Í þessari ferð sækjum við heim eina fallegustu borg Spánar, Valencia. Borgin, sem er þriðja stærsta borg landsins, stendur á á gömlum merg en er frísk og framsækin strandborg. Hér má njóta menningar, arkitektúrs, gómsætra rétta, sögu, blússandi mannlífs á milli þess sem flatmaga á sandströndinni.
    Verð frá 164.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 22. – 26. maí

    Verð og dagsetningar

    22. – 26. maí  5 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    329.800 kr.
    Verð frá 164.900 kr.
    per farþega
    22. – 26. maí  5 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    214.900 kr.
    Verð frá 214.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, og 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði.
    Ekki innifalið í verði: Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, akstur til og frá flugvelli gegn gjaldi (valkvæður), eða skoðunarferðir (valkvæðar).

    Ferðalýsing

    Valencia
    Valencia
    Valencia

    Valencia

    Valencia

    Undanfarna tvo áratugi hefur þriðja stærsta borg Spánar, Valencia, tekið sannkölluðum stakkaskiptum. Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað og nú er svo komið að borgin hreiðrar um sig  á topplistum fyrir glæsilegan og nútímalegan arkitektúr í bland við fjölmargar art-nouveau byggingar sem umlykja götur og torg. Og enn eldri stílar, t.d. Gotneskur og Endurreisnarstíll, setja lit á fjölmörg minnismerki og byggingar. Þessi hringiða myndar órofa magnaða heild utan um fjölmörg metnaðarfull söfn, iðandi fjöld veitingahúsa, létt leikandi götulíf,  frábærar verslanir og kílómetralanga strönd. Allt þetta veit á einstaka sérstöðu þessarar suður Evrópsku borgar. 

    Valencia

    Sumir halda því fram að Valencia standi í skugganum af stóru systrum sínum, Madrid og Barcelona. Margir telja þó Valencia vera fallegust systranna, þarf ekki að látast og sýnast en hægt og sígandi skapar hún sinn eigin stíl og sjarma. Valencia er einstaklega ljúf heim að sækja með kraftmikla menningu, sína fínu matarhefð  og iðandi næturlíf. Íbúarnir eru framsæknir, ávallt tilbúnir að reyna eitthvað nýtt og spennandi. Hvaða borg önnur hefur tekið í sínar hendur fljótið sem rann um borgina  (Turia) og gerði oft usla með miklum flóðum, og fundið því nýjan farveg framhjá borgarstæðinu. Í gamla árfarveginum var byggður upp iðandi grænn garður sem teygir sig í gegnum byggðina þar sem skiptast á blómleg gróðursvæði og opnar grundir fyrir útivist og afslöppun. Þar á meðal má finna glæsilegar Modernista byggingar, flott söfn, langa sandströnd og gamla borgarhlutann á sitt hvorum bakkanum. Umhverfis Valencia má segja að séu samfelldir matjurtagarðar er framleiða hráefni fyrir fjölmörg veitingahús borgarinnar, ekki síst í hina vinælu Paella, eins þjóðarrétta Spánverja. Sönnun fyrir frjósemi jarðvegsins og blíðu loftslagi.

    Sumarið í Valencia er talið standa frá júní og út október. Í meðalári er yfir 20 stiga hiti í október en peysa kemur sér vel er kvölda tekur. Betri heimsóknartími er vart í boði þar sem hitinn er þægilegur, þyngsti ferðamannastraumurinn fyrir bí en borgin enn í sumarbúningi.

    Valencia

    Áhugaverðir staðir í Valencia

    Það er ærið verk að telja upp alla þá skemmtilegu staði sem er að finna í Valencia. Topp 8 listinn gæti samanstaðið af eftiröldu:

    • Borg lista og vísinda (Ciutat de les Arts y las Ciéncies) er stórfenglegt svæði og klasi framúrstefnubygginga  en innandyra er heill heimur á vísindasafni, mögnuðu IMAX bíói og einu flottasta sjávardýrasafni Evrópu með yfir 45.000 dýrategundum, að ógleymdu óperuhúsi borgarinnar.
    • Dómkirkjan er stórmerk bygging. Hér stóð upphaflega rómverskt hof, þá márísk moska og loks reis voldug kirkjan á 15.öld. Í kirkjunni er að finna bikar sem páfinn hefur viðurkennt að sé mögulega Hið heilaga gral (Holy Grail).
    • Miðborgar markaðurinn er órtrúlega litríkur og líflegur með yfir 10.000 sölubásum og borðum þar sem mest ber á fersku og safaríku grænmeti og ávöxtum. 
    • La Lonja, beint á móti markaðinum, var aðsetur silkimarkaðarsins á miðöldum en magnþrungið húsið er undir verndarvæng UNESCO.
    • Listasafnið (Museo de Bellas Artes) er oft talið eitt merkilegasta listasafn Spánar þar sem sjá má m.a. verk eftir Velázquez,  El Greco og Goya.
    • Biopark er risastór dýragarður þar sem dýrin búa við eins náttúrulegar aðstæður  og slíkir garðar á 21. öldinni gefa tilefni til. Hér er sjónarhornið fyrst og fremst á náttúru og dýr Afríku þar sem kynnast má vistkerfum grassléttanna, frumskógum Madagaskar og Mið-Afríku, auk margra þekktra en sjaldgæfra dýrategunda.
    • Nýlistasafnið (IVAM) er víðfrægt fyrir fjölbreytni og nýstárlega framsetningu þar sem engir tveir dagar eru eins.
    • Sögusafn Valencia (Museo d’Historia de Valencia) er skemmtilegt og gagnvirkt safn um sögu borgarinnar. Afar skemmtileg framsetning gerir safnið að einu því vinsælasta í Valencia.

    Athugið

    • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.