Í Thailandi getur þú notið þín á hvítum ströndum og skoðað alls kyns áhugaverða staði, svo sem Buddha hof, farið í friðaðan fílagarð og borðað gómsætan mat.
KUALA LUMPUR
Í Kuala Lumpur mælum við með því að skoða Petronas turnana sem eru einkennandi fyrir staðinn, skoða hof, fara á markaði og í Batu hellana og skoða glæsilega styttu af Lord Murugan.
SINGAPORE
Í Singapore gefst tækifæri til að upplifa stórborgarstemninguna á nýjan hátt. Þar er meðal annars að finna Marina Bay Sands Hotel sem er 191 m há bygging með skipi á toppnum. Í Singapore eru einnig skemmtilega götumarkaði og góðan mat.
BALI
Bali er perla Indónesíu þar sem hægt er að slaka á á hvítum ströndum, snorkla í blátærum sjó, heimsækja frumskóga, skoða heilög hof, sörfa, stunda jóga og borða gómsætan mat. Bali er einn af okkar vinsælustu áfangastöðum.
CAIRNS
Á Cairns mælum við með því að leigja húsbíl og keyra niður eftir vesturströnd Ástralíu. Þar getur þú snorklað í kóralrifinu og notið þín á hvítum ströndum.
BRISBANE
Brisbane er æðislegur staður þar sem stórborg og strandlíf mætast. Þar er vinsælt að sörfa og því getur verið skemmtilegt að rifja upp taktana frá sörfinu á Bali. Þar eru öldur fyrir alla, byrjendur jafnt sem lengra komna.
SYDNEY
Sydney er skemmtileg stórborg sem fæstir vilja missa af, en þar er meðal annars að finna hið heimsfræga óperuhús sem vert er að skoða. Fyrir þá sem vilja gæti verið upplifun að fara á óperusýningu.
AUCKLAND
Auckland á Nýja Sjálandi er skemmtilegur staður og þar er mjög vinsælt að fara í fallhlífarstökk. Fyrir Lord of the rings og Hobbit aðdáendur er Hobbiton í aðeins 2 klst fjarlægð.
FIJI
Fiji er lokastaður þessarar mögnuðu reisu en þar er draumi líkast að vera. Þar gefst tækifæri til að læra að kafa, auk þess sem hægt er að snorkla eða jafnvel bara slaka á áður en haldið er heim.
Verð frá 371.771 kr á mann
Athugið
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.