Prag (tékkneska Praha) er höfuðborg Tékklands og jafnframt stærsta borg landsins. Íbúar eru um 1,3 milljónir, en um 2,6 milljónir búa á stórborgarsvæðinu (2019). Elstu hverfin, þar á meðal kastalinn í Prag, eru á heimsminjaskrá UNESCO. Prag er af mörgum talin ein fegursta borg Evrópu, en þangað streyma milljónir ferðamanna hvert ár.
Margrét er vön ferðalögum og hefur ferðast víða. Margrét hefur starfað um árabil sem hjúkrunarfræðingur og flugfreyja og eru ferðalög og heilsluefling m.a. hennar aðal áhugamál.
Verð og dagsetningar
Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?
Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is
Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, beint flug fram og til baka, morgunmatur, og akstur til og frá flugvelli.
Athugið
- Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.