Gist verður í 2 nætur á góðu 4* miðsvæðis í Feneyjum. Vikulöng sigling um Miðjarðarhafið sem hefst og endar í Feneyjum. Morgunverður er innifalinn alla daga á hótelinu og fullt fæði um borð í skipinu.
Halldór E. Laxness hefur áratuga reynslu af fararstjórn og muna eflaust margir eftir honum frá Lignano og Sikiley á Ítalíu, en einnig sælkeraferðum hans um Frakkland, Grikkland og Ítalíu. Hann hefur ferðast mikið og átt erindi í flestar heimsálfur, sem dæmi má nefna að hann stundaði nám í leiklist á Ítalíu og í Bandarríkjunum og starfaði á Spáni, Frakklandi, Íslandi og Kanada sem leikari og leikstjóri. Núna kennir hann m.a. leikaranemum Listaháskóla Íslands um gríska leikhúsið og sögu forngrikkja.
Verð og dagsetningar
Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?
Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is
Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, vikusigling um Miðjarðarhafið með Costa Cruise, hafnargjöld, þjónustugjöld um borð, og fullt fæði um borð í skipinu.
Ekki innifalið í verði:
Þjórfé og ferðamannaskattur í Feneyjum, drykkjarpakki um borð í siglingu en hægt er að kaupa hann aukalega, eða annað sem ekki er talið upp í lýsingu.
Athugið
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Ath: Innifalið í verðinu eru bæði early check in á fyrsta degi og late check out ásíðasta degi. Farþegar eiga því hótelherbergið til umráða allan tímann á meðan á dvölinni stendur.
- Hægt er að kaupa drykkjarpakka sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, gosi, bjór, víni og fleiru. Í drykkjarpakkanum er innifalið: VERGNANO teas and herbal teas, coffee and cappuccino, UNLIMITED SAN BENEDETTO 0.5 l water bottles, AN UNLIMITED selection of wines by the glass, Pepsi and 7UP soft drinks and LOOZA fruit juices, HEINEKEN, CORONA and BECK'S draught beers, APEROL SPRITZ and CRODINO aperitifs, as well as mocktails, Any cocktail available at the bar, as well as molecular cocktails, Bitter liqueurs and spirits such as AMARO DEL CAPO, AVERNA, DISARONNO, SAMBUCA, as well as a PREMIUM selection of spirits







