Þessi einstaka 6 daga ferð sameinar það besta við evrópska aðventu: glæsilega jólamarkaði í fjórum sögufrægum borgum og afslappandi siglingu um árnar Main og Rín. Við hefjum ferðina í Frankfurt, þar sem jólaandinn ríkir, áður en við stígum um borð í glæsilegt skip Viva Cruises sem verður okkar fljótandi hótel.
Á meðan skipið líður um fegurstu ár Evrópu heimsækjum við Speyer, Strasbourg og Mainz, skoðum tignarlegar dómkirkjur og njótum sannrar jólagleði á heillandi mörkuðum. Þetta er ferð fyrir þau sem vilja njóta lúxus, menningar og ómótstæðilegrar stemningar í góðum félagsskap þegar aðventan er hvað fegurst.
Verð og dagsetningar
27. nóv. – 2. des.
6 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
541.800 kr. |
Verð frá
270.900 kr.
per farþega | |
27. nóv. – 2. des.
6 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
386.900 kr. |
Verð frá
386.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, Flug með Icelandair til Frankfurt (FI520/FI521), flugvallarskattar og akstur samkvæmt dagskrá, Gisting í eina nótt á hóteli í Frankfurt og 4 nætur um borð í MS Viva Tiara í völdum klefa, Fullt fæði um borð (morgun-, hádegis- og kvöldverður) ásamt léttu snarli yfir daginn, Allir drykkir innifaldir: Sérvalið áfengi, óáfengir drykkir, hágæða kaffi, te og sódavatn í klefa, Ískápur fylltur með vatni alla daga., High Tea er boðið farþega einu sinni í ferðinni. Skemmtileg upplifun með kökum, samlokum, og te., Snyrtivörur frá Rituals í klefa, ókeypis þráðlaust net (Wi-Fi) og þjórfé fyrir áhöfn, og Íslensk fararstjórn sem fylgir hópnum alla leið.
Ekki innifalið í verði:
Matur og drykkur sem ekki er tilgreindur í dagskrá, Valfrjálsar skoðunarferðir sem skipafélagið býður upp á, Heimsóknir á söfn eða aðra ferðamannastaði sem krefjast aðgöngumiða, eða Ferðatryggingar og aðrar persónulegar tryggingar.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.

