Tenerife — Hagnýtar upplýsingar
Þjónusta á áfangastað
Fararstjóri er fulltrúi ferðaskrifstofunnar á staðnum og sinnir farþegum meðan á dvöl þeirra stendur. Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða ónægja er með íbúð/herbergi skal gera fararstjóra og/eða starfsfólki hótelsins viðvart strax, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Fararstjóri er aðgengilegur í þjónustu- og neyðarsíma á meðan dvöl ykkar stendur.
Þjónustusími fararstjóra — 00354 660-6735
Er opinn alla virka daga frá kl 09:00-17:00. Almenna frídaga er þjónustusíminn lokaður.
Viðtalstímar
Viðtalstímar fara fram í anddyri hótels, við innganginn og eingöngu á feitletruðum hótelum. Farþegar á öðrum hótelum geta komið á það hótel sem er næst þeim, eins og fram kemur. Viðtalstímar fara fram á fimmtudögum:
- Tenerife Sur (í herbergi við hliðina á móttöku) — 9:30 – 10:30
Fyrir Cristian Sur, Aguamar, Los Alisios, Ohasis aptm, Beverly Hills Heights, H10 Big Sur, Beverly Hills Club, Arona Gran, Labranda Reveron Plaza og Paradise Park - La Siesta (salur strax til hægri við innganginn)— 10:50 – 12:00
Fyrir Las Palmeras, Tigotán, Coral Suites & Spa, Parque Santiago, Coral California, Vulcano, Compostela Beach Golf, Oro Negro, Oro Blanco, Gara Suites, Green Garden, Gran Oasis Resort, Conquistador, Compostela Family Garden, Villa Cortés, Mediterranean Palace, Best Tenerife, Bitácora, Parque La Paz, Andorra, Gala, Parque de Las Americas, Olé Tropical og Coral Ocean View - Santa María — 12:10 – 13:10
Fyrir La Pinta, Flamingo, Hovima Costa Adeje, La Nina, Sábila, Hovima Panorama og Iberostar Bouganville - GF Fanabe — 13:20 – 14:20
Fyrir GF Isabel, Jacaranda, Parque del Sol, Baobab, GF Victoria, Labranda Villas Fanabe, Labranda Suites, Gran Costa Adeje , Guayarmina, Costa Adeje Palace, Playa Real, Colon Guanahani, Iberostar Antelia, Jardines Nivaria, Playaolid, Tagoro, RIU Palace, RIU Arecas, Sheraton og Hovima Jardine Caleta.
Farþegar geta að sjálfsögðu komið á önnur hótel en þau sem gefin eru upp fyrir þeirra hótel.
Neyðarsímanúmer — 00354 660-6731
Opinn alla virka daga frá kl 17:00 – 09:00 að morgni og um helgar frá kl. 17:00 á föstudegi og til kl. 09:00 á mánudagsmorgni. Neyðarsíminn er eingöngu til að nota í neyð og fyrir alvarleg tilfelli.
Ábyrgð farþega
Við minnum á að það er alltaf á ábyrgð farþega að tryggja að þeir hafi viðeigandi skjöl meðferðis og uppfylli kröfur áfangastaðarins um komu til landsins. Almenn grímuskylda er í almenningssamgöngum (rútum, strætisvögnum og leigubílum), í apótekum og á heilsugæslum (lækna- og tannlæknastofum).
Flug og flugvöllur
Flugtími til Tenerife frá Keflavík er um 5 ½ klst og flugvöllurinn heitir Tenerife South-Reina Sofía. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera einir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. Drykkir og matur er seldur um borð.
Farangur og farangursheimild
Flogið er til Tenerife með flugfélaginu Neos Air, leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri 20 kg taska á hvern farþega auk 8 kg í handfarangur (hámarks stærð á tösku í handfarangri 55x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi VERÐUR FARÞEGI AÐ GERA SKÝRSLU HJÁ IBERIA Á FLUGVELLI, RÉTT HJÁ FÆRIBANDI NR. 1. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni.
Gjaldmiðill og kreditkort
Gjaldmiðillinn á Tenerife er Evra ( EUR). Öll helstu kreditkort er hægt að nota í verslunum og hraðbönkum í borginni, en nauðsynlegt er að vita pin-númer viðkomandi korts. Ef kort tapast, hringið í neyðarnúmer kortafyrirtækjanna og látið loka kortinu: Valitor (00354) 525 2000 eða 525 2200. SaltPay (00354) 560 1600. Með tilkomu nýrra posa er nauðsynlegt að muna pin númerið sitt!!! Ath þó nokkuð af veitingastöðum og búðum taka ekki við kreditkortum heldur þarf að greiða með pening. Mælum með að nota hraðbanka sem tengdir eru við bankaútibú.
Við komu á áfangastað
Fararstjóri ferðaskrifstofunnar tekur á móti hópnum á flugvellinum á Tenerife og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið í rútu frá flugvelli og á hótel. Rútuferðirnar eru bókaðar heima á Íslandi og ekki er hægt að tryggja að laust sé, ef ekki hefur verið bókað fyrirfram. Rútuferð á hótel tekur amk 15-20 mínútur en gæti verið lengur, fer eftir því á hversu mörg hótel rútan þarf að fara á með okkar farþega. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. Ath. að ef farangur skemmist þarf að tilkynna það á flugvelli, ekki er hægt að fá skýrslu gerða eftir að völlurinn hefur verið yfirgefinn og vert að nefna að hvorki farangur né töskutjón eru bætt ef skýrsla er ekki gerð.
Rútuferð til og frá flugvelli
Ath þeir sem eru með bókaða rútuferð til og frá flugvelli, þá er gert ráð fyrir að hver farþegi ferðist með 1-2 töskur hámark, og kerrur fyrir börnin. Ef ferðast er með annan farangur t.d íþróttabúnað eða rafmagnshjólastóla er ekki víst að farangursrými rútunnar sé nægilega stórt til að hægt sé að taka við því. Ferðaskrifstofa ber ekki ábyrgð á því ef rútan getur ekki heimilað þannig farangur og því mikilvægt að fá það staðfest hjá ferðaskrifstofu fyrir ferð.
Brottför
Þeir farþegar sem eiga bókaða rútu frá hóteli á flugvöll eru upplýstir um brottfarartíma frá hverju hóteli fyrir sig með SMS daginn fyrir brottför. Aðrir farþegar bera sjálfir ábyrgð á að mæta á réttum tíma á völlinn. Hægt er að fylgjast með upplýsingum um brottför frá Tenerife á http://www.aena.es. Vert er að hafa í huga að flugtímar geta breyst frá áður útgefnum áætlunum. Stundvísi er keppikefli okkar en stundum geta orðið seinkanir í flugi sem ferðaskrifstofan fær engu ráðið.
Læknar
Sjúkrahúsið Hospiten Sur er með enskumælandi túlka og er hægt að hringja í gjaldfrjálst neyðarsímanúmer +34 900 200 143. Einnig er heilsugæslan Villar E Ibarra, í El Camisón húsalengjunni, með enskumælandi túlk, símanúmerið þar er 0034 922 777 870. Þessa heilsugæslu höfum við notað í áraraðir.
ATH! Á ferðamannasvæðinu eru spítalar og heilsugæslur yfirleitt einkareknar, m.a. þær sem við notum og þá gildir ekki bláa evrópska sjúkrakortið. Gott er að hafa á hreinu allar tryggingar áður en komið er til Tenerife og taka með sér SOS kort frá sínu tryggingafélagi. Einnig athugið að möguleiki er á að ekki allir ferðafélagar séu innifaldir í tryggingu þess sem borgar ferðina sé ferðin borguð með kreditkorti og trygging tengd því.
„Indverja“ búðirnar
Við mælum með því að versla alls ekki nein raftæki í “Indverja” búðunum á ferðamannasvæðinu. Þeir eru snillingar í að plata fólk með allskonar ráðum. Ef verslað er eitthvað í þessum búðum þá alls ekki nota debit eða kreditkort.
Drykkjarvatn
Vatnið í krönunum er drykkjarhæft í flestum tilfellum en ekki gott á bragðið. Við viljum benda fólki á að kaupa drykkjarvatn, sem inniheldur steinefni (mineral), þar sem steinefnin tapast úr líkamanum í hitanum. 1 – 2 lítrar af vatni á dag er hæfilegur skammtur ásamt öðrum drykkjum
Opnunartími banka og apóteka
Bankar eru opnir frá mánudegi – föstudaga frá 08:00 – 14:00. Hraðbankar eru víða en minnt er á að þiggja ekki aðstoð frá ókunnugum við hraðbanka og alls ekki gefa upp pin-númerið. Öruggast er að nota hraðbanka við bankaútibú, ef kort skyldi verða eftir í hraðbankanum. Opnunartími apóteka er yfirleitt frá kl 09.00 – 19.00, þó er hægt að finna apótek þar sem er opið allan sólarhringinn. Verslið eingöngu í apótekum sem eru merkt FARMACIA.
Sími, rafmagn og tölvur
Á Tenerife er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan númerinu. Ef hringja á í spænskt númer skal setja inn 0034- á undan númerinu. Þá er vert að taka fram að þó að hótelið sem dvalið er á, bjóði aðgang að þráðlausu wi-fi, að þá getur netið verið mjög hægfara.
Þjórfé
Enn er það siður á Spáni að gefa þjórfé, en aðeins ef þið eruð ánægð með þjónustuna. Vaninn er að gefa um 5% – 10% á veitingastöðum, en herbergisþernum er ágætt að gefa 3 – 5 evrur á viku allt eftir því hvort þið eruð ánægð eða ekki. Eins er siður að gefa bílstjórum einhverja smámynt í lok ferðar. Athugið að enginn er skyldugur að gefa þjórfé !!!
Leigubílar og strætisvagnar
Leigubíla er yfirleitt auðvelt að finna. Innheimt er eftir gjaldmæli en góð regla er að spyrja um verð áður en lagt er af stað. Gott er að taka niður leigubílanúmer bílsins áður en lagt er af stað ef eitthvað skyldi verða eftir í bílnum. Strætisvagna áætlun er best að skoða á síðu titsa.com þar sem er að finna allar leiðir vagnanna um eyjuna.
Íslenskur ræðismaður
Það er enginn íslenskur ræðismaður á Tenerife en sá sem er næstur er á Gran Canaria eyjunni og heitir Jaiver Betancor Jorge, Skrifstofa: Avenida de Canarias 22 – bajo Edificio Bitacora , Las Palmas Sími: 928 365 870. Netfang: canaryislands@icelandconsulate.es.
Bílaleigubílar/rafskutlur
Gaman er að ferðast um Tenerife og auðvelt að fá leigða bílaleigubíla hjá fararstjóra. Komið er með bíla á gististaði og þeir þangað sóttir að notkun lokinni. Hið sama á við um leigu reiðhjóla, mótorhjóla, vespa eða rafskutlna/hjólastóla.
Úrval Útsýn notar vafrakökur til að greina umferðina á vefnum, bæta þjónustuna og upplifun viðskiptavina. Nánar hér.