Halldór E. Laxness
fararstjóri
    Gist verður í 2 nætur á góðu 4* miðsvæðis í Feneyjum. Vikulöng sigling um Miðjarðarhafið sem hefst og endar í Barcelona. Að siglingu lokinni verður einnig gist nálægt Feneyjum í 1 nótt. Morgunverður er innifalinn alla daga á hótelinu.

    Halldór E. Laxness hefur áratuga reynslu af fararstjórn og muna eflaust margir eftir honum frá Lignano og Sikiley á Ítalíu, en einnig sælkeraferðum hans um Frakkland, Grikkland og Ítalíu. Hann hefur ferðast mikið og átt erindi í flestar heimsálfur, sem dæmi má nefna að hann stundaði nám í leiklist á Ítalíu og í Bandarríkjunum og starfaði á Spáni, Frakklandi, Íslandi og Kanada sem leikari og leikstjóri. Núna kennir hann m.a. leikaranemum Listaháskóla Íslands um gríska leikhúsið og sögu forngrikkja.

    Verð frá 494.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 23. apríl – 3. maí

    Verð og dagsetningar

    23. apríl – 3. maí  11 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    989.800 kr.
    Verð frá 494.900 kr.
    per farþega
    23. apríl – 3. maí  11 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    769.900 kr.
    Verð frá 769.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, hálft fæði, vikusigling um Miðjarðarhafið með Costa Cruise, hafnargjöld, og þjónustugjöld um borð.
    Ekki innifalið í verði: Matur annar en morgunverður á hótelinu, þjórfé og ferðamannaskattur í Feneyjum, drykkjarpakki um borð í siglingu en hægt er að kaupa hann aukalega, eða annað sem ekki er talið upp í lýsingu.

    Ferðalýsing

    Costa Deliziosa

    Sigling um Miðjarðarhafið

    Á Costa Deliziosa má finna 7 sundlaugar og heita potta, 5 veitingastaði og snakkbari ásamt glæsilegum sölum þar sem morgunverðir, hádegisverðir og kvöldverðir eru framreiddir.   Allir ættu að finna bar eða setustofu við sitt hæfi en þeir eru 12 talsins.  Á skipinu má finna leikhús, íþróttasvæði, útivistarsvæði, líkamsræktarstöð, verslanir og margt fleira.

    Dagskrá

    Dagur 1, fimmtudagur, 23. apríl 2026 — Komudagur

    Flogið til Feneyja með Lufthansa kl. 14:20 frá Keflavík með millilendingu í Frankfurt. Lent á Feneyjarflugvelli kl. 23:00 að staðartíma.

    Frá flugvellinum tökum við vatnaleigubát (e. Water Taxi) yfir að Markúsartorgi og komum okkur fyrir á Hotel Cavalletto e Doge sem er yndislegt 4 stjörnu hótel staðsett um 100 metrum frá Markúsartorginu. Herbergin eru innréttuð í feneyskum stíl og er fallegt útsýni yfir síkin allt um kring.

        Dagur 2, föstudagur, 24. apríl 2026 — Feneyjar

        Frjáls dagur í Feneyjum og tilvalið að rölta um og njóta alls hins fagra sem Feneyjar hafa upp á að bjóða. Borgin er oft nefnd drottning Adríahafsins og er einstök upplifun að sigla um kanala á gondólum og virða fyrir sér stórhýsi og glæsihallir liðinna tíma. Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og er helsti ferðamáti íbúa þar, enn sem fyrr, að sigla. Hér er yndislegt að vera og af nógu að taka.

            Dagur 3, laugardagur, 25. apríl 2026 — Siglt af stað

            Að morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. ð morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. Vatnaleigubátur flytur hópinn að Port Marghera þaðan sem skemmtiferðaskipið siglir, en mælt er með því að vera kominn þremur tímum fyrir brottför. Skipið siglir af stað kl. 17:00.

                Dagur 4, sunnudagur, 26. apríl 2026 — Bari

                Komið er til Bari á Ítalíu kl. 14:00.

                Bari er höfuðborg Pugliahéraðsins á Suður-Ítalíu. Upprunalega var Bari grísk nýlenda en varð síðar mikilvægur ítalskur verslunarstaður. Elsti borgarhlutinn (Bari Vecchio) er á höfða milli gömlu og nýju hafnarinnar en í honum er eins tíminn hafi staðið í stað. Þar má finna þröngar litlar götur, börn í fótbolta, eldri menn að reykja og spjalla, eldri konur að hengja upp þvott og 40 kirkjur! Ekki gleyma að rölta um gömlu höfnina þar sem fiskibátarnir koma að landi með feng dagsins og selja fenginn beint úr bátnum. Í Bari má einnig finna lengsta hafnargarð Ítalíu sem byggður var af Mussolini á sínum tíma, Longomare. Fjöldi skoðunarferða er í boði á vegum Costa Cruise sem keyptar eru fyrir eða á meðan siglingu stendur.

                Lagt úr höfn kl. 20:00.

                    Dagur 5, mánudagur, 27. apríl 2026 — Kotor

                    Komið er til Kotor í Svartfjallalandi kl. 08:00 og er eindregið mælt með því að vera úti þegar siglt er inn Kotorflóann, fegurðin er einstök! Borgin Kotor tilheyrði Rómaveldi allt frá 3.öld fyrir Krist. Á býsanska tímabilinu var bærinn víggirtur með glæsilegum borgarmúrum sem teygja sig eina 4,5 km meðfram strönd Kotorflóa. Elsti hluti borgarinnar er á heimsmynjaskrá UNESCO. Hægt er að velja um fjölda skoðunarferða til kaups hjá Costa Cruise.

                    Siglt af stað kl. 17:00.

                        Dagur 6, þriðjudagur, 28. apríl 2026 — Korfu

                        Grikkir kalla hana Kerkyra, en annars er hún þekkt sem Korfu, og er hrífandi eyja sem í áraraðir hefur glatt gesti sína með náttúrutöfrum, glæsiströndum og einstakri upplifun. Komið er til Corfu kl.09:00 að morgni. Eyjan á sér heilmikla sögu, en þar hafa bæði Frakkar, Bretar og Ítalir ráðið ríkjum. Fornar byggingar og minjar standa þar enn, vel varðveittar. Má þar nefna gamla bæinn í Corfu Town sem er á heimsminjaskrá UNESCO, gamla virkið (Palaio Frourio), og nýja virkið (Neo Frourio). Eins og áður þá er fjöldi skoðunarferða í boði sem hægt er að kaupa hjá Costa Cruise.

                        Siglt af stað kl. 19:00.

                            Dagur 7, miðvikudagur, 29. apríl 2026 — Frjáls dagur á sjó

                            Frjáls dagur.

                            Dagur 8, fimmtudagur, 30. apríl 2026 — Dubrovnik

                            Komið er til Dubrovnik kl. 08:00 að morgni en Dubrovnik er ein aðal menningar- og listaborg Króatíu. Lífleg og sögufræg borg sem hefur að geyma fjölmargar glæstar byggingar frá endurreisnar- og barokktímabilunum. Gaman er að skoða gömlu virkisveggina sem ná utan um elsta hluta hennar. Hægt er að velja um fjölda skoðunarferða sem hægt er að kaupa hjá Costa Cruise.

                            Siglt er af stað kl. 18:00.

                                Dagur 9, föstudagur, 1. maí 2026 — Split

                                Síðasti áfangastaður siglingarinnar er Split í Króatíu áður en siglt verður aftur til Feneyja. Komið er að höfn kl. 08:00 og má hér finna meðal annars rúmlega 1700 ára gamla höll rómverska keisarans Diocletian, en höll þessi var notuð sem tökustaður í Game of Thrones á sínum tíma. Þröngar götur með tónlistarmönnum, skemmtilegir barir og litlar verslanir, götulistafólk og margt fleira ber fyrir augu í þessari fallegu borg. Fjöldi skoðunarferða í boði hjá Costa Cruise.

                                Siglt af stað kl. 18:00.

                                    Dagur 10, laugardagur, 2. maí 2026 — Feneyjar

                                    Komið er til Port Marghera kl. 09:00 og bíður þá rúta eftir hópnum sem flytur okkur til smábæjarins Quarto D´Altino þar sem við innritum okkur á Hotel Crowne Plaza Venice East. Crowne Plaza er gott 4 stjörnu hótel, staðsett rétt hjá lestarstöð bæjarins en þaðan er hægt að taka lest beint yfir til Feneyja fyrir 3,50 eur á mann. Nafn bæjarins er dregið af rómverska bænum Altino (Altinum) frá tímum Rómaveldis, en sagan segir að bærinn hafi verið stofnaður árið 452 af flóttamönnum frá Feneyjum sem voru að flýja undan Atla Húnakonungi.

                                    Hér verður gist síðustu nóttina og slakað á eftir ævintýri síðustu daga.

                                        Dagur 11, sunnudagur, 3. maí 2026 — Heimferð

                                        Rúta flytur hópinn á flugvöllinn um kvöldið en brottför frá Feneyjarflugvelli kl. 20:15 að staðartíma með LH329 til Frankfurt og flogið þaðan og lent í Keflavík kl. 23:30.

                                            Gistingar í boði

                                            Á Costa Deliziosa má finna 7 sundlaugar og heita potta, 5 veitingastaði og snakkbari ásamt glæsilegum sölum þar sem morgunverðir, hádegisverðir og kvöldverðir eru framreiddir.   Allir ættu að finna bar eða setustofu við sitt hæfi en þeir eru 12 talsins.  Á skipinu má finna leikhús, íþróttasvæði, útivistarsvæði, líkamsræktarstöð, verslanir og margt fleira.

                                            Athugið

                                            • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                            • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                            • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                            • Ath: Innifalið í verðinu eru bæði early check in á fyrsta degi og late check out ásíðasta degi. Farþegar eiga því hótelherbergið til umráða allan tímann á meðan á dvölinni stendur.
                                            • Hægt er að kaupa drykkjarpakka sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, gosi, bjór, víni og fleiru. Í drykkjarpakkanum er innifalið: VERGNANO teas and herbal teas, coffee and cappuccino, UNLIMITED SAN BENEDETTO 0.5 l water bottles, AN UNLIMITED selection of wines by the glass, Pepsi and 7UP soft drinks and LOOZA fruit juices, HEINEKEN, CORONA and BECK'S draught beers, APEROL SPRITZ and CRODINO aperitifs, as well as mocktails, Any cocktail available at the bar, as well as molecular cocktails, Bitter liqueurs and spirits such as AMARO DEL CAPO, AVERNA, DISARONNO, SAMBUCA, as well as a PREMIUM selection of spirits