Kalabría er á tánni á Ítalíu, næst Sikiley, og liggur við Jóna- og Týreníuhaf. Héraðið markast af Týreníuhafi í vestri, Jónahafi í austri og Messínasundi í suðvestri. Höfuðstaðurinn er Catanzaro, en svæðið er þekkt fyrir fallegar strendur, hrikalegt landslag, fornar grískar minjar og söguleg fjallaþorp. Kalabría var áður hluti af „Stór-Grikklandi“ (Magna Graecia) og geymir mikla sögu. Héraðið er þekkt fyrir ólífurækt, víngerð og bragðmikla matargerð og er oft kallað Karíbahaf Evrópu vegna tærs vatns og stranda. Boðið er upp á beint flug til Kalabríu í þessa ferð. Alveg einstakt tækifæri fyrir alla sem vilja skoða meira af Ítalíu. Einstök sérferð með skoðunarferðum inniföldum.
Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking. Hún þekkir því Kína afar vel, bæði söguna, stjórnmálin og daglegt líf. Hún hefur víðtæka alþjóðlega reynslu, m.a. í samskiptum og menningartengdu starfi.
Verð og dagsetningar
Viltu bóka ferð, fá tilboð í verð, eða fá frekari upplýsingar?
Hafðu samband í +354 585 4000 eða sendu okkur póst á info@uu.is
Við sérsníðum ferðina að þínum óskum.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, Beint flug fram og tilbaka, Innrituð taska og handfarangur innifalinn, Gisting í 8 nætur á 4 Tonicello Resort and Spa, Morgunverður og 3-rétta kvöldverður öll kvöld, Þrjár glæsilegar heilsdagsferðir innifaldar, og Íslensk fararstjórn alla ferðina.
Athugið
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
