Þetta ævintýri í Mexíkó er krydd og gleði, skærir litir, ljúfar stundir, heillandi menning og stórbrotin náttúrufegurð. Þín bíða dásamlegir dagar í notalegu loftslagi og stórkostlegri náttúrufegurð Yucatánskagans, í nálægð við hrífandi menningu í litríkum nýlendubæjum með spennandi mörkuðum og unaðslegum matarkúltúr.
Hringferðin um Yucatánskagann er djúp þótt dagleiðir séu stuttar. Ferðin hefst og endar í Playa del Carmen, strandbænum við Karíbahaf, þaðan sem ekið er til Valladolid, Uxmal, Campeche og Mérida áður en snúið er aftur til strandar. Akstur hvern dag er ekki lengri en 2-3 klst. eða 100-300 km, svo ferðarykið er lítið en upplifanir og rannsóknir djúpar.
Adolf Jónsson er með víðtæka reynslu af fararstjórn um víða veröld og hefur síðastliðin ár verið búsettur í Mexíkó og leitt fjölda ferða um Yucatánskaga, Playa del Carmen og Cancun auk annara landa í Mið- og Suður Ameríku. Adolf ferðaðist víða um Kína meðan hann dvaldi við nám í Shanghai og nýtti allar frístundir til að bæta við sig þekkingu á álfunni.
Verð og dagsetningar
12. – 26. nóv.
15 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
1.539.800 kr. |
Verð frá
769.900 kr.
per farþega | |
12. – 26. nóv.
15 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
924.900 kr. |
Verð frá
924.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, Flug með Icelandair og WestJet. Allir skattar og gjöld innifalin auk farangurs., Gisting í tvíbýli með morgunmat í tilgreindum hótelum., Allur akstur á milli flugvalla og gististaða einsog tilgreint er í ferðalýsingunni hér að framan., Aðgangur að söfnum og öðru sem tilgreint er hér í ferðalýsingu auk eins kvöldverðar og tveggja hádegisverða., Tilgreindar skoðunarferðir auk aðgangseyris., og Íslensk fararstjórn og þjónusta erlendra leiðsögumanna.
Ekki innifalið í verði:
Ekki kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum., Ekki "late/early check-in/out". Innritun kl. 14:00. Útskráning 11:00., Ekki þjórfé, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan., eða þjórfé persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Að dagskrá geti breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna eða góðra ástæðna/hugmynda.
- Gætið að gildistíma vegabréfa, ferðatryggingum og bólusetningu með góðum fyrirvara.
- Að öðru leyti gilda almennir skilmálar.






