safnið og Notre-Dame dómkirkjuna. Göturnar eru iðulega breiðar og fallegar, með kaffihúsum, bakaríum og litlum verslunum á hverju horni sem skapa notalega og afslappaða stemningu.

    Halldór E. Laxness hefur áratuga reynslu af fararstjórn og muna eflaust margir eftir honum frá Lignano og Sikiley á Ítalíu, en einnig sælkeraferðum hans um Frakkland, Grikkland og Ítalíu. Hann hefur ferðast mikið og átt erindi í flestar heimsálfur, sem dæmi má nefna að hann stundaði nám í leiklist á Ítalíu og í Bandarríkjunum og starfaði á Spáni, Frakklandi, Íslandi og Kanada sem leikari og leikstjóri. Núna kennir hann m.a. leikaranemum Listaháskóla Íslands um gríska leikhúsið og sögu forngrikkja.

    Verð frá 309.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 11. – 15. sept.

    Verð og dagsetningar

    11. – 15. sept.  5 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    619.800 kr.
    Verð frá 309.900 kr.
    per farþega
    11. – 15. sept.  5 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    399.900 kr.
    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, Flug: Beint flug með Icelandair til og frá París, 4 stjörnu hótel í miðbænum með morgunverði, Íslensk fararstjórn (Halldór Laxness) sem tekur á móti hópnum og er til staðar alla ferðina, Akstur: Rúta til og frá flugvelli í París, sem og akstur í skipulagðar skoðunarferðir samkvæmt dagskrá, Skoðunarferðir Borgarskoðun með rútu um helstu kennileiti ásamt leiðsögn um Latínuhverfið og Montmartre, og Máltíðir Morgunverður alla morgna ásamt hádegisverði í Montmartre og þriggja rétta kvöldverði á Signubökkum siðan er siglt á signu.
    Ekki innifalið í verði: Aðrar máltíðir eins og hádegis- og kvöldverðir sem ekki eru sérstaklega tilgreindir í dagskrá, Aukadrykkir með mat fyrir utan það sem fylgir kvöldverðarsiglingunni, Aðgangseyrir í söfn eða upp í Eiffelturninn nema annað sé tekið fram, Persónuleg eyðsla í verslunum eða á kaffihúsum á frjálsum tíma, eða Ferðatryggingar en mælt er með að hver og einn sjái um sínar eigin tryggingar.

    Ferðalýsing

    PARÍS

    Úrvalsfólk til Parísar

    París er einnig miðstöð lista, tísku og matarmenningar. Borgin hefur í gegnum aldirnar laðað til sín listamenn, rithöfunda og hugsuði og er enn í dag mikilvægur vettvangur skapandi greina. Frönsk matargerð nýtur mikillar virðingar og hægt er að njóta alls frá einföldum croissant og kaffi á götuhorni til fínna máltíða á Michelin-veitingastöðum. Andrúmsloftið í París er einstakt – þar blandast saga og nútími á eðlilegan hátt. Hvort sem gengið er meðfram ánni, setið á kaffihúsi eða söfn og garðar skoðaðir, þá upplifa flestir að borgin hafi ákveðna rómantíska og menningarlega dýpt sem erfitt er að finna annars staðar.

    Þessi ferð til Parísar er sniðin að þægindum, góðu skipulagi og notalegri upplifun. Brottför er 11. september með beinu flugi Icelandair; farið er í loftið klukkan 07:35 og lent í París klukkan 13:00. Við komu tekur íslenskur fararstjóri á móti hópnum og sér um að allt gangi smurt fyrir sig. Gist verður á góðu, 4 stjörnu hóteli í miðbænum með þægilegum aðbúnaði.

    Á meðan dvölinni stendur verður farið í vel skipulagðar skoðunarferðir þar sem helstu perlur borgarinnar eru heimsóttar. Meðal annars verður farið að sjá hinn fræga Eiffelturn þar sem gefst kostur á að njóta útsýnis yfir borgina. Einnig verður ekið um helstu breiðgötur borgarinnar, þar á meðal Champs-Élysées, og komið við hjá hinum sögufræga Sigurboga.

    Menning og saga fá sitt pláss og verður farið að Notre-Dame dómkirkjunni. Þá verður notalegur kvöldverður á Signubökkum og síðan siglt á ánni, þar sem borgin blasir við frá öðru sjónarhorni.

    Dagskráin er hóflega þétt, með góðum tíma til hvíldar, kaffihúsaheimsókna og eigin uppgötvana. Fararstjórinn er Halldór Laxness sem býr í Frakklandi; hann verður ávallt til staðar og aðstoðar þá sem þess þurfa.

    Dagskrá

    Dagur 1, föstudagur, 11. september 2026 — Koman til ljósanna borgar

    Flogið er með Icelandair; farið í loftið klukkan 07:35 og lent í París klukkan 13:00. Fararstjóri tekur á móti hópnum við komu og rúta keyrir hópinn upp á hótel. Frjáls dagur og kvöld.

        Dagur 2, laugardagur, 12. september 2026 — Helstu kennileiti og Latínuhverfið

        Eftir morgunverð á hótelinu erum við sótt klukkan 09:00 og förum í skoðunarferð um borgina. Við sjáum allt það helsta, meðal annars Sigurbogann, Eiffelturninn, Champs-Élysées og Notre-Dame (sem búið er að endurbyggja eftir brunann). Klukkan 13:00 fær hópurinn frjálsan tíma til að ganga með fararstjóra um Latínuhverfið til klukkan 16:30, þegar hópurinn er keyrður aftur upp á hótel. Kvöldið er frjálst.

            Dagur 3, sunnudagur, 13. september 2026 — Listamannalíf í Montmartre

            Eftir morgunverð á hótelinu verðum við sótt klukkan 10:00 og keyrum í Montmartre-hverfið. Þar göngum við um með leiðsögn og sjáum meðal annars hina frægu Sacré-Cœur kirkju. Við borðum síðan saman hádegisverð á staðbundnum frönskum veitingastað sem er í hjarta listamannahverfisins. Rútan keyrir okkur síðan á hótelið klukkan 15:00. Restin af deginum og kvöldið er frjálst.

                Dagur 4, mánudagur, 14. september 2026 — Signubakkar og töfrar á vatni

                Eftir morgunverð á hótelinu er frjáls dagur til að njóta fram til klukkan 17:15, en þá verðum við sótt og keyrð niður að Signubökkum í kvöldverðarsiglingu. Í siglingunni sjáum við París frá öðru sjónarhorni og njótum þriggja rétta kvöldverðar ásamt einu vínglasi, bjór eða gosi sem er innifalið. Eftir siglinguna komum við í land um klukkan 21:30 og bíður þá rúta okkar til að keyra okkur upp á hótel.

                    Dagur 5, þriðjudagur, 15. september 2026 — Kveðjustund og heimferð

                    Eftir morgunverð er tími til að pakka niður og hafa sig til því rútan sækir okkur klukkan 12:15 og keyrir okkur á flugvöllinn þar sem við fljúgum heim með Icelandair. Brottför er 17:15 frá París og lenda sælir ferðalangar heima á Íslandi klukkan 18:45.

                        Gistingar í boði

                        Athugið

                        • Staðfestingargjald er 65.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                        • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                        • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.