Marrakesh (eða Marrakech) er ein af fjórum konunglegu borgum Marokkó og er staðsett við rætur Atlasfjalla. Borgin er oft kölluð „Rauða borgin“ vegna rauðleitra bygginga og múra hennar. Hún hefur verið vinsæll áfangastaður ferðamanna í áratugi, þökk sé ríkri sögu, litríkri menningu og einstökum andrúmslofti.
Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.
Verð og dagsetningar
1. – 5. okt.
5 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
339.800 kr. |
Verð frá
169.900 kr.
per farþega | |
1. – 5. okt.
5 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
219.900 kr. |
Verð frá
219.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, og morgunmatur.
Ekki innifalið í verði:
Máltíðir aðrar en morgunmatur, skoðunarferðir, eða akstur til og frá flugvelli (valkvæður).
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.







