Sandra Lárusdóttir
fararstjóri
    Kvennaferð til Tenerife er ferð sem leggur áherslu á endurnýjun, orku og raunhæf markmið. Hún er ætluð konum sem vilja skilja líkamann sinn betur, endurheimta orkuna sína og læra að hlusta á eigin þarfir á ný. Ferðin hentar sérstaklega vel fyrir konur sem vilja bæta svefninn, hreyfa sig á eigin forsendum án pressu, fræðast um breytingaskeiðið og setja sér skýr og raunhæf markmið til framtíðar. Jafnframt gefst tækifæri til að tengjast öðrum konum í hlýlegu og styðjandi umhverfi þar sem samvera og vellíðan eru í fyrirrúmi.

    Sandra Lárusdóttir, stofnandi fyrirtækisins Heilsa og Útlit sem hefur starfað frá árinu 2014. Hún hefur víðtæka reynslu og hefur sérhæft sig meðal annars sem einkaþjálfari, Bowentæknir, í sogæðameðferðum og medical tattoo. Hún er einnig vottaður breytingaskeiðsmarkþjálfi og hefur lagt áherslu á að styðja konur í að bæta heilsu, vellíðan og sjálfstraust.

    Verð frá 359.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 11. – 18. nóv.

    Verð og dagsetningar

    11. – 18. nóv.  8 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    719.800 kr.
    Verð frá 359.900 kr.
    per farþega
    11. – 18. nóv.  8 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    476.900 kr.
    Verð frá 476.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, og morgunmatur.

    Ferðalýsing

    Ferðin er fyrir konur á öllum stigum breytingaskeiðsins, sem og þær sem vilja undirbúa sig fyrir þann tíma og læra að skilja betur hvernig líkaminn starfar. Í gegnum ferðina er farið yfir mikilvægi svefns fyrir líðan, hreyfingu sem styður við hormónakerfið og mataræði sem getur hjálpað til við að draga úr bólgum og auka orku. Einnig er fjallað um sogæðameðferðir, áhrif streitu og mikilvægi sjálfsmyndar og endurnýjunar. Allt er þetta gert á afslappaðan, styrkjandi og raunhæfan hátt þar sem markmiðið er að hver og ein kona geti fundið leiðir sem henta henni sjálfri.

    Dagskráin byggir á jafnvægi milli fræðslu, hreyfingar, slökunar og samveru. Boðið verður upp á létta æfingatíma þar sem lögð er áhersla á styrk, liðleika og djúpöndun, ásamt útiveru þar sem gengið er í náttúrunni og notið sólar, sjávar og fersks lofts. Fræðslustundir og opnar umræður gefa þátttakendum tækifæri til að vinna með eigin markmið og ræða hvernig hægt er að láta sér líða sem best í eigin líkama. Jafnframt verður lögð áhersla á slökun, svefnhugleiðingar og sjálfsumhyggju, auk þess sem gleði, hlátur og tengsl á milli kvenna verða mikilvægur hluti af upplifuninni.

    Markmið ferðarinnar er að þátttakendur snúi heim með meiri orku, skýrari sýn og raunhæf markmið fyrir framhaldið. Þær fái verkfæri sem nýtast áfram í daglegu lífi, ný tengsl og aukið sjálfstraust. Mikilvægast af öllu er þó að hver kona finni að hún er ekki ein á sinni vegferð.

    Ferðinni stýrir Sandra Lárusdóttir, stofnandi fyrirtækisins Heilsa og Útlit sem hefur starfað frá árinu 2014. Hún hefur víðtæka reynslu og hefur sérhæft sig meðal annars sem einkaþjálfari, Bowentæknir, í sogæðameðferðum og medical tattoo. Hún er einnig vottaður breytingaskeiðsmarkþjálfi og hefur lagt áherslu á að styðja konur í að bæta heilsu, vellíðan og sjálfstraust.

    Heilsu kvennaferð Heilsu kvennaferð

    Gistingar í boði

    Villa Cortes er 5 stjörnu gisting í fyrsta flokki fyrir þá kröfuhörðustu. Hótelið er byggt í fallegum mexíkóskum stíl og tilvalið til þess að slaka á ásamt því að njóta fremstu þæginda og þjónustu sem völ er á. Hótelið er frábærlega staðsett við litla strönd þar sem fallegt útsýni er yfir á La Gomera eyjuna. Fjöldi veitinga- og skemmtistaða í öllum regnbogans litum og alþjóðlegar verslanir með merkjavöru eru allt um kring í hjarta Playa de las Americas. Virkilega fallegur garður með stórri sundlaug með sér barnalaug. Fallegar, íburðamiklar setustofur þar sem reglulega píanó tónlist. 

    GISTING 

    Val er um einbýli, tvíbýli og svítur fyrir þá allra kröfuhörðustu. Herbergin eru vel útbúin, íburðarmikil og rúmgóð, innréttuð í mexíkóskum stíl. Glæsileg húsgögn í hefðarstíl eru í herbergjunum, stórt rúm, sófi, borð, skrifborð og skápur. Fullbúið lúxus með baði, sturtu og hárþurrku. Sloppur og inniskór á herbergjum.

    Á herbergjunum má finna gervihnattasjónvarp, mini-bar og öryggishólfi. Svalir eða verönd fylgir hverju herbergi en greiða þarf sérstaklega fyrir garðsýni. Herbergin eru loftkæld.

    AÐSTAÐA 

    Mjög stór sundlaug með fossi og sér barnalaug er í glæsilegum garði hótelsins sem snýr út að stórbrotnu hafinu. Trébekkir með dýnum, handklæðum og sólhlífum eru til handa gestum. Á hótelinu er leiksvæði þar sem er barnagæsla fyrir börn þegar mikill fjöldi barna er á hótelinu. Fyrir framan hótelið, við göngustíg við sjóinn er fjöldi leiksvæða fyrir börn. Fallegar setustofur eru á hótelinu með rólegu andrúmslofti þar sem stundum er leikin píanótónlist. Hótelið hefur sérstakt klúbbhús fyrir gesti og að sjálfsögðu er gestamóttakan opin allan sólarhringinn. Á Villa Cortés er bæði tennisvöllur og heilsulind með tyrknesku baði, þar sem úrval dekurmeðferða er í boði ásamt líkamsrækt fyrir þá sem vilja halda sér í formi og hárgreiðslustofu. Hótelinu tilheyrir lítil strönd þar sem eitt af veitingahúsum hótelsins er.

    AFÞREYING 

    Reglulega er lifandi tónlist á hótelinu. Ótal afþreyingu er að finna á Tenerife og stutt frá hótelinu er hægt að fara i göngur, jeppaferðir, jet-ski, köfun ofl. 5 golfvellir eru nærri Villa Cortés. 

    VEITINGASTAÐIR 

    Val er um gistingu með morgunverð eða hálfu fæði. Veitingastaðir hótelsins bjóða frábært úrval lystisemda. Á hótelinu er einnig að finna ekta Bavarískt veitingahús, sælkerastaðinn Tiziano og Beach Club niður við ströndina. 

    STAÐSETNING 

    Hótelið er vel staðsett við litla strönd falleg útsýni yfir LA Gomera eyjuna, en jafnframt í göngufæri við iðandi mannlífið. 

    AÐBÚNAÐUR Á VILLA CORTES 

    Tvíbýli/svítur 

    Morgunverður/hálft fæði 

    Útisundlaug 

    Barnalaug 

    Trébekkir

    Sólhlífar

    Svalir/verönd 

    Skrifborð 

    Baðherbergi 

    Sloppur

    Gervihnattarsjónvarp 

    Mini-bar 

    Sími

    Loftkæling

    Tennisvöllur 

    Heilsulind

    Tyrkneskt bað 

    Setustofur 

    Lifandi tónlist 

    Veitingastaðir 

    Barir 

    ATH
     
    Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
     
    Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
     
    Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
     
    Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin. 

    Tenerife

    Tenerife hefur allt það að bjóða sem bestu sólarstaðir státa af. Eyjan er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa.

    Fjölskyldur geta notið alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða og í boði er fjöldi gististaða fyrir allar fjölskyldustærðir – allt frá íbúðum upp í stórglæsileg hótel. Bókaðu í tíma til að tryggja gistingu sem hentar þér og þinni fjölskyldustærð.

    Ekki má gleyma að á Tenerife er flottasti vatnsrennibrautagarður heims, „Siam Park“, ásamt hinum stórglæsilega dýragarði „Loro Parque“.

    Það skemmta sér allir vel á paradísareyjunni Tenerife!

    Skemmtigarðar

    • Siam Park
    • Aqualand
    • Loro Park
    • Bubble Soccer

    Verslunarmiðstöðvar:

    • Siam Mall 
    • Parque Santiago
    • Safari Center
    • Bahaia del Duque
    • Oasis

    Afþreying:

    • Vatnasport
    • Gönguferðir
    • Verslanir
    • Frábærir veitingastaðir
    • Leikhús
    Tenerife

    TENERIFE SUR – SUÐURHLUTINN

    Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Úrval Útsýn býður upp á gistingu á suðurhlutanum í Playa de las Américas, Los Cristianos og Costa Adeje. Allir þessir staðir hafa sinn sjarma og sitt einstaka andrúmsloft. Í Los Cristianos slær hjarta suðurhlutans þar sem ferðamannaiðnaðurinn byrjaði. Á því svæði búa eyjaskeggjar Tenerife en gamli bærinn er afar sjarmerandi með litlum þröngum göngugötum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana. Playa de Las Americas hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” en þar er frábært úrval verslana og veitingastaða á heimsmælikvarða. Costa Adeje svæðið er svo yndislegt og rólegt, með fallegum ströndum og stórglæsilegum gistingum.

    Tenerife

    SANTA CRUZ – HÖFUÐBORGIN

    Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett við sjávarsíðuna á norð-austur hluta eyjunnar, undir fjöllum Anaga tangans. Þetta er glaðleg heimsborg, full af orku, og litast af persónuleika eyjaskeggja. Í borginni, sem er samvaxin La Laguna, er ótal margt að skoða en samanlagt búa þar yfir 400 þúsund manns sem gerir þær að stærsta þéttbýlissvæði Kanaríeyja. Borgin hentar sérstaklega vel til gönguferða. Hún er þakin fallegum görðum, flottum verslunargötum og býður upp á alla þá kosti sem stórar heimsborgir státa af. Hér er að finna mjög áhugaverðan byggingarstíl gömlu tímanna, samofinn nýjum stefnum og straumum arkítektúrs 21. aldarinnar. Santa Cruz er sú borg Spánar sem státar af flestum nútíma byggingum á litlu svæði. 

    Tenerife

    Menningarlíf borgarinnar er talið einstakt enda mikið af áhugaverðum söfnum og listsýningum á heimsmælikvarða. Fyrir tónlistarunnendur er sinfóníuhljómsveit borgarinnar í fremstu röð Evrópuþjóða. Borgin er byggð upp við fallegar breiðgötur, svo kallaðar „Ramblas“. Í borginni er skemmtilegt andrúmsloft, sem er bæði róandi og seiðandi, án þess að missa hið skemmtilega yfirbragð lítillar heimsborgar. Hér eru frábærar verslanir, verslunarmiðstöðar, veitingastaðir og kaffihús. Í næsta nágrenni er einnig stærsta og glæsilegasta strönd eyjunnar „Las Teresitas“. Í einungis 15 mínútna ferð með sporvagni er komið til hinnar þekktu 500 ára gömlu fyrrverandi höfuðborgar Tenerife, La Laguna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstaka sögu og fallegar byggingar. 

    Tenerife

    PUERTO DE LA CRUZ – NORÐURHLUTINN

    Puerto de la Cruz er staðsett á norðurhluta eyjunnar og er einna þekktust fyrir að hýsa einn glæsilegasta dýragarð Evrópu, Loro Parque. Ferðalangar hafa heimsótt þessa einstöku borg frá Evrópu síðan um miðja 19. öld og er fyrsti eiginlegi sumarleyfisdvalarstaður Kanaríeyja. Borgin hefur yfir sér rólegt yfirbragð þar sem gamli og nýi tíminn mætast á mjög sjarmerandi máta.

    Tenerife

    Gamli bærinn státar af afar fallegum gömlum byggingum og höfnin sem er í lykilhlutverki þjónaði vínútflutningi frá La Orotava dalnum í nokkur hundruð ár. Bærinn La Orotava er verðugur áningastaður þar sem eru stórglæsileg hús og hallir ásamt kirkjum sem skreyta bæinn. Við sjávarsíðuna er svo að finna afar fallegan sundlauga- og lystigarð, Lago Martiánes, sem þjónar borginni sem einskonar strandgarður, því fáar baðstrendur eru við borgina.

    Í Puerto de la Cruz er einnig að finna mikið af skemmtilegum verslunum, en til að mynda er þar stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar, La Villa sem er staðsett rétt fyrir utan bæinn. Einnig er þar elsti skrúðgarður (Botanical Garden) Tenerife. Fallegar göngugötur, torg og garðar toppa svo þessa fallegu borg. Hér er mikið úrval af glæsilegum veitingastöðum, börum og kaffihúsum, bæði í gamla bænum sem og í næsta nágrenni hans. 

    Puerto De La Cruz er klárlega staður sem vert að skoða!

    AFÞREYING Á TENERIFE

    Tenerife

    Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast enda nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Gaman er að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park, þar sem þú getur meðal annars rennt þér niður 28 metra rennibraut nánast í frjálsu falli sem endar með ferð í gegnum hákarlabúr! Eða farið á stærstu go-kart braut Evrópu.

    Við nánast hverja strönd á Tenerife er mikið úrval vatnaíþrótta -> sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun svo eitthvað sé nefnt.

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
    • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
    • Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.