Kristján Steinsson
fararstjóri
    Upplifðu töfrandi blöndu af afrískri náttúru, dýralífi, vatnasporti og sólríkri afslöppun á strönd í þessari ævintýraferð um Kenía. Gist er á úrvals 5* hótelum. Ferðin hefst með safaríferðum í Lake Nakuru og Masai Mara þjóðgarðinum, þar sem þú sérð flamingóa, „fimm fræknu“ villidýrin – ljón, fíla, nashyrninga, hlébarða og buffalóa – og upplifir menningu Masai fólksins. Þaðan flýgurðu til strandbæjarins Watamu og nýtur höfrunga- og hvalaskoðunar, köfunar, djúpsjávarveiði og rómantískrar sólseturssiglingar. Síðan verður dvalið við hina paradísarlegu Diani-strönd þar sem þú slakar á við hvítar sandstrendur áður en ferðinni lýkur með heimsóknum í Gíraffasetrið, fílaathvarfið og Karen Blixen safnið í Nairobi. Fullkomin blanda af ævintýrum, menningu og dekurvist – fyrir þá sem vilja upplifa það allra besta sem Kenía býður upp á.

    Kristján er einn af reyndustu og vinsælustu fararstjórum Úrval Útsýnar og hefur hann unnið í ferðabransanum í yfir 30 ár. Hann hefur víðtæka reynslu og leysir öll vandmál eins og hendi sé veifað. Kristján er bæði með leiðsögumenntun og háskólamenntaður í ferðamálafræði.

    Verð frá 1.428.600 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 6. – 20. nóv.

    Verð og dagsetningar

    6. – 20. nóv.  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    2.959.800 kr.
    Verð frá 1.479.900 kr.
    per farþega
    6. – 20. nóv.  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    1.428.600 kr.
    Verð frá 1.428.600 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, fullt fæði í safaríferðum, leiðsögn innlenda sérhæfðra aðila, allar tilgreindar ferðir með aðgangseyri, akstri og öðru tilheyrandi, og gisting á 5* hótelum.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, þjórfé, persónuleg útgjöld og annað sem ekki er nefnt hér fyrir framan..

    Ferðalýsing

    Upplifðu töfrarlega blöndu af afrískri náttúru, dýralífi, og sólríkri afslöppun á strönd í þessari ævintýraferð um Kenía. Gisting á 5* hótelum. 

    Ferðin hefst með safaríferðum í Amboseli og Masai Mara þjóðgarði þar sem þú sérð flamingóa, hin fimm fræknu villidýr, ljón, fíla, nashyrninga, hlébarða og buffalóa, og upplifir menningu Masai fólksins. Þaðan flýgurðu til strandbæjarins Watamu og nýtur strandar,sólar og sólseturssiglingar. Síðan verður dvalið við Diani-strönd þar sem þú slakar á við hvítar sandstrendur áður en ferðinni lýkur með heimsóknum í Gíraffa setur, fílaathvarf og Karen Blixen safnið í Nairobi. 

    Fullkomin blanda af safaríferðum, menningu og strandlífi, fyrir þá sem vilja upplifa það besta sem Kenía hefur upp á að bjóða.Skelltu þér með á vit ævintýranna.  

    Dagskrá

    Dagur 1 — Nairobi

    Við komuna verður tekið á móti okkur og ekið á hótel fyrir næturgistingu. Kvöldverður Innifalinn. Hótel Sarova Panafric

        Dagur 2 — Nairóbí-Amboseli

        Eftir morgunverð útskráum við okkur af hótelinu og höldum til Amboseli þjóðgarðsins sem er frægastur fyrir einstakt útsýni á hæsta fjall Afríku sem er Kilimanjaro. Í þjóðgarðinum sjáum við einnig Fíla og ljón, Sebrahesta og gíraffa sem halda sig við rætur fjallsins. Stoppum og njótum sólarlagsins sem er einstakt í Afríku með kaldann svalardrykk í hönd undir leiðsögn Masaía leiðsögurmanns sem er innfæddur á svæðinu og segir okkur sögur af menningu og þjóðháttum.

        Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalið.

        Gisting Amboseli Serena lodge

            Dagur 3 — Amboseli

            Þennan dag vöknum við snemma og keyrum að útsýnisstað þar sem við sjáum ógleymanlega sólarupprás upp frá Kilimanjaro. Morgunverður verður borðaður út í náttúrunni undir berum himni Afríku. Síðan verður keyrt í garðinum og dýr skoðuð áður en haldið verður upp á hótel til að hvíla sig aðeins. Eftir hádegisverð keyrum við um sléttur Afríku í leit að ljónum og öðrum kattardýrum ásamt því að hafa möguleika að sjá yfir 400 tegundir af fuglum . Um kvöldið borðum við kvöldverð út í náttúrunni við varðeld undir söng og dans innfæddra Masaímanna.

            Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalið.

            Gisting Amboseli Serrana lodge

                Dagur 4 — Amboseli– Masai Mara – Safari

                Vöknum snemma í morgunverð og keyrum að lítilli flugbraut þar sem okkur verður flogið til Masai Mara sem er einn stærsti þjóðgarður með viltum dýrum í heiminum. Við komum í búðrinar þar um hádegi og eftir hádegsiverð förum við í safarí þar sem við munum meðal annars sjá ljón, fíla, buuffaló, Cheetah ásamt mörgum öðrum dýrum. Við sólarlag keyrum við að Mara ánni þar sem sjá má flóðhest og krókódíla. Um kvöldið heimsækkjum við þorp innfæddra og hlustum á söng þeirra og dans og fræðums um menningu þeirra og arfleið. Kvöldverður í búðunum sem gist er í.

                Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalið.

                Gisting. Sarova Mara camp

                    Dagur 5 — Masai Mara

                    Vöknum snemma og keyrum og sjáum sólarupprás komið tilbaka fyrir morgunverð. Eftir morgunverð verður farið í heilsdags safari með nestispakka, þar sem skoðuð verða villt dýr á borð við ljón, hlébarða, sebrahesta, antilópur, gíraffa og fleiri.

                    Masai Mara þjóðgarður er um 1.500 ferkílómetrar að stærð og heimili um þriggja milljóna dýra. Landslagið einkennist af víðáttumiklum sléttum – kjöraðstæður til að sjá villt dýr. Árlega koma milljónir dýra frá Serengeti í Tanzaníu inn til Masai Mara í einni stórbrotnustu sjón náttúrunnar. Dýrin þurfa að fara yfir Mara ána þar sem krókódílar bíða og mörg þeirra komast ekki lífs af leiðinni.

                    Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalið.

                    Gisting. Sarova camp

                        Dagur 6 — Masai Mara – Watamu strönd

                        (Hægt er að kaupa sér lotbelgsferð sem flýgur yfir slétturnar og garðinn og er þá farið af stað fyrir sólarupprás og komið svo í morgunverð)

                        Eftir morgunverð erum við keyrð að flugbraut þar sem okkur er flogið til Nairóbí og síðan keyrð þaðan til Watamu strandarinnar.

                        Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalið

                        Gisting. Hemingways hotel

                            Dagar 7–8 — Watamu strönd

                            Þessa daga ætlum við að hvíla okkur og njóta sólarinnar,liggja á fallegu ströndinni og að láta stjana við okkur. Watamu ströndin er fræg fyrir hvíta sandinn og tyrkisbláa Indlandshafið. Hægt er að kaupa aukaferðir þessa daga eins og sjóstangarveiði eða snorklsinglingu.

                            Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalið alla daga.

                            Gisting.Hemingways

                                Dagur 9 — Hemingways

                                Rólegur dagur í sólinni. Um kvöldið verður farið í sólseturssiglingu um Mida Creek um borð í hefðbundnum arabískum seglbát, svokölluðum dhow. Þetta verndarsvæði sameinar kristaltært vatn, mangróveskóga og stórbrotna náttúrufegurð. Á meðan á siglingunni stendur verður borinn fram dýrindis sjávarréttamatur og drykkir, og hægt að fylgjast með fjölbreyttu dýralífi þar á meðal flamingóum og stórum hegrum.

                                Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalið.

                                Gisting. Hemingways

                                    Dagar 10–11 — Diani Beach – Tveggja daga afslöppun

                                    Eftir morgunverð er lagt af stað til suðurstrandar Mombasa, að Diani Beach. Silkimjúkur hvítur sandur, túrkísblár sjór og pálmatré meðfram ströndinni gera Diani að sannkölluðum paradísarreit þar sem Afríka mætir Indlandshafinu. Eftir hádegisverð er hægt að synda í hlýjum sjónum og slaka á í ró og næði. Um kvöldið býðst að njóta hefðbundinnar danssýningar á meðan snæðst – fullkomin leið til að blanda saman menningu, mat og afslöppun við sjóinn.

                                    Morgunverður,hádegisverður og kvöldverður innifalið

                                    Gisting. Diani reef beach resort

                                        Dagur 12 — Diani til Mombasa til Nairobi

                                        Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð þar sem heimsótt verða Gíraffa miðstöðin, Fílaathvarfið og Karen Blixen safnið. Ekið á flugvöll í tíma fyrir heimferðarflug.

                                        Innifalið er allur matur og skoðunarferðir og innan og

                                        Utanlandsflug ásamt farangri og handfarangri. Ekki innifalið allt sem ekki er tekið fram og vegarbréfsáritun til Kenýa

                                            Dagur 13 — Brottfarardagur

                                            Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð þar sem heimsótt verða Giraffa miðstöðin, Fílaathvarfið og Karen Blixen safnið. Ekið á flugvöll í tíma fyrir heimferðarflug.

                                                Gistingar í boði

                                                Athugið

                                                • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                                                • Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.