Allar ferðir

Tenerife er stundum kölluð Paradís hinna vandlátu. Eyjan er stærst Kanaríeyjanna og býður upp á fallegar strendur, tæran sjó og glæsilega gististaði. Þar er líka að finna stórbrotna náttúru og margskonar afþreyingu. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval gististaða á góðum kjörum þaðan sem þú og þínir koma sannarlega endurnærð heim úr fríinu.

tenerife
Blómaeyjan Tenerife er stærst af sjö eyjum Kanaríeyja og er staðsett um 300 kílómetra frá ströndum Afríku. Þar er veðursæld allt árið um kring, aldrei of heitt og aldrei kalt. Á eynni miðri rís svo hið tignarlega fjall Pico del Teide, hæsta fjall Spánar.
tenerife
Meðalhiti er 20-22 gráður en á svalari dögum fer hitinn vart undir 15 stig og sjaldan yfir 30 gráður. Verðlag á Tenerife þykir nokkuð hagstætt, dæmigerð ölkrús kostar til að mynda 2-4 evrur.
Tenerife – PF
Nóg er við að vera á Tenerife. Krakkarnir skemmta sér konunglega í skemmtigörðum, sundlaugum eða á ströndinni. Á ströndinni geta krakkar og fullorðnir notið sín til fulls. Þar er hægt að liggja í leti eða sprikla í tæru hafinu. Ótal vatnaíþróttir eru í boði.
tenerife
Á kvöldin er nóg við að vera í iðandi næturlífi eyjunnar. Fjöldinn allur af fyrsta flokks veitingastöðum þar sem allir í hópnum finna sér eitthvað við sitt hæfi. Þegar líður á kvöldið er nóg í boði fyrir þá sem vilja halda stuðinu áfram enda ótal næturklúbbar þar sem hægt er að dansa fram á rauða nótt og jafnvel til morguns.
tenerife
Á Tenerife er auðvelt að versla, annað hvort á göngugötum amerísku strandarinnar eða í stórum verslunarkjörnum. Heimamenn halda einnig reglulega útimarkaði þar sem finna má ótal gersemar. Verðlag er mjög hagstætt miðað við það sem gengur og gerist heima á Íslandi og úrvalið mikið.
Tenerife – PF
Áfangastaðir okkar á Tenerife eru vinsælustu ferðamannabæir eyjarinnar, Playa de las Americas og Costa Adeje, syðst á eynni. Það er ekki að ástæðulausu enda standa þar glæsileg hótel meðfram 8 kílómetra langri strandlengjunni með útsýni yfir fagurblátt hafið til suðurs.