Allar ferðir

Bari er heillandi borg sem er staðsett á suðausturströnd Ítalíu í Púglia héraði. Bari er höfuðborg héraðsins og önnur stærsta borg Suður-Ítalíu með rúmlega 315.000 íbúa og er svo rík af list, sögu og matreiðsluhefðum að hver heimsókn er ógleymanleg upplifun. Þarna má einnig finna eina stærstu höfn Ítalíu sem gerir Bari að lykilaðila í … Continue reading “Bari, Ítalía”

Bari er heillandi borg sem er staðsett á suðausturströnd Ítalíu í Púglia héraði. Bari er höfuðborg héraðsins og önnur stærsta borg Suður-Ítalíu með rúmlega 315.000 íbúa og er svo rík af list, sögu og matreiðsluhefðum að hver heimsókn er ógleymanleg upplifun. Þarna má einnig finna eina stærstu höfn Ítalíu sem gerir Bari að lykilaðila í viðskiptum og flutningum við Adríahaf fyrir verslun og viðskipti á Suður-Ítalíu. Sjávarsýn frá Bari er undurfögur enda er borgin er orðin einn vinsælasti áfangastaður skemmtiferðaskipta og ferja frá löndum eins og Grikklandi, Króatíu, Albaníu, Serbíu, Tyrklandi, og auðvitað Svartfjallaland. Borgin þjónar sem efnahagsmiðstöð fyrir Puglia-svæðið þar sem atvinnugreinar eins og landbúnaður, framleiðsla og ferðaþjónusta gegna mikilvægu hlutverki. Sveitirnar í kringum borgina eru yfirfullar af ólífulundum og vínekrum sem gerir það að verkum að mikið af fallegum akstursleiðum eru út frá borginni. 

MATUR OG MENNING

Puglia er eitt af fremstu héruðum í heimi við framleiðslu ólífuolíu. Matargerð í Puglia sækir mikinn innblástur til Grikklands, nágrannaþjóðar Ítalíu, enda er stutt að sigla yfir á ferju til næstu hafnarbæja. Bari er paradís matgæðinga og matargerð af svæðinu er ljúffeng blanda af bragði og hefðum. Götumatur spilar stórt hlutverk í matargerð Bari og þú ættir ekki að yfirgefa borgina án þess að prófa götubita ættaðan úr héraði. Leitaðu að „panzerotti“ (steikt deig fyllt með góðgæti) og  focaccia barese, sem er dúnkennt, ólífuolíurík flatbrauð toppað með tómötum, ólífum og stundum kryddjurtum, og bragðlaukar þínir munu þakka þér. Það er fastur liður í Bari að borða slíkt og fullkomið til að maula á meðan þú skoðar þig um. Þú verður að prófa orecchiette pasta og para það með ferskum sjávarfangi og þá er komin veisla. Panzerotti er nokkurs konar ítölsk útgáfa af calzone en þetta eru djúpsteiktir vasar fylltir með osti, tómötum eða öðru góðgæti. Þar sem Bari er hafnarborg þá státar hún af fersku sjávarfangi og þar ættu allir sem slíkt elska að smakka á grilluðum fiski, kolkrabba eða sjávarfangsrisotto. Það ættu líka allir að smakka Burrata rjómaostinn sem oft er borinn fram með tómötum og basilíku og Pasticciotto sem er sætabrauð og er fullkomið í eftirrétt eða síðdegissnarl. 

Flesta veitingastaði má finna í kringum gamla bæinn en Lungomare Nazario Sauro er göngusvæði við sjávarsíðuna þar sem einnig má finna má veitingastaði með töfrandi útsýni yfir hafið. Á Via Sparano og Corso Vittorio Emanuele II eru lífleg svæði með fjölmörgum veitingastöðum og kaffihúsum svo úrvalið er fjölbreytt. 

VERSLUN Í BARI

Via Sparano er aðalverslunargatan í Bari með tískuvöruverslunum, alþjóðlegum vörumerkjum og verslunum með vörum af svæðinu. Corso Vittorio Emanuele II er önnur gata með blöndu af verslunum, kaffihúsum og veitingastöðum. Ef fólk vill fara í verslunarmiðstöð þá er Centro Commerciale Mongolfiera málið. Þar má finna allt frá tísku til raftækja, auk matarhalla til að fullnægja matarþörfum allra. Það er einnig yndislegt að rölta um Bari og kíkja á markaði sem selja vörur úr héraði eins og ferskt sjávarfang, ferskt hráefni ræktað á svæðinu eða handgerðar vörur unnar af heimamönnum. Ekki gleyma að prútta það er allt hluti af skemmtuninni og oft hægt að fá betra verð.

VERT AÐ SJÁ

Í Bari má sjá yndislega blöndu af byggingarstílum sem endurspegla ríka sögu borgarinnar og menningaráhrif. Basilica di San Nicola og Cattedrale di San Sabino er dæmi um rómönsk áhrif sem sjá má í borginni. Castello Normanno-Svevo með sterkar víggirðingar og glæsilega turna endurspegla hernaðararkitektúr Normanna, með blöndu af virkni og fagurfræði. Þó barrokk sé ekki eins algengt og í öðrum ítölskum borgum má sjá finna barokkþætti í kirkjum og höllum sem einkennast af íburðarmiklum smáatriðum og dramatískri hönnun. Teatro Petruzzelli er töfrandi dæmi um nýklassískan arkitektúr með glæsilegum súlum og vönduðum skreytingum sem vekja tilfinningu fyrir glæsileika og fágun. Þröngar götur gamla bæjarins sem nefnist Bari Vecchia eru með miðaldabyggingum sem sýna blöndu af stílum sem hafa þróast í gegnum aldirnar. Þokki þessara mannvirkja bætir við karakter borgarinnar þar sem litrík hús, þvottur á snúrum og kettir að sniglast um setja svip sinn á borgina. Gamla bænum má lýsa sem völundarhúsi þröngra gatna þar sem auðvelt er að villast og enda á fallegu torgi eða við bakarí heimamanna. Piazza Mercantile torgið er hjartað í gamla bænum þar sem hægt er að fá sér kaffi og horfa á fólk. Það er frábær staður til að drekka í sig andrúmsloftið á staðnum. Blandan af ólíkum arkitektúr skapar einstakt borgarlandslag sem segir söguna af fortíð Bari og þróun hennar í gegnum tíðina.

Trulli húsin í Alberobello eru í rúmlega klukkutíma fjarlægð frá Bari og eru vel þess virði að gera sér ferð til að sjá. Húsin eru gerð úr kalksteini og voru byggð á 14. öld en þau eru skráð á heimsminjaskrá UNESCO vegna sérstöðu sinnar. Trulli húsin eru ekki bara falleg, heldur hafa þau líka sögulegt gildi, þar sem þau voru byggð til að forðast skatta. Þau eru oft máluð í hvítum lit með táknrænum merkingum á þakinu.