Adolf Jónsson
fararstjóri
    Dásamleg sólar- og ævintýraferð í Karíbahafið þar sem boðið er upp á fjölbreytta gistingu sem hentar jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Í þessari strandferð til Playa del Carmen njótum við þess besta sem Mexíkó hefur upp á að bjóða: tæran sjó, hvíta sandstrendur og einstaka gestrisni heimamanna. Íslensk fararstjórn fylgir hópnum og í boði er mikið úrval valfrjálsra ferða fyrir þá sem vilja kanna rústir Maya-menningarinnar, skellur í cenote-hylji eða upplifa iðandi mannlífið á Fimmtu breiddargötunni. Þetta er fullkomið tækifæri til að hlaða batteríin í sólinni í nóvember 2026.

    Adolf Jónsson er með víðtæka reynslu af fararstjórn um víða veröld og hefur síðastliðin ár verið búsettur í Mexíkó og leitt fjölda ferða um Yucatánskaga, Playa del Carmen og Cancun auk annara landa í Mið- og Suður Ameríku. Adolf ferðaðist víða um Kína meðan hann dvaldi við nám í Shanghai og nýtti allar frístundir til að bæta við sig þekkingu á álfunni.

    Verð frá 567.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 12. – 26. nóv.

    Verð og dagsetningar

    12. – 26. nóv.  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.135.800 kr.
    Verð frá 567.900 kr.
    per farþega
    12. – 26. nóv.  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    737.800 kr.
    Verð frá 737.800 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, Flug með Icelandair og WestJet. Allir skattar og gjöld innifalin auk farangurs., Gisting í tvíbýli með morgunmat í tilgreindum hótelum., Allur akstur á milli flugvalla og gististaða einsog tilgreint er í ferðalýsingunni hér að framan., og Íslensk fararstjórn auk þjónusta erlendra leiðsögumanna..
    Ekki innifalið í verði: Þjórfé ferðatryggingar eða annað sem ekki er tilgreint hér að framan, kostnaður við vegabréfsáritun, eða ferðatryggingar eða annað sem ekki er tilgreint hér að framan.

    Ferðalýsing

    Það jafnast fátt á við óaðinn í sól og hita við strendur Karíbahafsins í Mexíkó, að kynnast heillandi sögu landsins og ótrúlega fjölbreyttan matarkúltúr og menningu heimamanna.

    Mexíkó er ekki bara sembrero, tacos og tequila. Stórbrotin náttúrufegurð, ólíkir þjóðarhópar og dramatísk saga landsins mætast í litskrúðugri menningu sem lætur engan ósnortinn.

    Áfangastaðurinn er Playa del Carmen, einhver ljúfasti strandbær í heimi og gerólíkur þeim stöðum sem Íslendingar hafa kynnst í sólarlandaferðum sínum til Evrópu. Hér er eitthvað allt annað á ferðinni því hótelin eru lágreist og götulífið sjarmerandi með dásamlegum mörkuðum; mannlífið fjölbreytt og öruggt.


    Á Playa del Carmen komumst við í kynni við krassandi matargerð, ólgandi mexíkóska menningu og einstaklega gestrisna heimamenn. Ströndin heillar með tærum og ylvolgum sjó og einu stærsta kóralrifi í heimi.

    Flogið er um Toronto í Kanada með Icelandair og áfram með WestJet. Gist eina nótt á flugvallarhóteli í Toronto á leið út en bein tenging í Toronto á heimleið. Einn flugmiði tryggir tengingar. Gist er eina nótt í Toronto á báðum leiðum á góðu flugvallarhóteli.

    Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 er flogið kl. 17:00 frá Keflavík og lánað í Toronto kl. 18:15 þar sem er eina nótt.

    Föstudaginn 13. nóvember er flogið kl. 07:55 og lánað í Cancun kl. 12:30. Þaðan er ekið beint til Playa del Carmen í fylgd íslensks fararstjóra.

    Miðvikudaginn 25. nóvember er heimflug kl. 13:30, lánað í Kanada kl. 17:30 og flogið þaðan áfram til Íslands kl. 19:40.

    Lending á Keflavíkurflugvelli er upp úr sex að morgni fimmtudagsins 26. nóvember.

    Gistingar í boði

    3
    5
    Afmarka út frá stjörnufjölda

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.