Komdu með í skemmtilega og glæsilega kvennagolfferð með Úrval Útsýn dagana 17.–22. maí 2026 til sólríka Alicante. Þetta er ferð sem sameinar golf, myndar stemningu og gleði og notalega samveru í afslöppuðu umhverfi við Miðjarðarhafið – fullkomið vorfrí fyrir konur sem elska golf og góðan félagsskap. Fararstjóri er engin önnur en Ragnheiður Sigurðardóttir - landsliðsmanneskja í golfi 50+ og fyrrum íslandsmeistari í golfi 50+
Verð og dagsetningar
17. – 22. maí
6 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
279.900 kr. |
Verð frá
279.900 kr.
per farþega | |
17. – 22. maí
6 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
439.800 kr. |
Verð frá
219.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 5 nætur á El Plantio 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, beint flug fram og til baka, morgunmatur, íslensk fararstjórn, afnot af golfkerru, flutningur á golfsetti, og 5 x 18 holur.
Ekki innifalið í verði:
Golfbíll - Verð fyrir golfbíl 5.500.- per bíl per dag..
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.







