Hér gefst færi á að kynnast náið rómantík Rínarfljóts og blómlegum sveitum og bæjum sem byggst hafa á bökkum þessarar mögnuðu elfu. Sagan kallast á, í formi kastalarústa sem gnæfa yfir fljótinu og gömlum og einstaklega sjarmerandi þorpum og bæjum. Ekki að ástæðulausu að Rín hafi varpað andagift yfir skáld í ljóðum, sögum og tónlist. Leiðin liggur um blómleg héruð og ár við fallega bæi og borgir á borð við Köln, Rüdesheim, Mannheim, Strassborg, og Breisach, en siglingunni lýkur í Amsterdam eða Basel. Þessar siglingar eru í boði nær vikulega frá 15. mars-28. des. 2020. Enchanting Rhine, 22.-29. okt: Frá 768.750 kr. í C-herbergi. Captivating Rhine: 2.-9. nóv: Frá 611.660 kr.

Verð og dagsetningar

Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

Ferðalýsing

Frá Basel til Amsterdam: Enchanting Rhine

Frá Amsterdam til Basel:  Captivating Rhine

Neðangreind ferðalýsing miðast við  Enchanting Rhine frá Basel til Amsterdam en Captivating Rhine fer öfuga leið, frá Amsterdam til Basel. 

Verðdæmi á mann í tvíbýli:

Enchanting Rhine, 22.-29. okt: Frá 768.750 kr. í C-herbergi.

Captivating Rhine: 2.-9. nóv: Frá 611.660 kr.

Innifalið: Vikulöng sigling með fullu veislufæði með eðalvínum að vild, allar skoðunarferðir,  siglingaskattar, þjórfé (nema fyrir staðarleiðsögumen í skoðunarferðum), dæmigerður ferðapakki fyrir siglingu á upphafsstað (pre-tour) og viðmiðunar-flugfargjald frá Íslandi til (eða næsta flugvöll við) upphafsstaðar siglingar.

Fyrirvarar: Flugfargjald getur breyst og stilla þarf af flugdaga m.t.t. siglingar. Mögulega þarf að bæta við hótelgistingu og ferðum frá flugvelli til skiplægis. Ef bókaður er pre-tour (fyrir siglingu) og/eða post-tour (eftir siglingu) er yfirleitt innifalin móttaka við komu flugs (pre) eða fylgd til brottfararflugs (post) á völdum flugvöllum). Verð miðast við verðlista AmaWaterways 15. jan, og getur breyst og gengi bandaríikjadollars 25. janúar 2020.

Í HNOTSKURN

Í siglingum okkar kappkostum við að bjóða upp á úrval skoðunarferða sem innifaldar eru í verði. Oftast eru í boði nokkrar ferðir sem velja má milli, t.d. standard túra, hjólatúra,  gönguferða eða sérferða  á mið ýmissa áhugasviða. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytni og keppumst við að finna spennandi upplifun fyrir alla gesti okkar. 

M=Morgunverður, H=Hádegsverður, K=Kvöldverður. 


Dagskrá

Dagur 1 — Flug til Zurich

Flugið frá Keflavík leggur upp snemma að morgni og lendir í Zurich í Sviss um hádegisbil. Í Basel verður stigið um borð í lúxusfleytuna AmaWaterways. Um kvöldið er blandað geði við aðra farþega og sest til borðs og fyrstu lúxusmáltíðinni gerð góð skil, (K).

      Dagur 2 — Breisach

      Þessi falllega borg er engu lík og hér verður boðið upp á nokkrar spennandi skoðunarferðir. Fyrst skal nefna ferð til bæjarins Riqueihrm í Elsass-héraði sem hefur litlum breytingum tekið síðan á 17. öld. Ógleymanleg gönguferð um andrúmsloft fyrri alda. Einnig verður boðið upp á ferð til háskólaborgarinnar Freiburg sem stofnuð var árið 1120 þar sem m.a er að finna afar fallega dómkirkju sem sögð er bera fallegasta kirkjuturn heims. Þeir sem vilja meiri hreyfingu geta farið í hjólatúr um nágrannasveitina eða gönguferð um Svartaskóg, (M, H, K).

          Dagur 3 — Strassbourg

          Í þessari frönsku, fallegu og sögufrægu Evrópuborg verður boðið upp á ferð sem hefst í Orangerie-skrautgarðinum, síðan farið að húsi Evrópuþingsins, þá að lýðveldistorginu og gengið í gegnum hverfi sem kallað er “La Petite France”og er sem hverfinu hafi verið lyft upp úr evrópsku ævintýri og flutt þangað sem það nú stendur. Á meðan á göngunni stendur lifum við okkur inn í ævintýraheiminn uns við komum að Okkar Frúar kirkju en efst á henni trónir stór og mikil klukka sem gefur, auk þess að vera tímamælir, upp stöðu sólar og mána og ýmislegt annað í himinnhvolfinu. Þeir kraftmeiri geta hins vegar valið skemmtilegan hjólatúr undir leiðsögn, (M, H, K).

              Dagur 4 — Ludwigshafen

              Í Ludwigshafen má velja um þrjár skoðunarferðir, Fyrsti möguleikinn er að heimsækja og skoða barokkhöllina í Mannheim, eina stærstu höll álfunnar. Annar möguleiki er gönguferð um Speyer, einn elsta bæ Þýskalands, þar sem m.a. er tilkomumikil dómkirkja, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og Altpörtel, borgarhlið frá miðöldum. Loks má slást í för með hópi sem heimsækir hið magnaða Speyer tæknisafn. Síðdegis heldur siglingin áfram til Rüdesheim þar sem boðið verður til Riesling vínsmökkunar, (M, H, K).

                  Dagur 5 — Rüdesheim

                  Áður en við leggjum að við Rüdesheim siglum við um Rínarglúfur sem er fallegasti hluti árstæðis Rínar. Síðan skoðum við okkur um í vínbænum Rüdesheim og nágrenni. Þeir sem kjósa meira líf í tuskunum, ættu að fara í heimsókn í Safn sjálfspilandi hljóðfæra Siegfrieds sem er eitt stærsta safn heims sinnar tegundar. Annars konar upplifun er að fljóta meðfram vínekrum Rüdesheim á eins konar gondóla að Niederwald minismerkinu sem reist var á 8. áratug 19. aldar til að fagna stofnunar Þýskalands. Loks má velja hjólhestinn og hjóla efir bökkum Rínar, (M, H, K).

                      Dagur 6 — Köln

                      Nafli hinnar 2000 ára Kölnarborgar er hin firnastóra gottneska dómkirkja sem er á heimsminjalista UNESCO. Nútíminn hefur þó vinninginn enda er Köln nútímaleg verslunar- og fjármálaborg. Boðið verður upp á gönguferð um gamla bæinn og við skoðum m.a. dómkirkjuna og konunglega grafreiti innandyra. Þá verðu einnig boðið upp á hjólatúr á Rínarbökkum og komið við á krá þar sem smakkað verður Kölsch-bjór og Reibekuchen – kartöflupönnukökur með eplasultu, (M, H, K).

                          Dagur 7 — Amsterdam og nágrenni

                          Við komuna til Amsterdam verður farið í síkjasiglingu um einhver af 165 síkjum borgarinnar. og boðið upp á gönguferð um miðborgina. Síðdegis verður siglt út fyrir borgarmörkin og legið þar yfir nóttina, (M, H, K).

                              Dagur 8 — Amsterdam

                              Siglingunni lýkur í Amsterdam. Samdægurs má fljúga heim frá Amsterdam eða framlengja dvöl í borginni, (M).

                                  Athugið

                                  • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                  • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                  • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.