Helga Thorberg
fararstjóri
    Gaman saman í vorsólinni á Benidorm. Komdu með í skemmtilega hópferð þar sem við ætlum að njóta alls þess besta sem Benidorm svæðið hefur upp á að bjóða. Sjórinn heitur að busla í, gönguferðir undir pálmatrjám, morgunleikfimi eftir getu hvers og eins.

    Helga er menntuð leikkona og garðyrkjufræðingur. Hún hefur starfað við leiklist sem höfundur og þáttagerðakona og hefur langa reynslu sem fararstjóri um allan heim. Hún hefur einnig búið víðsvegar um heiminn og þar á meðal í Dóminíska lýðveldinu og hefur skrifað bók um dvöl sína þar.

    Verð frá 299.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 18. sept. – 2. okt.

    Verð og dagsetningar

    18. sept. – 2. okt.  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    599.800 kr.
    Verð frá 299.900 kr.
    per farþega
    18. sept. – 2. okt.  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    359.900 kr.
    Verð frá 359.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 14 nætur á Primavera Park 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, aðgangur að heilsu- & líkamsrækt, og sérsniðin dagskrá fyrir hópinn.
    Ekki innifalið í verði: Skoðunarferðir.

    Ferðalýsing

    Komdu með í skemmtilega hópferð þar sem við ætlum að njóta alls þess besta sem Benidormsvæðið hefur upp á að bjóða. Septembersólin yljar okkur, sjórinn er enn dásamlega heitur, gönguferðir undir pálmatrjám, morgunleikfimi eftir getu hvers og eins, skoðunarferðir um fallega bæi í nágrenninu, líflegir markaðir, „happy hour“ með skemmtilegheitum, spænskunámskeið, minigolf og bragðgóðar matarupplifanir í frábærum félagsskap.

    Helga Thorberg heldur utan um hópinn og mun bjóða upp á léttar gönguferðir, æfingar og teygjur á ströndinni, pilates æfingar og skemmtun fyrir þá sem vilja, auk slökunar eins og henni einni er lagið. Þú getur verið viss um fjör, stemningu og hvatningu undir góðri fararstjórn Helgu.

    Hotel Primavera Park 4★

    Úrvalsfólk til Benidorm 60+

    Nútímalegur griðastaður í hjarta Benidorm

    Primavera Park er glæsilegt 4 stjörnu hótel sem sameinar nútímalega hönnun og fullkomna staðsetningu. Hótelið hefur nýlega verið endurnýjað í stílhreinum og björtum stíl sem skapar afslappað andrúmsloft, tilvalið fyrir þá sem vilja njóta alls þess besta sem Benidorm hefur upp á að bjóða.

    Aðeins 450 metra frá hinni líflegu Levante-strönd, býður hótelið upp á frábæra sundlaugaraðstöðu þar sem septembersólin fær að njóta sín til fulls. Herbergin eru rúmgóð og búin öllum helstu þægindum, þar á meðal svölum eða verönd sem eru fullkomnar til að slaka á eftir góðan dag.

    Á hótelinu er lögð áhersla á gæði og fjölbreytni, hvort sem þú vilt njóta góðra veitinga á hlaðborðinu, taka létta æfingu í ræktinni eða eiga notalega stund á sundlaugarbarnum í góðra vina hópi. Með veitingastaði og barir í næsta nágrenni er Primavera Park hinn fullkomni upphafspunktur fyrir ævintýri dagsins.

    Úrvalsfólk til Benidorm 60+

    Dagskrá

    Dagur 1, föstudagur, 18. september 2026

    Koma til Alicante
    Akstur á hótelið
    Innritun á hótelið

        Dagur 2, laugardagur, 19. september 2026

        kl. 07:30-10:00 Morgunverður
        kl. 11:00 – 12:00 Viðtalstími fararstjóra á Hótel Primavera Selection – kynning á dagskrá ferðarinnar
        kl. 12:00 – 14:00 Vettvangskönnun – göngutúr um nærsvæðið
        kl. 19:00 Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu

            Dagur 3, sunnudagur, 20. september 2026

            kl. 07:30-10:00 Morgunverður
            kl 10:30 Ferð á Old Town Benidorm markaðinn
            17:00 Happy Hour – Létt spænskukennsla, reynslusögur og samvera
            kl. 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                Dagur 4, mánudagur, 21. september 2026

                kl 07:30-10:00 Morgunverður
                kl 10:30-11:00 Létt hreyfing á hótelinu
                kl 14:00 Gengið eftir Levante ströndinni og buslað í fjörunni. Hressing við ströndina.
                kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                    Dagur 5, þriðjudagur, 22. september 2026

                    kl 07:30-10:00 Morgunverður
                    kl 10:30-11:00 Létt hreyfing á hótelinu
                    kl 17:00 Happy Hour – Létt spænskukennsla, reynslusögur og samvera.
                    kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                        Dagur 6, miðvikudagur, 23. september 2026

                        Frjáls dagur.

                        Dagur 7, fimmtudagur, 24. september 2026

                        kl 07:30-10:00 Morgunverður
                        kl 00:30-11:00 Létt hreyfing á hótelinu
                        kl 14:00 Skoðunarferð í gamla bæinn
                        kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                            Dagur 8, föstudagur, 25. september 2026

                            kl 07:30-10:00 Morgunverður
                            Skoðunarferð til Guadalest fjallaþorpsins- rútuferð með enskumælandi leiðsögumanni. Nánari upplýsingar hjá fararstjóra
                            kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                                Dagur 9, laugardagur, 26. september 2026

                                kl 07:30-10:00 Morgunverður
                                kl 13:00 Verslunarferð til La Marina verslunarmiðstöðvarinnar
                                Heimilisfang: Avinguda País Valencià, 2, 03509 Finestrat, Alicante, Spain
                                kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                                    Dagur 10, sunnudagur, 27. september 2026

                                    kl 07:30 – 10:00 Morgunverður
                                    kl. 13:00 Göngutúr á ströndina og hressing á strandbar.
                                    kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                                        Dagur 11, mánudagur, 28. september 2026

                                        kl 07:30 – 10:00 Morgunverður
                                        kl 10:00 – 16:00 Skoðunarferð til Altea
                                        kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                                            Dagur 12, þriðjudagur, 29. september 2026

                                            kl 07:30 – 10:00 Morgunverður
                                            kl 11:00 Ferð á “Loppumarkað”
                                            kl 19:00 Sameiginlegur kvöldverður

                                                Dagur 13, miðvikudagur, 30. september 2026

                                                Frjáls dagur.

                                                Dagur 14, fimmtudagur, 1. október 2026

                                                Frjáls dagur.

                                                Dagur 15, föstudagur, 2. október 2026

                                                HEIMFERÐARDAGUR – BROTTFÖR FRÁ HÓTELI VERÐUR TILKYNNT Í GÓÐAN TÍMA.

                                                ATH DAGSKRÁIN ER MEÐ FYRIRVARA UM AÐ GETA BREYST.

                                                    Gistingar í boði

                                                    Hinar vinsælu Heldri borgaraferðir (60+) á Gran Hotel Bali hafa svo sannarlega slegið í gegn. Þar njóta menn samvista við jafnaldra, vini og kunningja. Skemmtanastjóri skipuleggur fjölbreytta dagskrá við allra hæfi.

                                                    Gran Hotel Bali er glæsilegt hótel á Costa Blanca ströndinni. Hótelið er 4ra stjörnu og bíður upp á flest til að gera sumarleyfið að ómetanlegri upplifun. Hótelið skiptist í tvær byggingar, sem hvor um sig býður upp á stórbrotið útsýni. Það er staðsett í bænum Cala De Finestrat er í næsta nágrenni við Benidorm og í 10 mínútna göngufjarlægð frá einni af fallegustu ströndum svæðisins. Staðsetning hótelsins er mjög góð. Það býður upp á rólegt umhverfi til þess að fjölskyldur geti notið þess að vera saman, en er um leið í seilingarfjarlægð frá veitinga og kaffihúsum og iðandi mannlífi. Skemmtigarðurinn Terra Mitica er í allra næsta nágrenni og einnig verslunarmiðstöðin La Marina og Carrefour.

                                                    Gistingin

                                                    Herbergin eru með tveimur stórum rúmum, auk sófa sem nýtist vel sem viðbótar gisting fyrir börn eða unglinga. Öll tveggja manna herbergin eru með svölum sem snúa að strönd og jafnframt út að sundlaugargarðinum. Ath. einstaklingsherbergi geta verið án svala. Herbergin eru vel útbúin, öll herbergi eru með loftkælingu, sérhita, sjónvarpi, og öryggishólfi ( öryggishólf þarf að leigja hjá gestamóttöku ). Öllum herbergjum fylgir lítill minibar sem gestir okkar hafa til eigin nota hvort sem er til að kæla drykkjarföng eða annað sem henta þykir. Baðherbergin eru útbúin hárþurrku og öllum hreinlætisvörum sem tilheyra 4 stjörnu hóteli. Herbergin eru þrifin daglega, þannig að allir geta verið í fríi í fríinu sínu á Gran Hotel Bali. Það eru 14 lyftur í hótelinu, þar af tvær utanáliggjandi með ólýsanlegu útsýni. Loftkæling, með köldu lofti er virk frá miðjum júní fram í október eftir það er hægt að setja hita á.

                                                    Matur og drykkir

                                                    Á hótelinu eru tveir matsalir annar á sömu hæð og gestamóttakan og hinn á hæðinni fyrir neðan gestamóttöku. Farþegar sem eru með hálft fæði eru í morgunmat og kvöldmat en hægt er að skipta út köldverð og fara í hádegismat í staðinn. Hægt er að fá herbergisþjónustu allan sólarhringinn. Innifalið með kvöldverði er léttvín og vatn (Eingöngu í eldriborgaraferð). Frá og með 1. nóvember 2022 verður lokað í heilsulindinni á Hótel Balí og mun hún opna aftur í febrúar 2023. 

                                                    Afþreying

                                                    Í Heldriborgararaferðum Sumarferða er skemmtanastjóri með í för og  býður upp á fjölbreytt úrval af afþreyingu. Sem dæmi eru gönguferðir, leikfimi, félagsvist, bingó, kvöldvökur og menning. Farið er saman í ýmsar ferðir og út að borða. Hægt er að leigja handklæði til að nota í sundlaugargarðinum og á ströndinni. Hægt er að tengjast interneti á herbergjum gegn gjaldi sem greitt er hjá gestamóttökunni.

                                                    Okkar mat

                                                    Mjög góður valkostur, fín staðsetning og rólegt umhverfi. Stutt í verslunarmiðstöðina og í gamla bæinn á Benidorm þar sem allt iðar af mannlífi. Tilvalið fyrir pör eða hjón, hvort sem þau eru ein eða með eitt til tvö börn (ef tvö börn, þá eitt ungabarn). Morgunverður og kvöldverður innifalinn í verði, hægt að skipta kvöldverði í hádegismat ef gestir vilja. 

                                                     

                                                    Athugið

                                                    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                                                    • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.