Lóló
fararstjóri
    Undursamleg vorferð með Lóló fyrir Úrvalsfólk til náttúruperlunnar Madeira Þessi einstaka 8 nátta ferð . Lóló heldur vel utan um hópinn og fjölbreytt dagskrá í boði

    Lóló er einn af okkar reynslumestu fararstjórum og heldur vel utan um hópinn. Lóló tekur fagnandi á móti þér af alúð og gleði.

    Verð og dagsetningar

    Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?

    Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is

    Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.

    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 8 nætur á Pestana Casino Park 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, bókun í almenn sæti að kostnaðarlausu, hafið samband við sölufulltrúa, og akstur til og frá flugvelli.

    Ferðalýsing

    Undursamleg vorferð með Lóló fyrir Úrvalsfólk til náttúruperlunnar Madeira

    Þessi einstaka 8 nátta ferð . Lóló heldur vel utan um hópinn og fjölbreytt dagskrá í boði

    Madeira 60+
    Camara de Lobos, panoramic view, Madeira island, Portugal
    Madeira 60+

    Dagskrá

    Dagur 1, miðvikudagur, 8. apríl 2026

    Frjáls dagur.

    Dagur 2, fimmtudagur, 9. apríl 2026

    Frjáls dagur.

    Dagur 3, föstudagur, 10. apríl 2026 — Kynnisferð um Funchal

        Dagur 4, laugardagur, 11. apríl 2026

        Frjáls dagur.

        Dagur 5, sunnudagur, 12. apríl 2026 — Dagsferð um vestur hluta eyjunnar

            Dagur 6, mánudagur, 13. apríl 2026

                Dagur 7, þriðjudagur, 14. apríl 2026

                Frjáls dagur.

                Dagur 8, miðvikudagur, 15. apríl 2026

                Frjáls dagur.

                Dagur 9, fimmtudagur, 16. apríl 2026

                Frjáls dagur.

                Madeira

                Beint flug til Madeira er í boði 8. og 16. apríl 2026.

                Lega eyjunnar í Atlantshafinu tryggir að veðurfarið er þægilegt, milt og stöðugt árið um kring. Landslagið er ægifagurt, tignarleg fjöll, klettar, djúpir dalir  og fjölskrúðugur gróður milli fjalls og fjöru. Sykurreyr, vín- og bananaekrur setja svip sinn á landið auk fjölda skrúðgarða. Gamalt áveitukerfi er enn gulls ígildi og mikil völundarsmíð. Um alla eyju eru afar skemmtilegar gönguleiðir.

                Athugið að akstur til og frá flugvelli er ekki í boði á vegum Úrval Útsýn.

                Madeira

                Madeira tilheyrir Portúgal en er með sjálfstjórn og eigið þing.  Eyjan er um 740 ferkílómetrar að stærð og íbúar um 300 þúsund. Fólkið er einstaklega vingjarnlegt og auk portúgölsku tala mjög margir ensku. Ekki er mikið um stórar sandstrendur á eyjunni, víðast hvar eru klettastrendur og fallegar víkur. Þó má finna manngerðar sandstrendur með gullnum sandi.

                Höfuðborgin Funchal

                Við suðurströndina er höfuðborgin Funchal, heillandi bær í nýlendustíl með ríka menningarsögu. Gamli bærinn er einstaklega fallegur. Þar eru ódýr og góð portúgölsk veitingahús, fjölbreyttir markaðir, glæsilegar handverksbúðir og fjöldi kaffihúsa. Höfnin er sjarmerandi og gaman að rölta meðfram sjónum og fylgjast m.a. með hinum mörgu skemmtiferðarskipum sem þangað koma. Fallegir garðar prýða bæinn eins og alla eyjuna. 

                Madeira

                Lido ferðamannasvæðið

                Fyrir vestan Funchal hefur byggst upp heilmikið ferðamannasvæði, Lido, þar sem eru fjölmörg hótel, veitingastaðir, verslanir og önnur þjónusta fyrir ferðamenn.  Meðfram sjónum er göngustígur og á stöku stað hafa verið búnar til litlar sandstrendur eða önnur baðaðstaða fyrir unnendur sjávar. Einnig er alls konar sjávarsport í boði. Til að komast inn í Funchal, má ganga eftir  fallegum stíg eða taka strætó frá hóteli.
                Við bjóðum upp á úrval gististaða, 3,  4 og 5 stjörnur, bæði í Lido hverfinu og inni í borg. 

                Madeira

                Gaman að skoða

                Fjölbreyttar kynnisferðir verða í boði, s.s. um höfuðborgina Funchal, í sjávarþorp, bændabýli, upp á Pico do Arieiro sem er hæsti tindur eyjarinnar (1818 m), um gömul eldfjöll og djúpa dali, gönguferðir og náttúruskoðun, þjóðleg kvöldskemmtun og fleira. Möguleikarnir eru óþrjótandi á þessari fallegu eyju með áhugaverða sögu og einstaka náttúru.  

                Athugið

                • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
                • Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                • Við hvetjum farþega til að kynna sér hvaða tryggingar eru innifaldar í greiðslukorti sínu og/eða heimilistryggingu. Athugið að þessar tryggingar eru mismunandi eftir tegund greiðslukorts, kynnið ykkur vel skilmála þeirra, sem má fá hjá útgefanda greiðslukortsins. Einnig er hægt er að sækja um sjúkratryggingakort hjá Sjúkratryggingum Íslands – http://www.sjukra.is .