Gardavatnið er stærsta stöðuvatn Ítalíu umkringt heillandi bæjum og töfrandi fjöllum. Þar er hægt að hjóla eða slaka á eins og sannur Ítali. Bæirnir umhverfis vatnið, eins og Sirmione og Riva del Garda eru fullir af sögu, sætum kaffihúsum og stórkostlegu útsýni. Auk þess eru hægt að stunda fullt af vatnaíþróttum þarna á svæðinu. Að skoða Gardavatnið á hjóli er ótrúleg leið til að upplifa náttúrufegurð, töfrandi landslag og heillandi bæi sem þetta svæði hefur upp á að bjóða.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 9 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, enskumælandi hjólaleiðsögn í öllum dagsferðum samkvæmt ferðalýsingunni, 2 x hádegisverður, vínsmökkun, og 8 daga rafhjólaferð.
Ekki innifalið í verði:
Matur annar en morgunverður, city tax (greiðist á staðnum), aðrar skoðunarferðir (valkvæðar), eða þjórfé.
Dagskrá
Athugið
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
- Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
- Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.