Héðinn Svarfdal Björnsson
fararstjóri
    Hvergi annars staðar á heimskringlunni finnur þú jafn mikla fjölbreytni og á Indlandi. Aðra eins litadýrð í mannlífi og menningu er vart hægt að hugsa sér. Á Indlandi kynnist þú glaðlegu og gestrisnu fólki, óvenjulega litríkum klæðaburði og andrúmslofti sem einkennist af æðruleysi og gagnkvæmri virðingu.

    Í gegnum tíðina hefur Héðinn ferðast um víða veröld, þ.m.t. til Norður- og Suður-Ameríku, Ástralíu, Asíu, Afríku og Evrópu. Hann hefur tekið að sér margar ferðir til ýmissa áfangastaða sem fararstjóri, m.a. til Singapúr, Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna, Karíbahafsins, margra landa í Mið- og Suður-Ameríku, Bandaríkjanna, Japans, Taílands, Taívans, Ástralíu, Nýja Sjálands, Frönsku Pólýnesíu auk Evrópulanda, en langoftast hefur hann farið með hópa til Kína (& Tíbet) auk Indókína(Víetnam, Kambódía og Laos). Hann dundar einnig stundum við ritstörf og árið 2006 vann Héðinn Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Háski og hundakjöt, en hún fjallar um strák sem fer í ferðalag til Kína með föður sínum og lendir þar í ýmsum ævintýrum.

    Verð frá 636.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 17. – 30. sept.

    Verð og dagsetningar

    17. – 30. sept.  14 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.273.800 kr.
    Verð frá 636.900 kr.
    per farþega
    17. – 30. sept.  14 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    732.900 kr.
    Verð frá 732.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, innanlandsflug á Indlandi á milli Jaipur og Varanasi og frá Varanasi til Delí, 15 kg farangursheimild, gisting í tvíbýli með morgunverði í tilgreindum hótelum eða sambærilegum, hádegismatur 3 daga og kvöldverður 8 kvöld, allur akstur milli staða í loftkældri bifreið auk tilgreindra skoðunarferða með aðgangseyri, og leiðsögn innlendra sérhæfðra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritun, ferðaskilríki og afgreiðslu á landamærum eða þjórfé, tryggingar, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan.

    Ferðalýsing

    Kjarnmikil ferð þar sem við upplifum allan þann fjölbreytileika sem landið hefur uppá að bjóða. Svo er náttúrulega um að ræða eldinn sjálfan, þennan frumkraft sem heimamenn beisla hvarvetna úti á götum, við matreiðslu og helgisiðum og umbreyta hráefni í mat og flytja hinn látna yfir í næsta líf.

    Leitast verður við að opna og kynna forna sögu, flókna menningu og fjölskrúðugt mannlíf lands og þjóðar sem er í raun heimsálfa hvað stærð og fjölbreytileika varðar. 

    Í þessari ferð viljum við komast að kjarnanum og ná að skilja eitthvað í þessum flókna heimi þar sem guðirnir teljast 1200, mannfólkið á annan milljarð og matarmenningin á viðlíka skala. Ferðalangar munu smakka kröftug karrí, hitta görótta gúrúa og furða sig á langri sögu og fjölskrúðugu mannlífi Indlands.

    Hafið samband við asiuferdir@uu.is til að fá nánari upplýsingar og dagskrá.

    Helstu áfangastaðir og kaflar þessarar ferðar:

    Delí


    Við hefjum ferðina í Delí, höfuðborg landsins. Ótal heimsveldi og konungdæmi hafa lagt Delí undir sig og hún hefur margoft verið hertekin, rænd og endurbyggð. Nú á dögum er Delí bræðingur fjögurra menningarvelda, þ.e. búddadóms, hindúasiðar, íslam og Bretaveldis. Þetta er ein kaótískasta borg jarðar, menn, bílar og kýr keppast um hvern fermetra á götunum en meðal töfra borgarinnar er að fylgjast með öllu þessu kraðaki og uppgötva hið dulda skipulag sem lætur allt ganga upp.

    Í Delí sjáum við ýmiss konar staði sem eru menjar um áðurnefndar fjórar menningarstefnur og minna okkur á sögu borgarinnar allt frá miðöldum til daga Mahatma Gandhis. Við sjáum lifandi markaði, eina stærstu mosku í heimi, risastóra höll breska landstjórans og fleira athyglisvert í þessari mögnuðu borg.

    Agra


    Frá höfuðborg landsins höldum við til borgar sem er algjör andstæða við ysinn og þysinn í Delí, Agra í indverska fylkinu Uttar Pradesh. Þar stofnuðu múslimar veldi Mógúla á 16. öld, um líkt leyti og Íslendingar voru að snúast til lútherstrúar, og byggðu ein glæsilegustu mannvirki jarðarkringlunnar. Þeirra frægast er án efa Taj Mahal, grafhýsi sem ekki er hægt að lýsa í orðum, hver og einn verður að upplifa það á eigin spýtur. Í Agra eru þrjú mannvirki sem eru á lista UNESCO yfir merkustu menningarminjar jarðar og munum við jafnframt skoða; Agra-virkið og hallarsvæðið Fatehpur Sikri. 

    Jaipur


    Eftir að hafa virt fyrir okkur hinar glæstustu menjar um hið múslimska Mógúlaveldi ökum við til Jaipur í fylkinu Rajasthan. Hér gefur að líta enn eitt birtingarform fjölbreytileikans á Indlandi, vel skipulögð borg sem einkennist af gullfallegum byggingum í bleikum lit, því oft kölluð „bleika borgin“. Við ríðum upp í Amber-virkið á fílsbaki, skoðum Höll vindanna, Hawa Mahal, og konungshöllina í Jaipur sem m.a. státar af garðinum Jantar Mantar sem er ein samfelld stjörnuskoðunarstöð. 

    Jaipur er jafnframt einstaklega þægileg borg til að rölta um á eigin vegum, líta í verslanir, gæða sér á indverskum bjór á einni af knæpum bæjarins og taka púlsinn á mannlífinu.

    Varanasi

    Síðasti áningarstaður okkar er um margt sá eftirminnilegasti, helga borgin Varanasi (áður Benares) við ána Ganges. Búið ykkur undir að kynnast einhverjum litríkasta, fallegasta, óskipulagðasta og mest heillandi stað á jarðríki. Engin önnur borg gefur eins sterka upplifun af hinu sanna Indlandi þar sem kallast á iðandi mannlíf og dulúðugir helgisiðir. Áin Ganges er lífæð borgarinnar, þangað fara íbúar að lauga sig, hreinsa klæði og líkama jafnt sem sál því vatnið þykir heilagt, þangað koma Indverjar hvaðanæva að til að fá andlegan innblástur og kveðja látna ástvini þar sem margir Indverjar óska þess að verða brenndir í Varanasi og að öskunni verði dreift í Ganges. Sú var jafnframt hinsta ósk bítilsins George Harrison. 

    Varanasi er um margt dálítið erfitt að melta en að sama skapi fer enginn þaðan ósnortinn

    Ferðatilhögun

    Flogið með Finnair um Helsinki. Einn flugmiði alla leið sem tryggir tengiflug og gefur kost á að innrita farangur alla leið.

    Á heimleið verður aftur flogið um Helsinki og lent í Keflavík kl 16:26 miðvikudaginn 30. september.

    Dagskrá

    Dagur 1, fimmtudagur, 17. september 2026 — Brottför

    Flogið frá Keflavík til Helsinki kl 10:00. Lent 15:25 og haldið áfram til Delí kl 18:00.

        Dagur 2, föstudagur, 18. september 2026 — Delí

        Lent 06:05. Móttaka og ekið á hótel. Morgunverður og hvíld. Ferð um Delí þar sem t.d.
        Kryddmarkaðurinn, Qutab Minar bænaturninn og Lótushofið bera fyrir augun.

            Dagur 3, laugardagur, 19. september 2026 — Gamla Delí

            Farið um Gömlu Delí á riksjó/þríhjóli. Andi Rudyard Kiplings og nýlendutíma Bretlands svífur
            yfir; farið um Jama Masjid moskuna og Rajghat minningarmerki Mahatma Gandhi.

                Dagur 4, sunnudagur, 20. september 2026 — Agra

                Ekið til Agra eftir morgunverð. Síðdegis er farið Agra virkið og víðar.

                    Dagur 5, mánudagur, 21. september 2026 — Taj Mahal

                    Að morgni er farið um Taj Mahal. Síðdegið frjálst.

                        Dagur 6, þriðjudagur, 22. september 2026 — Jaipur

                        Ekið áfram til Jaipur. Á leiðinni er komið við í Fatehpur Sikri borgarrústunum.

                            Dagur 7, miðvikudagur, 23. september 2026 — Amber-virkið og konungshöllin

                            Dagurinn hefst á fílareiðtúr upp í Amber-virkið. Síðdegis er farið um forna konungshöllina sem
                            státar m.a. af einni stærstu stjörnuskoðunarstöð í heimi.

                                Dagur 8, fimmtudagur, 24. september 2026

                                Farið um Jaipur borg sem þekkt er sem bleika borgin. Maharaja höllin o.fl.

                                    Dagur 9, föstudagur, 25. september 2026

                                    Rólegur morgun. Flogið síðdegis til Varanasi í gegnum Delhi. Ekið á hótel við komu.

                                        Dagur 10, laugardagur, 26. september 2026

                                        Fyrir morgunverð er siglt af stað um Gangesfljót. Móðurhof Indlands heimsótt.
                                        Síðdegis er gengið um markaði og torg þessarar fornu borgar.

                                            Dagur 11, sunnudagur, 27. september 2026

                                            Dagur á eigin vegum í þessari heillandi og söguríku borg. Fjöldi valfrjálsra ferða í boði.

                                                Dagur 12, mánudagur, 28. september 2026

                                                Rólegur dagur á eigin vegum í Varanasi. Valfrjálsar ferðir í boði fyrir þá sem vilja meira.
                                                Síðdegis er flogið til Delhi. Að kvöldi er farið í einstaka heimsókn á indverskt heimil þar sem
                                                haldin er einskonar kveðjuhátíð með fararstjórum og þeim sem hafa staðið að ferðinni.

                                                    Dagur 13, þriðjudagur, 29. september 2026

                                                    Dagur á eigin vegum í Delí. Margt í boði.

                                                        Dagur 14, miðvikudagur, 30. september 2026 — Heimferð

                                                        Flogið kl 07:50 til Helsinki þar sem lent er 14:25 og haldið áfram 15:45. Lent heima 16:26.

                                                            Athugið

                                                            • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                                                            • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                            • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                            • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                            • Dagskrá getur breyst vegna veðurs, ófyrirsjáanlegra ástæðna, eða góðra ástæðna/hugmynda
                                                            • Gætið tímanlega að sóttvörnum, gildistíma vegabréfa og trygginga