Allar ferðir

Puerto de la Cruz er elsti ferðamannabær Tenerife, með sögulegan kjarna, fallega göngugötur og góða blöndu af staðbundinni og alþjóðlegri menningu.

Af hverju norðurhluti Tenerife?

  • Mildara veðurfar – Það er ekki eins heitt og á suðurhluta eyjunnar, en þó sólríkt allan ársins hring.
  • Færri ferðamenn – Puerto de la Cruz er tilvalinn staður á Tenerife til að upplifa sjarma eyjunnar frá fjölmennustu ferðamannastöðunum.
  • Menningarleg upplifun – Þorp og bæir sem hafa haldið upprunalegri ímynd, hátíðahöld og matur heimamanna.
  • Stuttar vegalengdir – Auðvelt að keyra til Teide, Anaga, eða suður Tenerife fyrir fjölbreytileika.

Hvað er hægt að sjá/gera:

Loro Parque – einn vinsælasti dýragarður Kanaríeyja með mörgum af bestu sýningum Evrópu (höfrungar, mörgæsir, lundar og fleiri). Garðurinn hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna, m.a. frá TripAdvisor sem besti dýragarður heims ítrekað.

Lago Martiánez – Skemmtilegt sundlaugarsvæði með saltvatni, hannað af listamanninum César Manrique.

Gamli bærinn – Sjarmerandi með litríkum götu,, torgum og spænskum arkitektúr.

Botanical Gardens – Gróðurvin með fjölbreyttum suðrænum plöntum frá öllum heimshornum.

Playa Jardín – Svartur eldfjallasandur með vel útbúnum aðstöðum og garði í kring, einnig hannað af Manrique.

Gistingar í boði á Puerto de la Cruz

Sæki gistingar...