Adolf Jónsson
fararstjóri
    Dásamleg sólar- og ævintýraferð í Karíbahafið þar sem boðið er uppá fjölbreytta gistingar sem henta einstaklingum, pörum og fjölskyldum. 
Íslensk fararstjórn. Mikið úrval valfrjálsra ferða. Komdu á kynningarfund fimmtudaginn 12. júní í Hlíðasmára 14, sal Lions á Íslandi.

    Adolf Jónsson er með víðtæka reynslu af fararstjórn um víða veröld og hefur síðastliðin ár verið búsettur í Mexíkó og leitt fjölda ferða um Yucatánskaga, Playa del Carmen og Cancun auk annara landa í Mið- og Suður Ameríku. Adolf ferðaðist víða um Kína meðan hann dvaldi við nám í Shanghai og nýtti allar frístundir til að bæta við sig þekkingu á álfunni.

    Verð frá 589.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 7. – 22. nóv.

    Verð og dagsetningar

    7. – 22. nóv.  16 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.179.800 kr.
    Verð frá 589.900 kr.
    per farþega
    7. – 22. nóv.  16 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    756.900 kr.
    Verð frá 756.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, umsjón innlendra fararstjóra, í enda ferðarinnar en umsjón innlendra þjónustuaðila yfir miðbik ferðarinnar, akstur frá flugvelli á hótel og til baka, og gisting með morgunverði.
    Ekki innifalið í verði: Þjórfé ferðatryggingar eða annað sem ekki er tilgreint hér að framan, kostnaður við vegabréfsáritun, eða ferðatryggingar eða annað sem ekki er tilgreint hér að framan.

    Ferðalýsing

    Það jafnast fátt á við unaðinn í sól og hita við strendur Karíbahafsins í Mexíkó, að kynnast heillandi sögu landsins og upplifa ótrúlega fjölbreyttan matarkúltúr og menningu heimamanna. Mexíkó er nefnilega ekki bara sombrero, tacos og tequila. Stórbrotin náttúrufegurð, ólíkir þjóðarhópar og dramatísk saga landsins mætast í litskrúðugri menningu sem lætur engan ósnortinn.


    Áfangastaðurinn er Playa del Carmen, einhver ljúfasti strandbær í heimi og gerólíkur þeim stöðum sem Íslendingar hafa kynnst í sólarlandaferðum sínum til Evrópu. Hér er eitthvað allt annað á ferðinni því hótelin eru lágreist og götulífið sjarmerandi með dásamlegum mörkuðum; mannlífið fjölbreytt og öruggt.


    Á Playa del Carmen komumst við í kynni við krassandi matargerð, ólgandi mexíkóska menningu og einstaklega gestrisna heimamenn. Ströndin heillar með tærum og ylvolgum sjó og einu stærsta kóralrifi í heimi.

    Flogið er um Toronto í Kanada með Icelandair og áfram með WestJet. Gist eina nótt á flugvallarhóteli í Toronto á leið út en bein tenging í Toronto á heimleið. Einn flugmiði tryggir tengingar. Gist er eina nótt í Toronto á báðum leiðum á góðu flugvallarhóteli.

    Föstudaginn 7. nóvember er flogið kl 17:00 frá Keflavík og lent í Tórontó kl 18:15 og fylgt á hótel.

    Flogið 08:15 að morgni laugardagsins 8. nóvember og lent á hádegi í Cancun í Mexíkó og ekið beint til Playa del Carmen í fylgd íslensks fararstjóra.

    Heimflug er föstudaginn 21. nóvember kl 13:25, lent í Kanada 17:05 og áfram til Íslands kl 19:45. 

    Lending á Keflavíkurflugvelli klukkan sex að morgni laugardagsins 22. nóvember.

    Gistingar í boði

    3
    4
    Afmarka út frá stjörnufjölda

    Athugið

    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.