Beint flug til Alicante frá og með 26. mars til 2. október. Flogið með ítalska flugfélaginu Neos. Í mars, apríl og maí er flogið á 7-8 daga fresti en í júní, júlí og ágúst tvisvar í viku.
Nánar um Albír og Altea
Öll fjölskyldan tekur ástfóstri við þennan stað frá fyrsta degi. Aðdráttarafl bæjarins er einstakt og sólríkt andrúmsloft sem heillar þá sem vilja eiga friðsæla daga. Hér er auðvelt að njóta lífsins – Góð kaffihús, girnilegur matur, líflegar krár, verslanir og alltaf nóg við að vera.
Ströndin í Albír er samblanda af sandi og steinvölum og hentar vel til sól- og sjóbaða. Fyrir þá atorkusömu er kjörið að ganga, skokka eða jafnvel renna sér á línuskautum á göngustígnum sem liggur meðfram ströndinni að hinu fallega þorpi Altea sem teygir sig frá sjónum og upp í hlíðarnar fyrir ofan. Albír er á Costa Blanca ströndinni, í 50 km fjarlægð frá Alicante og skammt frá Benidorm.
FJÖLSKYLDU- OG SKEMMTIGARÐAR
Rétt ofan við Albir er glæsilegi fjölskyldu- og skemmtigarðurinn Terra Mitica. Í garðinum er fjöldi leiktækja og glæsilegra veitingastaða. Hápunkturinn fyrir þá hugrökku er svo stórkostlegasti rússíbani Spánar. Aqualandia er fallegur og tilkomumikill vatnsskemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og Mundomar er sædýragarður með höfrunga- og sæljónasýningum.
ALTEA – BÆR LISTAMANNSINS
Altea er fallegur listamannabær í héraði Alicante og tilheyrir það Costa Blanca svæðinu. Bærinn er einstaklega heillandi með sínum hvítu húsum og auðvelt að falla fyrir sjarmanum sem hann hefur upp á að bjóða. Listamenn hafa hreiðrað um sig í Altea í auknum mæli á undanförnum árum með sínar vinnustofur, enda umhverfið undurfagurt. Selja þeir verk sín ýmist á torgi bæjarins eða í litlum verslunum sem opnar eru fram eftir kvöldi. Í Altea er fjöldi góðra veitingastaða, skemmtilegir barir og kaffihús, en allt á þetta sinn þátt í að gera andrúmsloftið líflegt og skemmtilegt.