Gist verður í 3 nótt á góðu 4* hóteli miðsvæðis í Barcelona í upphafi og enda ferðarinnar. Vikulöng sigling um Miðjarðarhafið þar sem stoppað verður í Palermo, Róm, Paloma, Marseille og Savona. Morgunverður er innifalinn alla daga á hótelinu og fullt fæði um borð í siglingunni.
Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.
Verð og dagsetningar
Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?
Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is
Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, og vikusigling um Miðjarðarhafið með Costa Cruise með fullu fæði, hafnargjöld og þjónustugjöld um borð.
Ekki innifalið í verði:
Þjórfé og ferðamannaskattur í Barcelona, drykkjarpakki um borð en hægt er að kaupa hann aukalega, eða annað sem ekki er talið upp í lýsingu.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Hægt er að kaupa drykkjarpakka sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, gosi, bjór, víni og fleiru. Í drykkjarpakkanum er innifalið: VERGNANO teas and herbal teas, coffee and cappuccino, UNLIMITED SAN BENEDETTO 0.5 l water bottles, AN UNLIMITED selection of wines by the glass, Pepsi and 7UP soft drinks and LOOZA fruit juices, HEINEKEN, CORONA and BECK'S draught beers, APEROL SPRITZ and CRODINO aperitifs, as well as mocktails, Any cocktail available at the bar, as well as molecular cocktails, Bitter liqueurs and spirits such as AMARO DEL CAPO, AVERNA, DISARONNO, SAMBUCA, as well as a PREMIUM selection of spirits




