Upplifðu bestu hliðar norður–Ítalíu í þessari stórbrotnu ferð þar sem Gardavatnið, sjarmerandi miðaldabæir og tignarleg Dólómítfjöllin mynda ógleymanlega heild. Við heimsækjum Tenno–vatn, fjallaperluna Molveno, Malcesine og Verona. Ferðin sameinar náttúru, menningu, matargerð og rólega ítalska stemmningu. Fullkomin ferð fyrir þá sem vilja blanda saman afslöppun, ævintýrum og fegurstu perlum Ítalíu.
Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.
Verð og dagsetningar
27. júní – 4. júlí
8 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
599.800 kr. |
Verð frá
299.900 kr.
per farþega | |
27. júní – 4. júlí
8 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
359.900 kr. |
Verð frá
359.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á 4 stjörnu gistingu, og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið í verði:
Ferðamannaskattur, eða annað sem ekki kemur fram í ferðalýsingu.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 70.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.









