Cattolica og Riccione eru tvær af skærustu perlum Adríahafsstrandarinnar, staðsettar hlið við hlið en með sinn hvorn karakterinn. Cattolica er heillandi og fjölskylduvænn bær þar sem rólegheit, ítölsk gestrisni og fallegar sandstrendur eru í fyrirrúmi. Þar er dásamlegt að rölta um torgin, njóta góðra veitingastaða eða heimsækja hið fræga sædýrasafn bæjarins.
Aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð er hinn líflegi bær Riccione, sem er miðstöð tísku og næturlífs á svæðinu. Riccione er þekktur fyrir glæsilegar verslunargötur, eins og hina frægu Viale Ceccarini, þar sem hægt er að finna nýjustu ítölsku hönnunina og njóta líflegs mannlífs á kaffihúsunum. Saman mynda þessir tveir bæir fullkomna blöndu fyrir þá sem vilja njóta sólar og slökunar í Cattolica, en hafa jafnframt greiðan aðgang að iðandi bæjarlífi og verslunum í Riccione.
Verð og dagsetningar
25. júlí – 2. ágúst
9 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
583.800 kr. |
Verð frá
291.900 kr.
per farþega | |
25. júlí – 2. ágúst
9 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna og 1 barn |
Heildarverð frá
828.700 kr. |
Verð frá
276.233 kr.
per farþega | |
25. júlí – 2. ágúst
9 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna og 2 börn |
Heildarverð frá
1.073.600 kr. |
Verð frá
268.400 kr.
per farþega | |
25. júlí – 2. ágúst
9 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
359.900 kr. |
Verð frá
359.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 8 nætur á Hotel Kursaal Cattolica 4★ með hálfu fæði, Flug fram og til baka með innifalinni tösku, 8 gistinætur á völdu hóteli, Hálft fæði: Morgunverðarhlaðborð og þriggja rétta kvöldverður alla dagana, og Akstur til og frá flugvelli á áfangastað.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, eða Gistináttaskattur hótelsins (city tax) er greiddur beint á hótelið við komu.
Athugið
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.

