Verið velkomin í 9 daga Úrvalsfólks ferð til Gardavatns og Verona.
Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla vinsælda og Verona, og er Gardavatn talið er eitt fegursta stöðuvatna Evrópu. Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna svo áratugum skiptir, enda meðal allra fegurstu staða á Ítalíu. Hefur vatninu og umhverfi þess verið líkt við himnaríki á jörð.
Steingerður er með BA-próf í ensku og fjölmiðlafræði og diplóma i hagnýtri fjölmiðlun. Hún er einnig með diplóma í kennsluréttindum. Steingerður á að baki áratuga starfsferil á fjölmiðlum, sem hófst á Þjóðviljanum. Fljótlega fór hún að vinna á tímaritum og var lengstaf á Vikunni, fyrst sem blaðamaður og svo ritstjóri frá 2012 til 2022.
Verð og dagsetningar
4. – 13. sept.
10 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
659.800 kr. |
Verð frá
329.900 kr.
per farþega | |
4. – 13. sept.
10 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
349.900 kr. |
Verð frá
349.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, 6 x 3 rétta kvöldverður, Drykkur við komu, Allar rútuferðir, og Miði í óperuna.
Ekki innifalið í verði:
Ferðamannaskattur, þjórfé, eða annað sem ekki kemur fram í ferðalýsingu.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.












