Ferðin hefst með flugi til Parísar, borgar lista og ástar, þar sem stigið verður um borð í lúxusfleytuna AmaLyra. Áin Signa ber okkur til hafnarborgarinnar Le Havre,  til heillandi sjávarþorpsins Honfleur þar sem höfnin hefur innblásið listmálara um langa hríð og Rúðuborgar þar sem málverkaséníið Monet var og hét og Jóhanna af Örk var brennd a báli. Þessi sigling er í boði nær vikulega frá mars til nóvember. Verðdæmi  á mann í tvíbýli: París og Normandý, 16. maí: Frá 681.500 kr. í C-herbergi  

Verð og dagsetningar

Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

Ferðalýsing

Farið verður  í ógleymanlegar skoðunarferðir um vígvelli strandanna í stærstu hernaðaraðgerð sögunnar og heimsóttar kirkjur, klaustur, kastalar, miðaldarþorp, víngerðarmenn og matreiðslumeistarar heimamanna. Áður en yfir lýkur, verður síðasta heimili meistara Van Gogh heimsótt. 
Verðdæmi  á mann í tvíbýli: París og Normandý, 16. maí: Frá 681.500 kr. í C-herbergi 

*Innifalið: Vikulöng sigling með fullu veislufæði með eðalvínum að vild, allar skoðunarferðir,  siglingaskattar, þjórfé (nema fyrir staðarleiðsögumenn í skoðunarferðum), 2ja nátta ferðapakki fyrir siglingu í París (pre-tour) og  viðmiðunar-flugfargjald frá Íslandi til (eða næsta flugvöll við) upphafsstaðar siglingar.

Fyrirvarar: Flugfargjald getur breyst og stilla þarf af flugdaga m.t.t. siglingar. Mögulega þarf að bæta við hótelgistingu og ferðum frá flugvelli til skipalægis. Ef bókaður er pre-tour (fyrir siglingu) og/eða post-tour (eftir siglingu) er yfirleitt innifalin móttaka við komu flugs (pre) eða fylgd til brottfararflugs (post) á völdum flugvöllum). Verð miðast við verðlista AmaWaterways 15. jan. og getur breyst og gengi bandaríikjadollars 25. janúar 2020.

HNOTSKURN Í siglingum okkar kappkostum við að bjóða upp á úrval skoðunarferða sem innifaldar eru í verði. Oftast eru í boði nokkrar ferðir sem velja má milli, t.d. standard túra, hjólatúra,  gönguferða eða sérferða  á mið ýmissa áhugasviða. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytni og keppumst við að finna spennandi upplifun fyrir alla gesti okkar.

M=morgunverður, H=hádegisverður, K=Kvöldverður

Dagskrá

Dagur 1 — Farið um borð

Kynning á skipinu og blandað geði við samferðarfólk, (K).

      Dagur 2 — Les Andelys

      Við njótum fallegrar siglingaleiðar eftir Signu áleiðis til Les Andelys. Um hádegisbil förum við í gönguferð meðfram Signubökkum en frá Les Andelys er einstakt útsýn yfir hrikalega krítarklettana við Signu, aldagömul viðarhús og rústir Gaillard kastala sem bera við himinn. Þeir sem vilja geta gengið að rústunum sem eitt sinn var virki Ríkharðs ljónshjarta en oft var þar skipt um húsbændur í 100 ára stríðinu. Einnig má taka þátt í hjólaferð í fylgd fararstjóra um þorpið, (M, H, K).

          Dagur 3 — Le Harve

          Í Le Harve eru nokkrar skoðunarferðir í boði um þessa frægu hafnarborg og næsta nágrenni. Ein er til hins einstaka hafnarbæjar Honfleur sem skartar heimsfrægu hafnarstæði og var eftirlæti impressionista fyrri tíðar. Þá er í boði önnur ferð til Honfleur að viðbættu eðalhéraðinu Pays d’Aug þar sem epla-mjöður, calvados og pommeau (áfengt léttvín með eplaasafa og epla-brandí) eru sögð skyggja á rauðvínið. Loks má skella sér í bílferð um Beamont-en-Auge og Pont l’Eveque og enda með ostasmakki og Calvados-skál. Síðsdegis er boðið upp á gönguferð og hjólaferð um Le Havre en borgin er á heimsminjaskrá UNESCO, (M, H, K).

              Dagur 4 — Le Harve - Caudebec-en-Caux - Normandístrendur

              Þennan dag liggur leiðin um Normandí hérað og velja má milli fjögurra skoðunarferða. “Minning um D-Day” er heilsdagsferð til átakasvæða bandarískra hersveita, þar sem skoðað verður m.a. kirkjugarðinn í Colleville-sur-Mer, Omaha Beach, stórskotabyrgið í Longues-sur-Mer og þorpið Arromanches þar sem fyrir augu ber leifar af innrásarpramma, sem notaður var við innrás bandamanna árið 1944. Önnur ferð fer um slóðir breskra og kanadískra hersveita á Gold og Juno-ströndunum , m.a. grafreitanna í Ranville og Beny-sur-mer, auk hinnar frægu Pegasus brúar. Einnig verður heimsótt safn helgað síðari heimsstyrjöldinni í Courseulle og að auki þorpið Arromanches (sjá ofar). Þriðji möguleikinn er ferð á vit tilkomumikilla og gamalla klaustra (Rouies des Abbayes) en á þessu svæði má finna um 100 klaustur. Við munum heimsækja rústir Jumiéges-klaustursins og St. George Boscherville, sem áður var aðsetur reglu Benediktusar. Loks gefst síðdegis kostur á að fara til Caudebec-en-Caux sem er ferð aftur tímann í gagnvirku safni um sögu Signu, (M, H, K).

                  Dagur 5 — Rúðuborg (Rouen)

                  Gönguferð um miðaldabæinn Rouen og að Dómkirkju Vorrar Frúar, sem kom oft fyrir í málverkum Monet, staldrað við á torginu þar sem Jóhanna af Örk var brennd á báli og um leið tekin í dýrlingatölu. Þá verður gengið um elsta hluta borgarinnar og staldrað við hjá Klukkunni stóru. Á bakaleiðinni velur hver sína leið að skipinu en þeir sem vilja taka þátt í hjólaferð meðfram bökkum Signu. Í dagslok má fara í smakkferð þar sem í boði er m.a. súkkulaði heimafólks, makkarónuréttir, ostar og mjöður, (M, H, K).

                      Dagur 6 — Vernon - La Roche-Guyon

                      Morguninn nýtist vel til að skoða landslagið og mannlífið á bökkum Signu um leið og við líðum til Vernon. Þegar við leggjum að bakka er frjáls tími til að skoða þennan fallega bæ. Seinna um daginn verður haldið til Giverny og heimsótt heimili meistara Claude Monet og gengið um fallegu garðana sem hann gerði ódauðlega í verkum sínum. Einnig er í boði heimsókn í Bizy-höllina og skrautgarðana sem breiða úr sér á staðnum. Þeim hjólaglöðu er boðið í sveitaferð með fararstjóra þar sem komið verður við í þorpinu La Roche-Guyon sem hefur verið tilnefnt fallegasta þorp Frakklands, (M, H, K).

                          Dagur 7 — Conflans

                          Þennan dag eru í boði tvær ferðir. Sú fyrri er heimsókn í bæinn Auvers-sur-Oise þar sem er að finna síðasta heimili málverkameistararans vansæla Vincent van Gogh. Enn hvílir andi van Gogh yfir heimilinu þar sem hann bjó aðeins í 70 síðustu daga ævinnar en var afskaplega afkastamikill uns yfir lauk og lauk 70 verkum á þeim tíma. Að auki verður hugað að gleðilegri stöðum með heimsókn til hins lífsglaða bæjar Saint German-Prés með fallegum söfnum, galleríum og gömlum kirkjum. Hjólafólk fær einnig tækifæri til að hjóla um Conflans. Loks er vert að hvíla lúin bein á sóldekkinu og njóta fallegrar siglingaleiðar áleiðis til Parísar,(M, H, K).

                              Dagur 8 — París

                              Siglingunni lýkur svo á Signubökkum í París, (M).

                                  Athugið

                                  • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                  • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                  • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.