Verð og dagsetningar
Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?
Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is
Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.
Frá Basel til Nurnberg
Leiðin liggur um blómleg héruð og sérstaklega er hugað að gömlum bæjum og tignarlegum kastölum, ásamt öllum þeim forvitnilegu stöðum sem verða á leið AmaDante. Þegar upp er staðið hefur fengist einstæð sýn á gamalt og nýtt í mið-Evrópu á þessari stórkostlegu siglingu. Á vegum AmaWaterways er í boði 3ja nátta dvöl í Zurich fyrir siglingu og 3ja nátta dvöl í Prag eftir siglingu. Í báðum tilfellum er þjónusta fararstjóra og skoðunarferðir.
Verðdæmi á mann í tvíbýli: Mediveal Treasures, 10.-17. sept: Frá 730.900 kr. í C-herbergi. Í boði eru 5 siglingar á tímabilinu maí-september 2020
Innifalið: Vikulöng sigling með fullu veislufæði með eðalvínum að vild, allar skoðunarferðir, siglingaskattar, þjórfé (nema fyrir staðarleiðsögumen í skoðunarferðum), ferðapakki eftir siglingu í Prag og viðmiðunar-flugfargjald frá Íslandi til (eða næsta flugvöll við) upphafs- og endastaðar siglingar.
Fyrirvarar: Flugfargjald getur breyst og stilla þarf af flugdaga m.t.t. siglingar. Mögulega þarf að bæta við hótelgistingu og ferðum milli flugvalla og skiplægis. Ef bókaður er pre-tour (fyrir siglingu) og/eða post-tour (eftir siglingu) er innifalin móttaka við komu flugs (pre) eða fylgd til brottfararflugs (post) á völdum flugvöllum. Verð miðast við verð AmaWaterways 15. jan. sem getur breyst og gengi bandaríkjadollars 25. janúar 2020.
Í HNOTSKURN
Í siglingum okkar kappkostum við að bjóða upp á úrval skoðunarferða sem innifaldar eru í verði. Oftast eru í boði nokkrar ferðir sem velja má milli, t.d. standard túra, hjólatúra, gönguferða eða sérferða á mið ýmissa áhugasviða. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytni og keppumst við að finna spennandi upplifun fyrir alla gesti okkar.
(M) = morgunverður; (H) = hádegisverður; (K) = kvöldverður
Dagskrá
Dagur 1 — Flug til Zurich og farið um borð
Flogið frá Keflavík til Zurich og ekið til Basel. Um kvöldið er blandað geði við aðra farþega og sest til borðs og fyrstu lúxusmáltíðinni gerð góð skil, (K).
Dagur 2 — Strassbourg
Í þessari frönsku fallegu Evrópuborg verður boðið upp á ferð sem hefst í Orangerie-skrautgarðinum. Þaðan er farið að húsi Evrópuþingsins, þá að lýðveldistorginu og gengið í gegnum hverfi sem kallað er “La Petite France” og er sem hverfinu hafi verið lyft upp úr evrópsku ævintýri og flutt þangað sem það nú stendur. Á göngunni lifum við okkur inn í ævintýraheiminn uns við komum að Okkar Frúar Kirkju en efst á henni trónir stór og mikil klukka sem gefur upp stöðu sólar og mána, auk ýmislegs annars í himinnhvolfinu – og er að sjálfsögðu líka tímamælir. Þeir kraftmeiri geta valið skemmtilegan hjólatúr undir leiðsögn, (M,H,K).
Dagur 3 — Ludwigshafen - Rüdesheim
Í Ludwigshafen má velja um þrjár skoðunarferðir. Fyrsti möguleikinn er að heimsækja og skoða barokkhöllina í Mannheim, eina stærstu höll álfunnar. Annar möguleiki er gönguferð um Speyer, einn elsta bæ Þýskalands, þar sem m.a. er tilkomumikil dómkirkja sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og Altpörtel, borgarhlið frá miðöldum. Loks má slást í för með hópi sem heimsækir hið magnaða Speyer tæknisafn. Síðdegis heldur siglingin áfram til Rüdesheim þar sem boðið verður til Riesling vínsmökkunar, (M,H,K).
Dagur 4 — Rüdesheim
Við höldum áfram að skoða okkur um í Rüdesheim og nágrenni. Þeir sem kjósa meira líf í tuskunum ættu að fara í heimsókn í Safn sjálfspilandi hljóðfæra Siegfrieds sem er eitt stærsta safn heims sinnar tegundar. Annars konar upplifun er að fljóta meðfram vínekrum Rüdesheim á eins konar gondóla að Niederwald minismerkinu sem reist var á 8. áratug 19. aldar til að fagna stofnun Þýskalands. Loks má velja hjólhestinn og hjóla efir bökkum Rínar, (M,H,K).
Dagur 5 — Miltenberg - Wertheim
Við siglum fallega leið áleiðis til Miltenberg, sem gjarnan er nefnd Perla Main-fljótsins. Við förum í land og göngum um þessa einstaklega vel varðveittu borg sem sæmir sér vel í hvaða ævintýri sem er. Mörg húsanna eru frá 15. og 16. öld, byggð úr timbri með hárri burst. Stöldrum við hjá Skakka húsinu og lítum inn í Royal Inn, þar sem rekið hefur verið hótel frá 17. öld. Aðrir eiga þess kost að kynnast matarhefðum Frankoniu (nafn héraðsins sem við siglum um) eða hjóla eftir bökkum Main-fljóts. Síðdegis heldur siglingin áfram til Wertheim. Miðbærinn er óneitanlega einn fallegasti gamli bæjarhluti Þýskalands. Í boði verða skoðunarferðir um miðbæinn, gönguferð upp að rústum Wettyheim-kastlalans eða heimsókn í bakaríið og smakkað á dýrindis snúðum og kökum,(M,H,K).
Dagur 6 — Kitzingen - Volkach
Hér eru nokkrar skoðunarferðir i boði. Würsburg liggur í stærsta vínhéraði Þýskalands og vínekrurnar spanna stór svæði í nágrenni hinnar annáluðu ferðaleiðar “rómantísku leiðarinnar”, sem liggur frá Würzburg og suður til Füssen syðst í landinu. Boðið verður upp á gönguferð um þessa fallegu borg með barrokk yfirbragðið. Þá má skoða hina frægu barokkhöll í borginni sem er á heimsminjaskrá UNESCO og er afar glæsileg og ríkmannlega búin. Þeir sem vilja upplifa meira af rómantísku leiðinni, gefst kostur á að heimsækja Rothenburg sem er best varðveitta virki borga Þýskalands. Geta má þess, að bærinn var fyrirmynd teiknara Disneys Í teiknimyndinni um Gosa. Þeir sem vilja meiri hreyfingu geta tekið þátt í hjólaferð frá Kitzingen til Volkach. Um kvöldið verður haldin vínveisla í Volkach, (M,H,K).
Dagur 7 — Bamberg
Það er engin tilviljun að stór hluti Bamberg er skráður á heimsminjaskrá UNESCO. Sumir telja borgina meðal þeirra fegurstu í Evrópu. Hér verður boðið upp á þrjár ferðir. Taka má þátt í gönguferð um þessa unaðslegu miðaldaborg, skoða dómkirkjuna, gamla ráðhúsið og virða fyrir sér fjölda herragarða og óðala. Matgæðingum gefst færi á að fara í sælkeraferð og smakka m.a. reyktan bjór, heimalagaðan lakkrís eða Hörnla -rétti sem eru einkennandi fyrir borgina – hin eina sanna uppskrift er frá árinu 1427! Þeir sem kjósa meiri hreyfingu taka þátt í hjólaferð eftir árbökkum Main og í gegnum falleg úthverfi borgarinnar, (M,H,K).
Dagur 8 — Siglingu lýkur í Nuremberg
Að loknum morgunverði verður farið frá borði og við tekur akstur til Prag. Þar verður dvalið á lúxushóteli í 2 nætur og í boði verða skoðunarferðir með sérvöldum fararstjóra. Möguleiki að fljúga heim frá Prag, (M,H,K).
Athugið
- Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
Úrval Útsýn notar vafrakökur til að greina umferðina á vefnum, bæta þjónustuna og upplifun viðskiptavina. Nánar hér.
