Í Thailandi getur þú notið þín á hvítum ströndum, skoðað alls kyns áhugaverða staði, til dæmis Buddha hof, farið í friðaðan fílagarð og borðað gómsætan mat.
KUALA LUMPUR
Í Kuala Lumpur mælum við með því að skoða Petronas turnana sem eru einkennandi fyrir staðinn, skoða hof, fara á markaði og fara í Batu hellana til að skoða glæsilega styttu af Lord Murugan.
SINGAPORE
Í Singapore gefst tækifæri til að upplifa stórborgarstemninguna á nýjan hátt. Þar er meðal annars að finna Marina Bay Sands Hotel sem er 191 m há bygging með skipi á toppnum. Þar er einnig fjöldi skemmtilega götumarkaði og góðan mat.
BALI
Bali er perla Indónesíu þar sem tækifæri gefst til að liggja á hvítum ströndum, snorkla í blátærum sjó, heimsækja frumskóga, skoða heilög hof, sörfa, stunda jóga og borða gómsætan mat. Bali er einn af okkar vinsælustu áfangastöðum.
CAIRNS
Á Cairns mælum við með því að leigja húsbíl og keyra niður eftir vesturströnd Ástralíu. Þar er upplagt að snorkla í kóralrifinu og njóta hvítra stranda.
BRISBANE
Brisbane er æðislegur staður þar sem stórborg og strandlíf mætast. Þar er vinsælt að sörfa og því getur verið skemmtilegt að rifja upp taktana frá sörfinu á Bali. Þar eru öldur fyrir alla, byrjendur jafnt sem lengra komna.
SYDNEY
Sydney er skemmtileg stórborg sem fæstir vilja missa af. Þar er heimsfrægt óperuhús sem vert er að skoða og fyrir þá sem hafa áhuga getur verið gaman að fara á óperusýningu.
Verð frá 262.900 kr á mann
Athugið
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.