Guðmundur F. Magnússon
fararstjóri
    Madeira er gjarnan kölluð Eyja hins eilífa vors eða Hinn fljótandi skrautgarður, sem segir margt um milt veðurfarið og gróðursældina á þessari eldfjallaeyju.

    Verð og dagsetningar

    Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

    Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

    Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 6 nætur á 4–5 stjörnu gistingu, íslensk fararstjórn, morgunmatur, og beint flug fram og til baka.
    Ekki innifalið í verði: City tax, eða skoðunarferðir.

    Madeira

    Beint flug til Madeira er í boði 8. og 16. apríl 2026.

    Lega eyjunnar í Atlantshafinu tryggir að veðurfarið er þægilegt, milt og stöðugt árið um kring. Landslagið er ægifagurt, tignarleg fjöll, klettar, djúpir dalir  og fjölskrúðugur gróður milli fjalls og fjöru. Sykurreyr, vín- og bananaekrur setja svip sinn á landið auk fjölda skrúðgarða. Gamalt áveitukerfi er enn gulls ígildi og mikil völundarsmíð. Um alla eyju eru afar skemmtilegar gönguleiðir.

    Athugið að akstur til og frá flugvelli er ekki í boði á vegum Úrval Útsýn.

    Madeira

    Madeira tilheyrir Portúgal en er með sjálfstjórn og eigið þing.  Eyjan er um 740 ferkílómetrar að stærð og íbúar um 300 þúsund. Fólkið er einstaklega vingjarnlegt og auk portúgölsku tala mjög margir ensku. Ekki er mikið um stórar sandstrendur á eyjunni, víðast hvar eru klettastrendur og fallegar víkur. Þó má finna manngerðar sandstrendur með gullnum sandi.

    Höfuðborgin Funchal

    Við suðurströndina er höfuðborgin Funchal, heillandi bær í nýlendustíl með ríka menningarsögu. Gamli bærinn er einstaklega fallegur. Þar eru ódýr og góð portúgölsk veitingahús, fjölbreyttir markaðir, glæsilegar handverksbúðir og fjöldi kaffihúsa. Höfnin er sjarmerandi og gaman að rölta meðfram sjónum og fylgjast m.a. með hinum mörgu skemmtiferðarskipum sem þangað koma. Fallegir garðar prýða bæinn eins og alla eyjuna. 

    Madeira

    Lido ferðamannasvæðið

    Fyrir vestan Funchal hefur byggst upp heilmikið ferðamannasvæði, Lido, þar sem eru fjölmörg hótel, veitingastaðir, verslanir og önnur þjónusta fyrir ferðamenn.  Meðfram sjónum er göngustígur og á stöku stað hafa verið búnar til litlar sandstrendur eða önnur baðaðstaða fyrir unnendur sjávar. Einnig er alls konar sjávarsport í boði. Til að komast inn í Funchal, má ganga eftir  fallegum stíg eða taka strætó frá hóteli.
    Við bjóðum upp á úrval gististaða, 3,  4 og 5 stjörnur, bæði í Lido hverfinu og inni í borg. 

    Madeira

    Gaman að skoða

    Fjölbreyttar kynnisferðir verða í boði, s.s. um höfuðborgina Funchal, í sjávarþorp, bændabýli, upp á Pico do Arieiro sem er hæsti tindur eyjarinnar (1818 m), um gömul eldfjöll og djúpa dali, gönguferðir og náttúruskoðun, þjóðleg kvöldskemmtun og fleira. Möguleikarnir eru óþrjótandi á þessari fallegu eyju með áhugaverða sögu og einstaka náttúru.  

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.