Kristján Steinsson
fararstjóri
    Hvert annað stórveldið hefur risið og hnigið í Jórdaníu. Í landinu er konungsstjórn og þar ríkir friður og stöðugleiki. Jórdanía hefur verið einn vinsælasti ferðamannastaður Mið-Austurlanda. Jórdanir eru elskulegt fólk sem búa í ægifögru landi þar sem skilningur ríkir á milli Islam og Kristni. Landið býður upp á stórkostlega matarmenningu, forna sögu og háþróaða innviði ferðaþjónustu. Nú setjum við okkur í spor Arabíu-Lawrence og förum í sannkallað ævintýri um Jórdaníu.

    Kristján er einn af reyndustu og vinsælustu fararstjórum Úrval Útsýnar og hefur hann unnið í ferðabransanum í yfir 30 ár. Hann hefur víðtæka reynslu og leysir öll vandmál eins og hendi sé veifað. Kristján er bæði með leiðsögumenntun og háskólamenntaður í ferðamálafræði.

    Verð frá 699.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 20. nóv. – 4. des.

    Verð og dagsetningar

    20. nóv. – 4. des.  15 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    1.399.800 kr.
    Verð frá 699.900 kr.
    per farþega
    20. nóv. – 4. des.  15 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    999.900 kr.
    Verð frá 999.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, Gisting 10 nætur með morgunverði, einn hádegisverður og einn kvöldverður, vegabréfsáritun í Jórdaníu, 1 vatnsflaska á mann á hverjum degi, innlendur leiðsögumaður, allur rútuakstur skv. ferðalýsingu, hótelgisting skv. hótellista, einn kvöldverður, aðgangseyrir að öllum stöðum sem koma fram í ferðalýsingu, hestaferð að Petra (þjórfé ekki innifalið), aðgangur, Wadi Rum á fjórhjóli í 3 klukkutíma, og Aðgangur að Petra ásamt hestaferð. Ath. þeir sem vilja fara á hestbak þurfa að greiða þjórfé til þeirra sem sjá um hestana. Passa upp á að hafa smáa seðla/klink fyrir þjórfé..
    Ekki innifalið í verði: Ferðatrygging, þjórfé, Matur og drykkir - annað en morgunverður og aðrir málsverðir sem teknir eru fram í lýsingu., eða annað en fram kemur að ofan.

    Ferðalýsing

    Ævintýraleg reisa til Jórdaníu

    Ævintýraferð á vit magnaðra söguslóða, litríkrar menningar og skínandi sólar í konungsríkinu Jórdaníu þar sem stórveldi hafa risið og hnigið í árþúsundir. Jórdanir lúta nú konungsstjórn og þar ríkir friður og stöðugleiki. Jórdanir eru elskulegt fólk sem búa í ægifögru landi þar sem ríkir skilningur milli Íslam og Kristni. Landið býður upp á stórkostlega matarmenningu og háþróaða innviði í ferðaþjónustu. Ekki er að ósekju sem landið hefur lengi verið einn vinsælasti ferðamannastaður Mið-Austurlanda. Skelltu þér í spor Arabíu-Lawrence og komdu með í sannkallaða ævintýrareisur með sérfróðum íslenskum fararstjóra, Kristjáni Steinsson.

    Hótel:

    Amman:  Grand Hyatt 5*, Grand room

    Aqaba:  Al Manara Luxury Collection 5*,  Superior room
    Petra: The Old Village 4* (dry hotel), standard herbergi

    Wadi Rum, Suncity Camp 4*, eyðimerkurtjöld, hálft fæði.

    Dead Sea: Hilton 5*, standard room

    Nokkrar staðreyndir um Jórdaníu

    Stærð: 89.342 km² (örlítið minna en Ísland)
    Mannfjöldi: 10,3 milljónir
    Höfuðborg: Amman
    Stjórnarform: Þingbundin konungsstjórn
    Þjóðhöfðingi: Abdullah II konungur (frá 1999)

    Trúarbrögð:

    • 97% múslimar
    • 2,2% kristnir
    • 0,4% búddistar
    • 0,1% gyðingar

    Lífaldur:
    Karlar 73,4 ár
    Konur 76,3 ár

    Læsi: um 97,7%

    Dagskrá

    Dagur 1, föstudagur, 20. nóvember 2026 — Brottför frá Keflavík

    Brottför frá Keflavík klukkan 11:50. Flogið verður með British airways í gegnum London og lent í höfuðborg Jórdaníu, Amman, klukkan 00:45. Farþegar verða sóttir á flugvöll og þeim ekið á Grand Hyatt hótelið þar sem gist verður fyrstu 4 næturnar.

        Dagur 2, laugardagur, 21. nóvember 2026 — Hvíldardagur

        Hvíldardagur til að njóta og sóla sig.

            Dagur 3, sunnudagur, 22. nóvember 2026 — AMMAN BORGARFERÐ

            Skoðunarferð um Amman. Við heimsækjum Jebel al-Qala´a (á ensku The Citadel) með leifum af Rómverska leikhúsinu, borgarvirkið og Umayyad höll þar sem frábært útsýni er yfir Amman. Einnig verður þjóðminjasafnið skoðað(The National Archaeological Museum). Farþegum verður gefinn kostur á að rölta um gamla bæinn að skoða eða versla áður en haldið verður tilbaka á hótelið. Frjálst kvöld.

                Dagur 4, mánudagur, 23. nóvember 2026 — SKOÐUNARFERÐ TIL JERASH, AJLUN OG UM QAIS

                Eftir morgunverð keyrum við til grísk-rómversku borgarinnar Jerash, sem oft er kölluð borg hinna þúsund súlna.

                Þar eru einhverjar stærstu rómversku rústir sem varðveist hafa utan Ítalíu og er borgin oft kölluð Pompeii Mið-Austurlanda. Jerash er ein af Decapolisborgunum (10 grískar borgir í Mið-Austurlöndum á fornöld) og hefur borgin að nokkru haldist óspillt.

                Þar má sjá velmegun fyrri tíma á súlum aðalgötunnar og í hinu fallega hringleikahúsi Oval Piazza.

                Þaðan liggur leiðin til Ajlun, sem er þekkt fyrir stórbrotið virki frá tímum Saladins og fallegt útsýni yfir Jórdandal.

                Ferðin heldur áfram til Um Qais, sem einnig er ein af Decapolisborgunum og kallaðist áður Gadara. Borgin er fræg fyrir svartar basalt-rústir frá tímum Grikkja.

                Frá Um Qais sést yfir Gólanhæðir og Tiberíusvatn (Sea of Galilee).

                Snúið verður aftur til Amman og kvöldið er frjálst.

                    Dagur 5, þriðjudagur, 24. nóvember 2026 — EYÐIMERKURKASTALAR

                    Eftir morgunverð leggjum við af stað út í eyðimörkina til að skoða kastalana:

                    Al Kharaneh, Qasr Amra, Al Azraq

                    Þessir kastalar voru byggðir af Umayyödum, fyrsta múslimaættarveldinu sem stjórnaði kalífadæminu á árunum 661–750 e.Kr.

                    Veggi og gólf kastalanna prýða flísar og mósaík. Qasr Amra er á heimsminjaskrá UNESCO.

                    Al Azraq var einnig bústaður Arabíu-Lawrence á meðan á arabísku byltingunni stóð.

                    Að ferð lokinni snúum við aftur til Amman.
                    Frjálst kvöld.

                        Dagur 6, miðvikudagur, 25. nóvember 2026 — MADABA, MOUNT NEBO, WADI MUJIB, KERAK OG AQABA

                        Eftir morgunverð tökum við ferðatöskurnar með okkur og yfirgefum Grand Hyatt.

                        Við höldum suður til Aqaba eftir sögufrægri leið sem tengdist fornu Silkileiðinni, þar sem kaupmenn, hermenn og pílagrímar ferðuðust um aldir.

                        Fyrsta stoppið er í kristnu borginni Madaba, einnig kölluð Mósaíkborgin. Þar skoðum við St. George kirkjuna, sem er fræg fyrir mósaíkkort sitt af heilaga landinu frá 6. öld.

                        Síðan heimsækjum við fornleifagarð þar sem rústir byzantískra kirkna eru varðveittar, meðal annars Church of the Virgin.

                        Næst er farið upp á Mount Nebo, einn helgasta stað Jórdaníu. Samkvæmt Biblíunni sýndi Guð Móse fyrirheitna landið frá þessu fjalli.

                        Á björtum degi er hægt að sjá alla leið til Jericho og Jerúsalem.

                        Við keyrum síðan að Wadi Al Mujib, stórbrotnu gili með einu fallegasta útsýni Jórdaníu.

                        Ferðin heldur áfram til Kerak, þar sem við skoðum stóran krossferðakastala sem sýnir sögu svæðisins frá Byzantine tíma til Mamlúka.

                        Að lokum keyrum við til Aqaba, þar sem við gistum þrjár nætur á lúxushótelinu Al Manara við Rauðahafið.

                            Dagur 7, fimmtudagur, 26. nóvember 2026

                            Frjáls dagur.

                            Dagur 8, föstudagur, 27. nóvember 2026

                            Frjáls dagur.

                            Dagur 9, laugardagur, 28. nóvember 2026 — WADI RUM

                            Haldið frá Aqaba til Wadi Rum, stærstu eyðimörk Jórdaníu, sem er þekkt fyrir stórbrotið landslag og hefur verið notuð sem leikmynd í mörgum kvikmyndum, meðal annars Indiana Jones.

                            Ekið verður um eyðimörkina á jeppum áður en komið er í glæsilegar tjaldbúðir.

                            Þar njótum við sólseturs í eyðimörkinni og kvöldverður verður framreiddur í tjaldbúðunum.

                            Hægt er að kaupa úlfaldaferð til að sjá sólarupprás daginn eftir.

                                Dagur 10, sunnudagur, 29. nóvember 2026 — LITTLE PETRA (BEIDA)

                                Keyrt frá Aqaba til Petra.

                                Við skoðum Beida, einnig kölluð Little Petra, áður en við tékkum okkur inn á hótel.

                                    Dagur 11, mánudagur, 30. nóvember 2026 — PETRA

                                    Eftir morgunverð skoðum við hina frægu borg Petra – rósrauðu borgina sem er helmingi eldri en tíminn sjálfur.

                                    Borgin var byggð af Nabateumönnum fyrir um 2000 árum og var höfuðborg þeirra.

                                    Við hefjum ferðina á hestbaki fyrir þá sem vilja, en göngum síðan um borgina í gegnum Siq, þrönga klettagljúfrið sem leiðir inn í borgina.

                                    Ferðin endar við eitt frægasta minnismerki heims – The Treasury.

                                    Gisting á Petra Moon Luxury Hotel.
                                    Frjálst kvöld.

                                        Dagar 12–14, þriðjudagur, 1. desember 2026 – fimmtudagur, 3. desember 2026 — Dauðahafið

                                        Eftir morgunverð keyrum við að Dauðahafinu, sem er lægsti punktur jarðar.

                                        Við gistum á Hilton lúxushóteli og njótum þess að svamla og láta okkur fljóta í vatninu.

                                        Vegna mikillar seltu er ekki hægt að kafa eða synda – aðeins fljóta.

                                        Leðjan við ströndina inniheldur mörg steinefni og er talin hafa heilsubætandi áhrif.

                                        Frjálsir dagar til að njóta.

                                            Dagur 15, föstudagur, 4. desember 2026 — Heimferð

                                            Eftir morgunverð sækir rúta hópinn og keyrir á flugvöllinn.

                                            Brottför frá Queen Alia International Airport kl. 09:10
                                            Lending í London kl. 11:45

                                            Brottför frá London kl. 13:50
                                            Lending í Keflavík kl. 17:15

                                                Athugið

                                                • Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                                                • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                                                • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                                                • Athugið - Vegabréf þarf að vera gilt í að minnsta kosti 6 mánuði eftir heimferð aftur til Íslands frá Jórdaníu.