Kristján Steinsson
fararstjóri
    Upplifðu töfrandi blöndu af afrískri náttúru, dýralífi og sólríkri afslöppun á strönd í þessari ævintýraferð um Kenía. Gist er á úrvals 4-5* hótelum.

    Kristján er einn af reyndustu og vinsælustu fararstjórum Úrval Útsýnar og hefur hann unnið í ferðabransanum í yfir 30 ár. Hann hefur víðtæka reynslu og leysir öll vandmál eins og hendi sé veifað. Kristján er bæði með leiðsögumenntun og háskólamenntaður í ferðamálafræði.

    Verð frá 1.249.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 6. – 20. nóv.

    Verð og dagsetningar

    6. – 20. nóv.  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    2.499.800 kr.
    Verð frá 1.249.900 kr.
    per farþega
    6. – 20. nóv.  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    1.299.900 kr.
    Verð frá 1.299.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, fullt fæði, leiðsögn innlendra sérfræðinga, allar tilgreindar ferðir með aðgangseyri, akstri og öðru tilheyrandi, og gisting á 4-5* hótelum.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritanir, þjórfé, persónuleg útgjöld og annað sem ekki er nefnt hér fyrir framan..

    Ferðalýsing

    Upplifðu töfrandi blöndu af afrískri náttúru, dýralífi, og afslöppun á strönd í þessari ævintýraferð um Kenía. Gisting á 4-5* hótelum. 

    Ferðin hefst með safaríferðum í Amboseli og Masai Mara þjóðgarði þar sem þú sérð flamingóa, hin fimm fræknu villidýr, ljón, fíla, nashyrninga, hlébarða og buffalóa, og upplifir menningu Masai fólksins. 

    Þaðan flýgurðu til strandbæjarins Watamu og nýtur strandar,sólar og sólseturssiglingar. 

    Síðan verður dvalið við Diani ströndina þar sem þú slakar á við hvítar sandstrendur áður enferðinni lýkur með heimsóknum í Gíraffa setur, fílaathvarf og Karen Blixen safnið í Nairobi. 

    Fullkomin blanda af safaríferðum, menningu og strandlífi, fyrir þá sem vilja upplifa það besta sem Kenía hefur upp á að bjóða.

    Skelltu þér með á vit ævintýranna.  

    Flug

    Flogið verður með Icelandair 6. nóvember til Oslo, brottför 07:50 frá Keflavík og lent 11:35.

    Haldið er áfram með Emirates kl 14:00 og lent í Dubai klukkan 23:55. Ferðin heldur áfram frá Dubai 01:20 og lent í Naíróbí 05:30 að morgni.

    Á heimleiðinni er flogið með Emirates til Dubai. Brottför klukkan 22:45 og lent 04:45. Haldið er áfram til Kaupmannahafnar með Emirates og er brottför klukkan 08:30 og lendt í Kaupmannahöfn kl 12:30. 17:05 lagt af stað til Keflavíkur og lending áætluð klukkan 19:30

    Dagskrá

    Dagur 1 — Nairobi

    Við komuna verður tekið á móti okkur og ekið á hótel fyrir næturgistingu. Kvöldverður Innifalinn. Hótel Sarova Panafric

        Dagur 2 — Nairóbí-Amboseli

        Eftir morgunverð er haldið til Amboseli þjóðgarðsins sem er frægastur fyrir einstakt útsýni á hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro. Í þjóðgarðinum sjáum við einnig Fíla og ljón, Sebrahesta og gíraffa sem halda sig við rætur fjallsins. Stoppum og njótum sólarlagsins sem er einstakt í Afríku með kaldann svalardrykk í hönd undir leiðsögn Masaía leiðsögurmanns sem er innfæddur á svæðinu og segir okkur sögur af menningu og þjóðháttum.

        Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalið.

        Gisting Amboseli Serena lodge

            Dagur 3 — Amboseli

            Þennan dag vöknum við snemma og keyrum að útsýnisstað þar sem við sjáum ógleymanlega sólarupprás upp frá Kilimanjaro. Morgunverður verður borðaður út í náttúrunni undir berum himni Afríku. Síðan verður keyrt í garðinum og dýr skoðuð áður en haldið verður upp á hótel til að hvíla sig aðeins. Eftir hádegisverð keyrum við um sléttur Afríku í leit að ljónum og öðrum kattardýrum ásamt því að hafa möguleika að sjá yfir 400 tegundir af fuglum . Um kvöldið borðum við kvöldverð út í náttúrunni við varðeld undir söng og dans innfæddra Masaímanna.

            Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn.

            Gisting Amboseli Serrana lodge

                Dagur 4 — Amboseli– Masai Mara – Safari

                Vöknum snemma í morgunverð og keyrum að lítilli flugbraut þar sem okkur verður flogið til Masai Mara sem er einn stærsti þjóðgarður með villtum dýrum í heiminum. Við komum í búðirnar þar um hádegi og eftir hádegsiverð förum við í safarí þar sem við munum meðal annars sjá ljón, fíla, buffaló, blettatígra ásamt mörgum öðrum dýrum. Við sólarlag keyrum við að Mara ánni þar sem sjá má flóðhesta og krókódíla. Um kvöldið heimsækjum við þorp innfæddra og hlustum á söng þeirra og dans og fræðumst um menningu þeirra og arfleið. Kvöldverður í búðunum sem gist er í.

                Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalinn.

                Gisting. Sarova Mara camp

                    Dagur 5 — Masai Mara

                    Vöknum snemma og keyrum og sjáum sólarupprás komið til baka fyrir morgunverð. Eftir morgunverð verður farið í heilsdags safari með nestispakka, þar sem við skoðum villt dýr á borð við ljón, hlébarða, sebrahesta, antilópur, gíraffa og fleiri.

                    Masai Mara þjóðgarður er um 1.500 ferkílómetrar að stærð og heimili um þriggja milljóna dýra. Landslagið einkennist af víðáttumiklum sléttum – kjöraðstæður til að sjá villt dýr. Árlega koma milljónir dýra frá Serengeti í Tanzaníu inn til Masai Mara og er það stórbrotin sjón. Dýrin þurfa að fara yfir Mara ána þar sem krókódílar bíða og mörg þeirra komast ekki lífs af á leiðinni.

                    Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalinn.

                    Gisting. Sarova camp

                        Dagur 6 — Masai Mara – Watamu strönd

                        Snemma um morguninn er farið í loftbelg sem flýgur yfir slétturnar og þjóðgarðinn. Komið er til baka í morgunverð.

                        Eftir morgunverð erum við keyrð að lítilli flugbraut þar sem okkur er flogið til Nairóbí og síðan keyrt þaðan til Watamu strandarinnar.

                        Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalinn

                        Gisting. Hemingways hotel

                            Dagar 7–8 — Watamu strönd

                            Þessa daga ætlum við að hvíla okkur og njóta sólarinnar, liggja á fallegu ströndinni og að láta stjana við okkur. Watamu ströndin er fræg fyrir hvíta sandinn og tyrkisbláa Indlandshafið. Hægt er að kaupa aukaferðir þessa daga eins og sjóstangarveiði eða snorklsiglingu.

                            Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalinn alla daga.

                            Gisting.Hemingways

                                Dagur 9 — Hemingways

                                Rólegur dagur í sólinni. Um kvöldið verður farið í sólseturssiglingu um Mida Creek um borð í hefðbundnum arabískum seglbát, svokölluðum dhow. Þetta verndarsvæði sameinar kristaltært vatn, mangróveskóga og stórbrotna náttúrufegurð. Á meðan á siglingunni stendur verður borinn fram dýrindis sjávarréttir og drykkir, og hægt að fylgjast með fjölbreyttu dýralífi þar á meðal flamingóum og stórum hegrum.

                                Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalinn.

                                Gisting. Hemingways

                                    Dagar 10–11 — Diani Beach – Tveggja daga afslöppun

                                    Eftir morgunverð er lagt af stað til suðurstrandar Mombasa, að Diani Beach. Silkimjúkur hvítur sandur, túrkísblár sjór og pálmatré meðfram ströndinni gera Diani að sannkölluðum paradísarreit þar sem Afríka mætir Indlandshafinu. Eftir hádegisverð er hægt að synda í hlýjum sjónum og slaka á í ró og næði. Um kvöldið býðst að njóta hefðbundinnar danssýningar á meðan borðað er – fullkomin leið til að blanda saman menningu, mat og afslöppun við sjóinn.

                                    Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalinn.

                                    Gisting. Diani reef beach resort

                                        Dagur 12 — Diani til Mombasa til Nairobi

                                        Eftir morgunverð verður keyrt til Mombasa, borgin skoðuð ásamt fort jesus virkinu sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

                                        Síðar um daginn er flogið til Naróbí.

                                        Morgunmatur og kvöldmatur innifalinn.

                                            Dagur 13 — Brottfarardagur

                                            Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð þar sem við heimsækjum Giraffa miðstöðina, Fílaathvarfið og Karen Blixen safnið. Ekið á flugvöll í tíma fyrir heimferðarflug.

                                            Morgunmatur og kvöldmatur innifalinn.

                                            Flogið 22:45 frá Naróbí.

                                                Gistingar í boði

                                                Athugið

                                                • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                                                • Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.