Rakel Loga
fararstjóri
    Gardavatnið er stærsta stöðuvatn Ítalíu umkringt heillandi bæjum og töfrandi fjöllum. Þar er hægt að hjóla eða slaka á eins og sannur Ítali. Bæirnir umhverfis vatnið, eins og Sirmione og Riva del Garda eru fullir af sögu, sætum kaffihúsum og stórkostlegu útsýni. Auk þess eru hægt að stunda fullt af vatnaíþróttum þarna á svæðinu. Að skoða Gardavatnið á hjóli er ótrúleg leið til að upplifa náttúrufegurð, töfrandi landslag og heillandi bæi sem þetta svæði hefur upp á að bjóða. 

    Rakel er íþróttafræðingur að mennt og starfar í dag sem verslunarstjóri í Lauf á Íslandi, styrktarþjálfari og knattspyrnuþjálfari. Rakel hefur hjólað nokkuð mikið og síðastliðin ár keppt bæði í götuhjólreiðum og Enduro fjallahjólreiðum. Hreyfiferð í góðum félagsskap er að hennar mati besta fríið sem völ er á.

    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 12. – 21. sept.

    Verð og dagsetningar

    12. – 21. sept.  10 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    799.800 kr.
    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    12. – 21. sept.  10 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    449.900 kr.
    Verð frá 449.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 9 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, enskumælandi hjólaleiðsögn í öllum dagsferðum samkvæmt ferðalýsingunni, 2 x hádegisverður, vínsmökkun, og 8 daga rafhjólaferð.
    Ekki innifalið í verði: Matur annar en morgunverður, city tax (greiðist á staðnum), aðrar skoðunarferðir (valkvæðar), eða þjórfé.

    Ferðalýsing

    Dagskrá

    Dagur 1 — BROTTFARARDAGUR

    Við hefjum þessa skemmtilegu rafhjólaferð á flug með Neos, NO5958, frá Keflavík til Verona kl. 09:00, lent í Verona kl. 15:00. Þangað sækir rúta hópinn og keyrir hann á gott 4 stjörnu hótel við Gardavatn.

        Dagur 2 — HJÓLREIÐABRAUTIN VIÐ MINCIO ÁNA OG TORTELLINI HÁDEGISVERÐUR

        Í dag verður hjólað um fallegu þorpin við suðurhluta Gardavatns og farið á hjóli frá Peschiera til Borghetto sem er aðlaðandi miðaldaþorp með fallegri 14. aldar brú. Hádegishlé er tekið í Valeggio þar sem við fáum hinn fræga Tortellini rétt sem er sérréttur af svæðinu. Ferðin heldur áfram til sögulegu bæjanna Solferino, Castellaro Lagusello og San Martino della Battaglia. Til baka verður farið til Peschiera í gegnum vínekrur sem eru heimili hins fræga Lugana hvítvíns.

        Vegalengd dagsins 40 km
        Lóðréttur hæðarmunur: 230 m
        Erfiðleikastig: auðvelt til miðlungs
        Engin rúta

            Dagur 3 — VERONA

            Fyrsti hluti skoðunarferðar dagsins fer fram á rólegum hliðarvegum þar sem hjólað er í gegnum fallegt landslag. Við heimsækjum borg Rómeó og Júlíu sem er á UNESCO heimsminjaskrá og þar dáumst við að hinu ótrúlega fallega rómverska hringleikahúsi og fallegum byggingum við Piazza delle Erbe. Okkur gefst tími til að njóta vínglass á ekta Osteria eða fá okkur göngutúr meðfram Adige ánni með sínum sérkennilegu brúm.

            Vegalengd dagsins: 40 km
            Lóðréttur hæðarmunur: 180m
            Erfiðleikastig: auðvelt til í miðlungs

                Dagur 4 — FRJÁLS DAGUR

                Rafhjól eru enn til umráða fyrir gesti.

                    Dagur 5 — FRJÁLS DAGUR

                    Rafhjól eru enn til umráða fyrir gesti.

                        Dagur 6 — VÍNEKRUR AUSTURSTRANDARINNAR

                        Við byrjum daginn á hjólaferð um aflíðandi hæðir og umhverfi Bardolino. Við stoppum til að fá okkur göngutúr á fallegu göngusvæð í Bardolino sem er mjög vinsæll dvalarstaður við vatnið og frægur fyrir frábær rauðvín. Við hjólum í gegnum heillandi vínekrur og ólífulundi að dæmigerðri Trattoria (nokkurs konar veitingahús) þar sem við njótum hádegisverðar með aðföngum af svæðinu. Við förum til baka til Peschiera á hjóli meðfram bænum Lazise.

                        Vegalengd dagsins: 45 km
                        Lóðréttur hæðarmunur 480 m
                        Erfiðleikastig: miðlungs
                        Engin rúta.

                            Dagur 7 — FRJÁLS DAGUR

                            Rafhjól eru enn til umráða fyrir gesti.

                                Dagur 8 — VESTURSTÖNDIN OG GARDA CLASSICO VÍNSVÆÐIÐ

                                Dagurinn hefst á Valtenesi hjólaleiðinni og í okkar fyrsta stoppi heimsækjum við Sirmione bæinn og skoðum þá sérstaklega gamla miðbæinn þar. Síðan verður farið framhjá hinum glæsilega bæ Desenzano og farið eftir slóð sem liggur um einstakt landslag milli vínekra og meðfram litlu heillandi þorpi og gömlum kastala. Ferðinni lýkur í sögulegri víngerð til að smakka á rauðvíni af svæðinu “Garda Classico DOC”.

                                Vegalengd dagins: 45 km
                                Lóðréttur hæðarmunur: 350 m
                                Erfiðleikastig: miðlungs

                                    Dagur 9 — FRJÁLS DAGUR

                                    Rafhjól eru enn til umráða fyrir gesti.

                                        Dagur 10 — BROTTFARARDAGUR

                                        Rúta sætir hópinn og keyrir á flugvöllinn í Verona. Brottför kl. 20:00 með Neos, NO7959, lending í Keflavík kl. 22:20 að staðartíma.

                                            Gistingar í boði

                                            Poiano Resort er glæsilegt 4 stjörnu hótel í bænum Garda við Gardavatnið. Hótelið er staðsett í hlíð, umkringt gróðri og fallegu landslagi.  2 sundlaugar, heilsulind og fjöldi  afþreyingu tryggir gestum góða dvöl.

                                            Gisting:

                                            Herbergin eru smekklega hönnuð og vel búin öllum helstu þægindum m.a. loftkælingu, sjónvarpi, síma og örrygishólfi, einnig hafa baðherbergin sturtu/baðkar og hárþurrku. Ókeypis wifi er á hótelinu öllu.

                                            Aðstaða-Afþreying:

                                            Á hótelinu eru 2 sundlaugar, heilsulind með aðgang að gufubaði, heitum potti og nuddi gegn gjaldi. Einnig er tennisvöllur, billiard borð og pílukast sem hægt er að njóta gegn gjaldi. Fyrir börnin er krakkaklúbbur, leikvöllur og leikherbergi.

                                            Á kvöldin er boðið uppá skemmtidagskrá.

                                            ATH vinsamlegast kynnið ykkur vel samgöngur til og frá Verona.  Ef þið eruð ekki á bíl þá er nauðsynlegt að athuga hvernig almenningssamgöngur milli Garda og Verona virka.

                                            Veitingar:

                                            Veitingastaður er á hótelinu og hefur ítalskar, miðjarðarhafs og evrópska rétti. Einnig er bar og snarlbar með léttum veitingum.

                                            Staðsetning:

                                            Poiano Garda Resort er staðsett á hlíð í Garda og er umkringd gróðri og fallegu útsýni. Veitingastaðir og barir eru í stuttu göngufæri frá hótelinu, Jungle Adventure Park er í 5 km fjarlægð, golfvöllur innan 3 km og 24 km i Verona flugvöll.

                                            Aðbúnaður:

                                            Sturta/baðkar

                                            Sundlaugar

                                            Örrygishólf

                                            Heilsulind

                                            Heitur pottur

                                            Gufubað

                                            Veitingastaður

                                            Bar

                                            Skemmtidagsrká

                                            Loftkæling

                                            Ókeypis wifi

                                            Sjónvarp

                                            Sími

                                            Hárþurrka

                                            Tennisvöllur

                                            Krakkaklúbbur

                                            Leikherbergi

                                            Nudd

                                            Athugið

                                            • Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                            • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                            • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                            • ATH ferðaskrifstofan áskilur sér rétt að að breyta gistingu í ferð ef þörf er á fyrir sambærilega gistingu með litlum fyrirvara.
                                            • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
                                            • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
                                            • Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.