Margrét Laxness
fararstjóri
    Sikiley er stærsta og fjölbreyttasta eyjan í Miðjarðarhafinu, þar sem saga, náttúra og einstök matarmenning fléttast saman. Í október njótum við blíðunnar á þessari töfrandi eyju, skoðum fornar rústir, heimsækjum sögufrægar borgir og virðum fyrir okkur tign eldfjallsins Etnu. Hér blandast ítölsk, arabísk og grísk áhrif í sjarmerandi menningu sem lætur engan ósnortinn.

    Margrét E. Laxness hefur starfað sem grafískur hönnuður, myndlistarkennari og myndlistarmaður um árabil, en starfar einnig sem leiðsögumaður með ítalska ferðamenn á Íslandi og íslenska ferðamenn á Ítalíu. Margrét er ferðaglöð útivistarkona, með sérstakan áhuga á Ítalíu en hún þekkir landið einstaklega vel eftir að hafa stundað framhaldsnám þar og talar reiprennandi ítölsku.

    Verð frá 259.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 22. – 26. okt.

    Verð og dagsetningar

    22. – 26. okt.  5 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    519.800 kr.
    Verð frá 259.900 kr.
    per farþega
    22. – 26. okt.  5 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    369.900 kr.
    Verð frá 369.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, Flug Beint flug fram og til baka ásamt flugvallagjöldum og sköttum, Farangur Innrituð taska og handfarangur, Gisting 4 nætur á 4 stjörnu hóteli, Fæði Hálft fæði (morgunverður og 3-rétta kvöldverður á hótelinu öll kvöld), Akstur Allur akstur til og frá flugvelli á Sikiley, Skoðunarferðir Þrjár skipulagðar skoðunarferðir samkvæmt lýsingu, og Íslensk fararstjórn.
    Ekki innifalið í verði: Drykkir með mat Drykkir með kvöldverði og öðrum máltíðum eru ekki innifaldir, Hádegisverður Matur og drykkur yfir daginn, Gistináttaskattur Borgarskattur (City Tax) sem greiðist á hótelið, Þjórfé Þjórfé til bílstjóra og þjónustufólks, eða Annað Allt sem ekki er talið upp í liðnum „Innifalið í verði“.

    Ferðalýsing

    Einstök löng helgarferð Úrval Útsýnar til Sikileyjar. Beint flug báðar leiðir.

    Loftslag eyjunnar er þægilegt en sumrin geta þó orðið afar heit. Besti tíminn til að heimsækja Sikiley er á haustin og er það einmitt árstími þessarar ferðar. Landslagið á Sikiley er ægifagurt með ávölum fjöllum, hásléttum og fallegum dölum þar sem hið virka eldfjall Etna (3.330 m.y.s.) ber ósjaldan við himin.


    Sikiley, oft nefnd drottning Miðjarðarhafsins, er paradís matargerðar, menningar og loftslags. 4.000 ára saga og mörg þúsund ár af menningarlegri sameiningu hafa gert Sikiley að hrífandi blöndu af evrópskri og miðjarðarhafsmenningu.

    Leifar frá fönikískum, grískum, rómverskum, arabískum, býsönskum og normönskum tímabilum sögunnar má finna víðs vegar um eyjuna alla. Augljós merki sögunnar má glöggt sjá í arkitektúr, tungumáli, matargerð, trúarbrögðum og hefðum eyjaskeggja. Sikiley er nánast eitt stórt fornminjasafn!

    Menning eyjaskeggja er, eins og áður var nefnt, suðupottur með hráefnum úr ólíkum áttum og um margt fábrugðin öðrum menningarkimum Ítalíu. Sikileyingar eru stoltir af uppruna sínum, sögu og sérstöðu. Þeir taka lífinu með ró og eru sjálfum sér nógir um flest.

    Dagskrá

    Dagur 1, fimmtudagur, 22. október 2026 — Koma til Sikileyjar

    Lent í Catania um eftirmiðdag og rúta keyrir hópinn á 4 stjörnu hótel Sant’ Alphio Garden. (www.santalphiohotel.com). Frjáls dagur fram að kvöldmat. 3-réttaður kvöldverður á hótelinu innifalinn.

        Dagur 2, föstudagur, 23. október 2026 — Sýrakúsa og Ortigia

        Eftir morgunverð á hótelinu förum við í spennandi skoðunarferð til Sýrakúsu. Í borginni búa 116.000 manns. Borgin er fræg fyrir sínar fornu rómversku rústir. Við skoðum dómkirkjuna og hinn rómaða Arethusa-gosbrunn. Síðan er haldið áfram um barokkstræti Ortigia-eyju. Eftir hádegi smakkar hópurinn fræga sikileyska cannoli. 3-réttaður kvöldverður á hótelinu innifalinn.

            Dagur 3, laugardagur, 24. október 2026 — Etna og Taormina

            Eftir morgunverð förum við í gönguferð um Etnu, hæsta virka eldfjall Evrópu. Síðan fer hópurinn eftir Etnu-vínleiðinni, þar sem stoppað verður á sveitabæ til að smakka úrval sælkeravara, m.a. vín, hunang, pistasíur, sólþurrkaða tómata, ólífuolíu og fleira. Síðan um eftirmiðdaginn verður Taormina skoðuð með leiðsögn. Þar njótum við fagurs útsýnis yfir Etnu og Miðjarðarhafið. 3-réttaður kvöldverður á hótelinu innifalinn.

                Dagur 4, sunnudagur, 25. október 2026 — Noto og Modica

                Eftir morgunverð er það skoðunarferð til Noto, þar sem barokk-meistaraverk eyjunnar er að finna í tveimur borgum. Þar má sjá gylltar hallir og glæsilegar kirkjur raða sér meðfram götum. Síðan liggur leið okkar til Modica sem er fræg fyrir súkkulaðigerð að aztekneskum hætti og fáum við að smakka á framleiðslunni. 3-réttaður kvöldverður á hótelinu innifalinn.

                    Dagur 5, mánudagur, 26. október 2026 — Heimferð

                    Eftir morgunverð á hótelinu er frjáls tími fram að hádegi til að njóta síðustu stundanna á Sikiley, kveðja ítölsku sólina eða kaupa síðustu minjagripina. Rúta sækir hópinn á hótelið og keyrir á flugvöllinn í Catania. Flugtak er áætlað kl. 16:30 og lenda þreyttir en glaðir ferðalangar í Keflavík kl. 21:05 eftir eftirminnilegt haustævintýri.

                        Athugið

                        • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                        • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                        • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                        • Lokagreiðsla skal berast eigi síður en 10 vikum fyrir brottför