Almería — Hagnýtar upplýsingar
Þjónusta á áfangastað
Þjónustusími fararstjóra — 00354 660-6733
Opinn alla virka daga (mánudaga – föstudaga ) frá kl. 09:00 – 17:00. Heiðar Jónsson er þjónustufulltrúi.
Viðtalstímar
Viðtalstímar eru á þriðjudögum og föstudögum.
- Pierre Vacances — 10:00 – 10:30
- Roc Golf Trinidad — 10:50 – 11.30
Protur Playa Capricchio, Bahaia Serena, Playasol Aquapark, Best Roquetas og Playa Linda - Neptuno — 11:50 – 12:20
Arena Center - Best Sabinal — 12:40 – 13:10
- Mediterranio Bay — 13:30 – 14:00
Maracay og Zoraida Garden - Playadulce — í gegnum þjónustusíma
- Aquadulce — í gegnum þjónustusíma
Neyðarsímanúmer — 00354 660-6731
Opinn alla virka daga frá kl 17:00 – 09:00 að morgni og um helgar frá kl. 17:00 á föstudegi og til kl. 09:00 á mánudagsmorgni. Neyðarsíminn er eingöngu til að nota í neyð og fyrir alvarleg tilfelli.
Covid-19
Fyrir komu þína til Spánar þarf að hafa eftirfarandi í huga — þeir farþegar sem uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi, þurfa ekki neikvætt PCR próf en þurfa að hafa meðferðis fullgilt útprentað vottorð um að:
- Hafa fengið fulla bólusetningu
- Hafa fengið Covid og eru með mótefnamælinga vottorð
- Hafa fengið 1 sprautu fyrir meira en 15 dögum fyrir brottför
- Ef ofangreint á ekki við um þig þarft þú að hafa neikvætt PCR próf sem er bókað hér https://travel.covid.is/is/
- Þetta gildir um alla 12 ára og eldri
Þeir sem þurfa að hafa neikvætt PCR próf meðferðis þurfa fyrir brottför annað hvort að sækja app í símann á https://www.spth.gob.es/ eða fylla út formið á síðunni fyrir hvern farþega, ekki nota íslenska stafi. Farþegar fá sendan QR kóða þegar skráningu er lokið og hann þarf að sýna á flugvellinum á Spáni. Hægt er að skrá þessar upplýsingar 48 tímum fyrir brottför. Þetta á ekki við þá sem hafa fulla bólusteningu eða vottorð um Covid sýkingu.
Þann 9. Desember breyttust reglurnar í þá átt að allir farþegar sem koma til Spánar geta lent í úrtaki og verið beðin um að fara í Covid próf innan 48 tíma frá komu.
Ábyrgð farþega
Við minnum á að það er alltaf á ábyrgð farþega að tryggja að þeir hafi viðeigandi skjöl meðferðis og uppfylli kröfur áfangastaðarins um komu til landsins. Á öllum flugvöllum er grímuskylda, en í flugvélinni er valkvætt að nota grímu. Drykkir og matur er seldur um borð.
Læknar og veikindi
Ef um veikindi er að ræða þá vinsamlegast hringið beint í fararstjóra í þjónustusímann eða í neyðarsímann sem er opið þegar þjónustusíminn er lokaður. Einnig er hægt að hringja í 0034 950-206080, sem er númer hjá læknastofu, og svarað er á ensku allan sólarhringinn. Tannlæknir er staðsettur rétt norðan við Zoraida Garden hótelið (Dr. Hildebrand, Clinica Dental, s. 0034 950-326-452).
Skoðunarferðir
Allar skoðunarferðir verður að bóka með dagsfyrirvara. Skráning og greiðsla á ferðum fer fram í hótelheimsóknum áður en ferðin er farin, einnig er hægt að panta í gegnum þjónustusímann. Lágmarksþátttaka í ferðir er 15 manns svo ferðin sé á uppgefnu verði. Sé hætt við ferð og þjónustufulltrúum ekki tilkynnt það 24 tímum fyrir brottför skal greiða 50% af auglýstu verði ferðar.
Nánari upplýsingar um skoðunarferðir fást hjá þjónustufulltrúa.
- Mini Hollywood á miðvikudögum — pantaðir og greiddar á Hótel Fundunum
- Almería borgarferð
- Granada, Alhambra
Bílaleigubílar
Upplýsingar um bílaleigubíla á staðnum má sækja til þjónustufulltrúa. Það má líka bóka bílaleigubíl hér: https://uu.is/bilaleiga/
Veitingastaðir sem við mælum með
Við aðalgötuna (Laugaveginum), sem liggur frá Castor Park og að Tourist Center:
- Modena — fínn ítalskur
- Mestizo — nýr og spennandi
- Brazzerie Panina — uppáhalds, hollenskur og flott verð
Við strandgötuna fyrir neðan syðra hótelsvæðið:
- Chiringito Coral — flottur og vinsæll
Úrval Útsýn notar vafrakökur til að greina umferðina á vefnum, bæta þjónustuna og upplifun viðskiptavina. Nánar hér.