Halldór E. Laxness
fararstjóri
    Gist verður í 1 nótt á góðu 4* miðsvæðis í Barcelona. Vikulöng sigling um Miðjarðarhafið sem hefst og endar í Barcelona. Að siglingu lokinni verður einnig gist í Barcelona í 2 nætur. Heilsdagsskoðunarferð um borgina er innifalin í verði og morgunverður alla daga á hótelinu.

    Halldór E. Laxness hefur áratuga reynslu af fararstjórn og muna eflaust margir eftir honum frá Lignano og Sikiley á Ítalíu, en einnig sælkeraferðum hans um Frakkland, Grikkland og Ítalíu. Hann hefur ferðast mikið og átt erindi í flestar heimsálfur, sem dæmi má nefna að hann stundaði nám í leiklist á Ítalíu og í Bandarríkjunum og starfaði á Spáni, Frakklandi, Íslandi og Kanada sem leikari og leikstjóri. Núna kennir hann m.a. leikaranemum Listaháskóla Íslands um gríska leikhúsið og sögu forngrikkja.

    Verð frá 499.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 28. mars – 8. apríl

    Verð og dagsetningar

    28. mars – 8. apríl  12 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    999.800 kr.
    Verð frá 499.900 kr.
    per farþega
    28. mars – 8. apríl  12 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    699.900 kr.
    Verð frá 699.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, vikusigling um Miðjarðarhafið með Costa Cruise með hálfu fæði, og hafnargjöld og þjónustugjöld um borð.
    Ekki innifalið í verði: Þjórfé og ferðamannaskattur í Barcelona, drykkjarpakki um borð í siglingu en hægt er að kaupa hann aukalega, eða annað sem ekki er talið upp í lýsingu.

    Ferðalýsing

    Dagskrá

    Dagur 1, laugardagur, 20. september 2025

    Beint flug með Icelandair til Barcelona. Brottför frá Keflavík kl.08:25 með FI596, lending í kl.13:45 að staðartíma. Rúta keyrir hópinn á gott 4 stjörnu hótel miðsvæðis í Barcelona. Frjáls tími um kvöldið.

        Dagur 2, sunnudagur, 21. september 2025

        Frjáls dagur í Barcelona en einnig er hægt að bóka valfrjálsa skoðunarferð um borgina.

            Dagur 3, mánudagur, 22. september 2025

            Að morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. Rúta flytur hópinn frá hóteli niður á höfn þaðan sem skemmtiferðaskipið Costa Smeralda siglir, en mælt er með því að vera kominn þremur tímum fyrir brottför. Skipið siglir af stað kl.19:00. Nánari upplýsingar um tímasetningar rútu og þ.h. koma síðar.

                Dagur 4, þriðjudagur, 23. september 2025 — Frjáls dagur á sjó

                    Dagur 5, miðvikudagur, 24. september 2025 — La Goulette

                    Kl.08:00 verður lagt að höfn í La Goulette (á arabísku: Halq al-Wādī) sem er lítil, lífleg hafnarborg í Túnis, rétt fyrir utan höfuðborgina Tunis. Hún hefur lengi gegnt mikilvægu hlutverki sem höfn og aðgangsstaður fyrir borgina, bæði frá hinu sögulega og menningarlega sjónarhorni. La Goulette hefur ríka sögu sem nær aftur til tímabils Ottómana og var einnig mikilvæg á nýlendutíma Frakka. Í borginni hefur verið fjölbreytt samfélag þar sem Múslimar, Gyðingar og Kristnir bjuggu í sátt og samlyndi. Þetta menningarsamspil endurspeglast í gömlu byggingunum, matargerðinni og hátíðum sem haldnar eru á staðnum. Bærinn er sérstaklega frægur fyrir sjávarrétti – þar má finna fjölmargar sjávarréttaveitingastaði með ferskum fisk og krabbadýrum beint úr höfninni. Promenadugatan meðfram ströndinni er vinsæl hjá bæði heimamönnum og ferðamönnum, þar sem fólk nýtur góðrar máltíðar og sólarlagsins yfir hafinu. Siglt af stað kl. 16:00.

                        Dagur 6, fimmtudagur, 25. september 2025 — Palermo

                        Komið er til Palermo kl.8 að morgni og er hægt að velja um fjölda skoðunarferða til kaups hjá Costa Cruise. Höfuðborg Sikileyjar hefur verið menningarlegur suðupottur síðan Fönikíumenn og Grikkir börðust um hana á 5. Og 6.öld f.Kr. Sikiley, einu sinni rómversk, svo býsönsk, arabísk, normönsk og að lokum ítölsk, sameinaðist meginlandi Ítalíu loks árið 1861. Dásamlegir markaðir, fögur torg, aldagamlar kirkjur ásamt stórbrotinni sögu og menningu! Hér er margt að skoða og sjá. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borg hjá Costa Cruise eða kanna á eiginvegum. Lagt er úr höfn kl.16:30.

                            Dagur 7, föstudagur, 26. september 2025 — Civitavecchia / Róm

                            Komið til Civitavecchia kl. 08:00 að morgni og heill dagur í Rómarborg er framundan. Meðal þess sem hægt er að skoða eru Spænsku þrepin; breiðustu tröppur Evrópu, en breska ljóðskáldið John Keats bjó og lést í einu húsanna við þessi þrep. Húsið er safn í dag. Næst má ganga að Trevi gosbrunninum í hjarta Rómarborgar sem er einn sögufrægasti gosbrunnur í heimi, rómaður fyrir fegurð og frábæra stemningu, og til hins fræga Pantheon hofs en súlurnar sextán sem styðja við þakið koma alla leið frá Egyptalandi en þaðan voru þær fluttar með erfiðismunum á sleðum, fluttar yfir hafið og dregnar inn í Rómaborg. Hver súla vegur um 60 tonn. Ekki þykir síður merkilegt að undir þykkum marmaranum liggja tveir konungar Ítalíu og ítalski málarinn og listamaðurinn Raphael. Mælum mað að enda göngunni á torginu fögru, Piazza Navona sem hefur allt til að bera, þrjá dýrðlega gosbrunna, Bernini skúlptúra og fjölmörg kaffihús þar sem hægt er að setjast niður og njóta mannlífsins.
                            Brottför frá Civitavecchia kl. 19:00.

                                Dagur 8, laugardagur, 27. september 2025 — Savona

                                Kl.08:30 verður lagt að höfn í Savona sem staðsett er í Liguria héraðinu á Ítalíu.
                                Liguria héraðið er þekkt sem ítalska rívíeran vegna fjölmargra strandbæja sem þekja strandlengjuna beggja vegna við Genoa sem er höfuðborg héraðsins. Savona er sannur gimsteinn hvað varðar list, sögu og menningu en borgin hefur sannarlega upplifað tímana tvenna. Einn frægasti íbúi Savona er Kristófer Kólumbus en skoða safn þar sem er í enduruppbyggingu af húsinu sem hann bjó í.
                                Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð hjá Costa Cruise en einnig er hægt að skoða borgina á eigin vegum.
                                Siglt er frá Savona kl.17:30.

                                    Dagur 9, sunnudagur, 28. september 2025 — Marseille

                                    Komið er til Marseille kl.09 að morgni og verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að skoða borgina á eigin vegum. Munið bara að vera komin tímanlega tilbaka um borð þegar skipið fer úr höfn kl.18.
                                    Marseille er elsta borg Frakklands, stofnuð af Grikkjum árið 600 f.Kr. Frábær staðsetning borgarinnar við Miðjarðarhafið hefur frá upphafi stofnunar hennar gert hana að vinsælum áningarstað og má þar sjá greinileg áhrif frá jafnvel mjög fjarlægum menningarheimum. Marseille, stundum kölluð “Napólí Frakklands”, er litrík og glaðleg borg en í henni er mikil matarmenning og margt áhugavert að sjá.
                                    Brottför frá Marseille kl. 18:00.

                                        Dagur 10, mánudagur, 29. september 2025 — Barcelona

                                        Komið er til Barcelona kl.09:00 og bíður þá rúta eftir hópnum sem flytur okkur á hótelið. Frjáls tími í borginni það sem eftir er af deginum.

                                            Dagur 11, þriðjudagur, 30. september 2025 — frjáls dagur í Barcelona

                                            Fátt jafnast á við að rölta um forn stræti Gotneska hverfisins, rölta um Barceloneta hverfið við sjóinn eða jafnvel fara á ströndina.
                                            Í borginni er bæði Picasso safnið og hið nýstárlega samtímalistasafn Macba. Ennfremur eru margar litríkar og stórmerkilegar byggingar eftir Antoní Gaudí sem og dómkirkjan fræga Sagrada Familia sem enn er ekki búið að klára, en bygging hennar hófst árið 1882. Hvort heldur sem valið er að rölta um þröngar götur í Barrio Gothico, þræða tapasbari og rölta um Römbluna, versla í tískuverslunum eða kíkja á listasafn, þá er Barcelona borgin fyrir þetta allt saman og miklu meira!

                                                Dagur 12, miðvikudagur, 1. október 2025 — Heimferð

                                                Um hádegisbil sækir rúta hópinn og keyrir út á flugvöll.
                                                Brottför kl.15:45 með Icelandair flugi FI597, lending í Keflavík kl.18:20 að staðartíma.

                                                    Athugið

                                                    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                                                    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                    • • Hægt er að kaupa drykkjarpakka sem inniheldur ótakmörkuð glös af vatni, gosi, bjór, víni og fleiru. Í drykkjarpakkanum er innifalið: VERGNANO teas and herbal teas, coffee and cappuccino, UNLIMITED SAN BENEDETTO 0.5 l water bottles, AN UNLIMITED selection of wines by the glass, Pepsi and 7UP soft drinks and LOOZA fruit juices, HEINEKEN, CORONA and BECK'S draught beers, APEROL SPRITZ and CRODINO aperitifs, as well as mocktails, Any cocktail available at the bar, as well as molecular cocktails, Bitter liqueurs and spirits such as AMARO DEL CAPO, AVERNA, DISARONNO, SAMBUCA, as well as a PREMIUM selection of spirits