Kristjana Steingrímsdóttir
fararstjóri
    Prag eða Praha á tékknesku, borg hinna 100 turna, hefur oft verið talin falinn gimsteinn þar sem leiðir lágu frekar til stóru borganna í vestur Evrópu. Eftir fall austantjaldsins jókst ásókn í fegurðina sem Prag hefur að geyma og nú er hún með blómlegustu og vinsælustu ferðamannaborgum Evrópu. Borgin á sína miklu sögu en frá árinu 870 hafa íbúar upplifað innrásir og yfirtöku hinna ýmsu valdhafa ásamt flóðum og borgarbruna og því þekkt fyrir úthald og varðveislu sem gefur borginni vissan karakter og gerir hana sjarmerandi og spennandi.

    Verð frá 229.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 25. – 28. sept.

    Verð og dagsetningar

    25. – 28. sept.  4 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    459.800 kr.
    Verð frá 229.900 kr.
    per farþega
    25. – 28. sept.  4 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    267.900 kr.
    Verð frá 267.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 3 nætur á The Cloud One 4★, og íslensk fararstjórn.

    Ferðalýsing

    Prag er ein af þeim borgum sem er fallegust á vorin og haustin. Mögnuð helgarferð til Prag 25.september til 28. september með skoðunarferðum inniföldum. Ferð sem inniheldur eitthvað fyrir alla sannkölluð sælkeraveisla. Prag (tékkneska Praha) er höfuðborg Tékklands og jafnframt stærsta borg landsins. Íbúar eru um 1,3 milljónir, en um 2,6 milljónir búa á stórborgarsvæðinu (2019). Elstu hverfin, þar á meðal kastalinn í Prag, eru á heimsminjaskrá UNESCO. Prag er af mörgum talin ein fegursta borg Evrópu, en þangað streyma milljónir ferðamanna hvert ár.

    Prag

    Dagskrá

    Dagur 1, föstudagur, 25. september 2026 — Ferðadagur

    Brottför frá Keflavík 07:20 og lent í Prag 13:05. Rúta sækir farþega og keyrir á 4 stjörnu hótel Cloud one. Cloud One

    Þegar búið er að innrita sig á hótel fer hópurinn í gönguferð. Byrjað er að heimsækja Urquel bjórverksmiðjuna þar sem verður bjórsmökkun og boðið upp á 3 rétta hádegisverð. Eftir það er
    bjórsafnið skoðað. Síðan verður gönguferð um gamla bæinn þar sem fegurð,rómatík og saga mætast. Eftir gönguna fer hópurinn í klukkutíma siglingu á Moldá.

        Dagur 2, laugardagur, 26. september 2026 — Skoðunardagur

        Í hádeginu heimsækjum við síðan U Fleku bjórverksmiðjuna og síðan þriggja rétta hádegisverður ásamt einum drykk og kaffi á U Fleku. U Fleku Eftir hádegisverð fer hópurinn í ratleik sem leiðir hann á faldar perlur og sögustaði í Prag.

            Dagur 3, sunnudagur, 27. september 2026 — Frjáls dagur til að skoða borgina betur og njóta.

            Frjáls dagur.

            Dagur 4, mánudagur, 28. september 2026 — Heimför

            Hópurinn sóttur á hótel 11:30 og keyrður út á flugvöll í Prag fyrir heimflug klukkan 14:00 og lent heima 15:55

                Gistingar í boði

                The Cloud One Prague er stílhreint og nútímalegt 4 stjörnu hótel í hjarta höfuðborgar Tékklands, aðeins í stuttri göngufjarlægð frá aðalverslunargötunni og aðlaðandi kaffihúsum, veitingastöðum og menningarstaðsetningum. Frábær kostur fyrir þá sem vilja upplifa Prag á sem bestan hátt fótgangandi.

                Gisting:
                Herbergin eru björt og nútímalega innréttuð með þægilegum rúmum, loftkælingu og ókeypis Wifi. Öll herbergin eru hljóðeinangruð og bjóða upp á sjónvarp og skrifborð, með baðherbergi sem hefur sturtu.

                Aðstaða og afþreying:
                Hótelið býður upp á móttöku sem er opin allan sólarhringinn, aðstoð við ferðaþjónustu og upplýsingamiðstöð um borgina. Gestir geta nýtt sér sameiginlega setuaðstöðu og morgunverðarhlaðborð til að byrja daginn.

                Veitingar:
                Morgunverður er í boði daglega, og í nágrenninu eru fjölmargir veitingastaðir og barir þar sem hægt er að njóta tékkneskra rétt eða alþjóðlegra rétta.

                Staðsetning:
                Hótelið er staðsett í miðbæ Prag, innan göngufjarlægðar frá mörgum helstu kennileitum borgarinnar, verslunarmöguleikum og samgöngum.

                Aðbúnaður:

                Sturta
                Sjónvarp
                Wifi
                Loftkæling
                Morgunverður
                Móttaka opin 24 klst
                Ferðaþjónusta / upplýsingar
                Setuaðstaða

                 

                Prag

                Prag

                Prag eða Praha á tékknesku, borg hinna 100 turna, hefur oft verið talin falinn gimsteinn þar sem leiðir lágu frekar til stóru borganna í vestur Evrópu. Eftir fall austantjaldsins jókst ásókn í fegurðina sem Prag hefur að geyma og nú er hún með blómlegustu og vinsælustu ferðamannaborgum Evrópu. Borgin á sína miklu sögu en frá árinu 870 hafa íbúar upplifað innrásir og yfirtöku hinna ýmsu valdhafa ásamt flóðum og borgarbruna og því þekkt fyrir úthald og varðveislu sem gefur borginni vissan karakter og gerir hana sjarmerandi og spennandi. 

                Prag

                Prag er þekkt fyrir gömlu miðborgina með sínum þröngu strætum og fallegu torgum en hún er á heimsminjaskrá UNESCO, þar á meðal Kastalahæðin Hradcany og gamla borgin, Stáre Mesto, brúarhverfið Malá Strana og nýja borgin Nové Mesto. Hverfin í Prag hafa hvert sinn sérstaka sjarma og stemmningu en borgin er margbreytileg, forn og nútímaleg, rómantísk og farsæl og umfram allt heimsborg sem er vön að taka á móti ferðamönnum og komin tími til að kynnast. 

                Prag

                Prag er einnig þekkt fyrir mat og drykk og mikið úrval veitingastaða sem bjóða upp á þjóðlegan sem og alþjóðlegan mat. Brugghúsin í Prag eru nú 35, sum ný en önnur sem byggja á eldri grunni. Kaffihúsin eru aðlaðandi og gott að slappa af og horfa á mannlífið og gaman að kíkja í listagallerí, verslanir og söfn. Hinn frægi tékkneski kristall er víða til sýnis og alltaf gaman að skoða. Þeir sem hafa áhuga á tónlist verða ekki sviknir því víða eru tónleikar í boði og einnig fyrir þá sem langar aðeins að hlusta á góða tónlist í smástund. 

                Áhugaverðir staðir

                Prag
                • Vinsælir staðir að heimsækja eru án efa Stjörnuúrið, einnig kallað Postulaklukka staðsett við ráðhúsið, og gamla borgartorgið. Hún er ævagömul, byggð 1410 og hringir á heila tímanum frá kl. 9.-23 og sýnir þá postulana 12 í gluggum klukkunnar.
                • Karlsbrúin er einkenni borgarinnar Prag. Hún er elsta nústandandi brú yfir Moldá fljótið og ein elsta steinbrú Evrópu. Brúin tengir miðborgina við kastalahæðina og eru turnar með hliðum við sinnhvort endann.
                • Kastalinn í Prag (Pražský hrad) er stærsta kastalasamstæða heims. Hann var áður aðsetur konunga Bæheims og nokkurra keisara þýska ríkisins. Í dag er hann opinbert aðsetur forseta landsins. Í kastalanum eru tékknesku krúnudjásnin geymd.
                • Vítusarkirkjan  er hluti af kastalasamstæðunni í Prag. Hún er dómkirkja og stærsta kirkja landsins. Í henni voru konungar Bæheims krýndir. 
                • Vysehrad-kastalinn er eldri af tveimur kastölum í Prag, en elsti hluti hans er frá 10. öld. Á lóðinni er kirkja Péturs og Páls. 
                • Teynkirkjan (einnig kölluð Frúarkirkjan) stendur við torg í gömlu borginni. Hún er frá 14. öld og skartar tveimur misháum turnum, kallaðir Adam og Eva. Í kirkjunni er elsta pípuorgel Tékklands. Þar hvílir einnig danski stjörnufræðingurinn Tycho Brahe.
                • Gyðingahverfið með sín hlykkjóttu stræti, þekkt úr bókum Franz Kafka, hefur laðað til sín margan ferðamanninn og vert er að skoða. Þar eru samkunduhús (High synagogue og fleiri), söfn (Jewish Museum) og Gamli-gyðingakirkjugarðurinn.
                • Svona mætti lengi telja en borgin er einnig þekkt fyrir arkitektúr frá hinum ýmsu tímabilum, gotnesk, endurreisn, barokk, rómanskt, art nouveau og funkis svo eitthvað sé nefnt.

                Athugið

                • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.