Kristjana Steingrímsdóttir
fararstjóri
    Ævintýraleg ferð um Miðjarðarhafið þar sem meðal annars verður stoppað á Frakklandi, Spáni, Ítalíu og Túnis.

    Verð frá 514.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 2. – 12. okt.

    Verð og dagsetningar

    2. – 12. okt.  11 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.029.800 kr.
    Verð frá 514.900 kr.
    per farþega
    2. – 12. okt.  11 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    702.900 kr.
    Verð frá 702.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á Hotel Villa Glori 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, hótelgisting í Róm með morgunverði, 7 nátta gisting um borð í Costa Cruise skemmtiferðaskipinu Smeralda, aðgangur að allri afþreyingu um borð, fullt fæði umborð í skipi, drykkjarpakki sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, bjór, víni og fleiru, og skattar og hafnargjöld.
    Ekki innifalið í verði: Máltíðir á veitingastöðum og börum sem sér rekstraraðilar reka um borð í skipinu, skoðunarferðir í landi á meðan á siglingu stendur, vatnsflöskur sem eru stærri en 0,5 l flöskurnar sem fylgja í drykkjarpakka, námskeið um borð, vín eða kampavín í flöskum (allt í glösum er innifalið), dýrari og fínni tegundir af koníaki, whisky og öðru virtu og dýru víni eru ekki innifaldar í drykkjarpakkanum. Drykkjarpakkinn gildir ekki á veitingastöðunum Archipelago og Steak House., þjórfé um borð, skoðunarferð um Vatíkanið 15.sept, eða borgarskattur í Róm (city tax) sem eru 6 eur á hvern farþega fyrir hverja hótelnótt.

    Ferðalýsing

    Komdu með í rómaða Miðjarðarhafssiglingu sem sameinar menningu, sögu, stórbrotna áfangastaði og þægilega dvöl um borð í glæsilegu skemmtiferðaskipinu Costa Pacifica. Skipið er sannkallaður heimur út af fyrir sig, þar sem fjölbreytt afþreying, veitingastaðir og notaleg stemning tryggja að engum leiðist á meðan siglingunni stendur.

    Ferðin hefst og lýkur í Róm, þar sem gist er bæði fyrir og eftir siglingu. Þar gefst kostur á að kynnast hinni fornu borg með skipulögðum skoðunarferðum, meðal annars um hina gömlu Róm og með heimsókn í Vatíkanið, auk þess sem frjáls tími er til að njóta borgarinnar á eigin forsendum.

    • 521 svalaskálar
    • 9 sundlaugar og heitir pottar til slökunar og afþreyingar
    • 6 veitingastaðir og snarlbarir með fjölbreyttri matargerð
    • 11 barir og setustofur þar sem hægt er að njóta drykkja og notalegrar stemningar

     

    Jana er vön ferðalögum og hefur ferðast víða. Jana hefur starfað um árabil sem hjúkrunarfræðingur og flugfreyja. Hennar helstu áhugamál eru ferðalög, menning og saka auk heilsueflingar, félagsstarfa og samvera með góðu fólki!

    Dagskrá

    Dagur 1, föstudagur, 2. október 2026 — Ferðadagur

    Flogið með Icelandair klukkan 07:50 og lent í Róm 14:35. Rúta nær í hópinn og keyrir á hótel.

        Dagur 2, laugardagur, 3. október 2026 — Gengið um borð

        Að morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. Rúta flytur hópinn frá hótelinu að Civitavecchia-höfn þar sem gengið verður um borð í hið glæsilega skip Costa Pacifica. Siglt verður af stað klukkan 18:30.

            Dagur 3, sunnudagur, 4. október 2026 — Savona

            Kl.08:30 verður lagt að höfn í Savona sem staðsett er í Liguria héraðinu á Ítalíu. Liguria héraðið er þekkt sem ítalska rívíeran vegna fjölmargra strandbæja sem þekja strandlengjuna beggja vegna við Genoa sem er höfuðborg héraðsins. Savona er sannur gimsteinn hvað varðar list, sögu og menningu en borgin hefur sannarlega upplifað tímana tvenna. Einn frægasti íbúi Savona var Kristófer Kólumbus en hægt er að skoða safn sem er í enduruppbyggingu af húsinu sem hann bjó í. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð hjá Costa Cruise en einnig er hægt að skoða borgina á eigin vegum.

                Dagur 4, mánudagur, 5. október 2026 — Marseille

                Komið er til Marseille kl. 08:00 að morgni og verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að skoða borgina á eigin vegum. Munið bara að vera komin tímanlega til baka um borð þegar skipið fer úr höfn kl.18.

                Marseille er elsta borg Frakklands, stofnuð af Grikkjum árið 600 f.Kr. Frábær staðsetning borgarinnar við Miðjarðarhafið hefur frá upphafi stofnunar hennar gert hana að vinsælum áningarstað og má þar sjá greinileg áhrif frá jafnvel mjög fjarlægum menningarheimum. Marseille, stundum kölluð “Napólí Frakklands”, er litrík og glaðleg borg en í henni er mikil matarmenning og margt áhugavert að sjá.

                    Dagur 5, þriðjudagur, 6. október 2026 — Lagt að höfn í Barcelona kl.08:00

                    Lagt að höfn í Barcelona kl.08:00. Hér er nóg að gera og því tilvalið að taka daginn snemma.

                    Í borginni er bæði Picasso safnið og nýstárlegt samtímalistasafnið Macba. Ennfremur eru margar litríkar og stórmerkilegar byggingar eftir Antoní Gaudí sem og dómkirkjan fræga Sagrada Familia sem enn er ekki búið að klára, en bygging hennar hófst árið 1882. Hvort heldur sem valið er að rölta um þröngar götur í Barrio Gothico, þræða tapasbari og rölta um Römbluna, versla í tískuverslunum eða kíkja á listasafn, þá er Barcelona borgin fyrir þetta allt saman og miklu meira! Eins og áður þá verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu.

                    Lagt úr höfn kl.18:30 stundvíslega.

                        Dagur 6, miðvikudagur, 7. október 2026 — Dásamlegur dagur á siglingu

                        Hér er hægt að njóta alls þess besta sem skipið hefur upp á að bjóða

                            Dagur 7, fimmtudagur, 8. október 2026 — La Goulette, Túnis

                            Kl.08:00 verður lagt að höfn í La Goulette (á arabísku: Halq al-Wādī) sem er lítil, lífleg hafnarborg í Túnis, rétt fyrir utan höfuðborgina Tunis. Hún hefur lengi gegnt mikilvægu hlutverki sem höfn og aðgangsstaður fyrir borgina, bæði frá hinu sögulega og menningarlega sjónarhorni. La Goulette hefur ríka sögu sem nær aftur til tímabils Ottómana og var einnig mikilvæg á nýlendutíma Frakka. Í borginni hefur verið fjölbreytt samfélag þar sem Múslimar, Gyðingar og Kristnir bjuggu í sátt og samlyndi. Þetta menningarsamspil endurspeglast í gömlu byggingunum, matargerðinni og hátíðum sem haldnar eru á staðnum. Bærinn er sérstaklega frægur fyrir sjávarrétti – þar má finna fjölmargar sjávarréttaveitingastaði með ferskum fiski og krabbadýrum beint frá höfninni. Promenadugatan meðfram ströndinni er vinsæl hjá bæði heimamönnum og ferðamönnum, þar sem fólk nýtur góðrar máltíðar og sólarlagsins yfir hafinu. Siglt af stað kl. 16:00.

                                Dagur 8, föstudagur, 9. október 2026 — Palermo

                                Komið er til Palermo kl.8:00 að morgni og er hægt að velja um fjölda skoðunarferða til kaups hjá Costa Cruise. Höfuðborg Sikileyjar hefur verið menningarlegur suðupottur síðan Fönikíumenn og Grikkir börðust um hana á 5. og 6.öld f.Kr. Sikiley, einu sinni rómversk, svo býsönsk, arabísk, normönsk og að lokum ítölsk, sameinaðist meginlandi Ítalíu loks árið 1861. Dásamlegir markaðir, fögur torg, aldagamlar kirkjur ásamt stórbrotinni sögu og menningu! Hér er margt að skoða og sjá. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borg hjá Costa Cruise eða kanna á eigin vegum.

                                    Dagur 9, laugardagur, 10. október 2026

                                    Komið verður að Civitavecchia höfninni í Róm kl.08:00 að morgni. Hópurinn yfirgefur skipið og rúta flytur okkur á 4 stjörnu hótel Frjáls tími það sem eftir er af deginum.

                                        Dagur 10, sunnudagur, 11. október 2026

                                        Frjáls dagur í Rómaborg. Valfrjáls skoðunarferð í Vatíkanið. Keypt aukalega í bókunarferli.

                                            Dagur 11, mánudagur, 12. október 2026

                                            Um hádegisbil sækir rúta hópinn og flytur út á flugvöll.

                                            Brottför kl.15:45 með Icelandair flugi FI563, lending í Keflavík kl.18:45 að staðartíma.

                                                Gistingar í boði

                                                Róm

                                                Höfuðborg Heimsins

                                                Róm

                                                Auðvelt er að komast milli staða gangandi og stutt í allt það helsta sem borgin hefur uppá að bjóða. Róm er hvað þekktust fyrir Rómartorgið, Kólósseum, Péturskirkjuna, Vatíkanið, Sixtínsku kapelluna sem státar af glæsilegum málverkum eftir Michelangelo og aðra listamenn, Navónutorg og Panþeon.

                                                Rome

                                                Ekki gleyma að kasta peningi í Trevi gosbrunninn – ef þú kastar mynt með hægri hendi yfir vinstri öxl, þá er það ‘loforð’ um að þú munir snúa aftur til borgarinnar. Á hverju kvöldi er peningunum safnað saman og gefið til góðgerðamála. 

                                                Verslun

                                                iStock 1202315350

                                                Að versla í Róm er einstakt og státa Ítalir sig af því að vera framalega í hönnun og tísku. Auðvelt er að versla vörur eftir heimsfræga hönnuði bæði í sérverslunum við Spænsku tröppurnar eða á flóamarkaðinum Porta Portese. Á aðalgötunni Via del Corso er hægt að finna fjölbreyttar verslanir, sem og á Via Cola di Rienzo. Þar eru svipaðar verslanir og á Via del Corso, en hún er vinsælli meðal heimamanna því þar eru færri ferðamenn á ferli. 

                                                Veitingastaðir

                                                Róm

                                                Mikið úrval veitingastaða er í Róm og því ætti enginn að verða svangur. Sunnan við Spænsku tröppurnar eru margir huggulegir veitingastaðir, sem og í litlum hliðargötum milli Via del Corso og torginu Piazza Navona. Flestir veitingastaðir bjóða upp á hefðbundna ítalska rétti, þ.e. pizzur, pasta, kjúkling og sjávarrétti. 

                                                Áhugaverðir staðir um Róm

                                                iStock 539115110


                                                Rómartorgið (Foro Romano)
                                                , rústirnar af nokkrum mikilvægum ríkisbyggingum sem voru mikið notaðar á sínum tíma af rómverjum fyrir kosningar, réttarhöld og skylminga leika.

                                                Kólósseum var upphaflega gjöf til Rómarbúa og var notuð í 100 daga leikunum, bardögum og í villidýra bardögum. Þegar árin fóru að líða var hætt að hugsa um staðinn og voru hlutar notaðir í að byggja upp aðra hluti en byggingin sjálf fengið að standa og er mikið aðdráttarafl ferðamanna.

                                                Péturskirkjan er ein af stærstu kirkjum heims og var hönnuð af Michelangelo. Þar koma heimamenn saman til þess að bera páfann augum.

                                                Vatíkanið er minnsta ríki í heimi þar sem að Páfinn hefur aðsetur.

                                                Sixtínsku Kapelluna er hvað þekktust fyrir að vera kapella innan þeirra aðsetu sem Páfinn hefur og að vera hönnuð að innan á stórglæsilegan hátt.

                                                Panþeon var hér áður fyrr rómverskt hof sem brann en ekki er vitað hvenær byggingin var endurbyggð. Hún er ein sú varðveittasta bygging sinna tíma.

                                                Athugið

                                                • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                • ATH! Dýrari og fínni tegundir af koníaki, whisky og öðru virtu og dýru víni eru ekki innifaldar í drykkjarpakkanum og drykkjarpakkinn gildir ekki á veitingastöðunum Archipelago og Steak House.