Verð og dagsetningar
Ferðalýsing
Tenerife er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og jógaferð þangað er frábær upplifun. Morgunjóga og hugleiðsla með möntrum við sólarupprás er besta leiðin inn í daginn. Íris Más mun fræða fólk um markmiðasetningu, endurbættar lífsvenjur og töfrakraft þakklætis. Mjúkar teygjur, pilates æfingar og hugleiðsla fylla líkamann af gleði og vellíðan, Yin jóga og slökun við ljúfa tóna Gong skála styrkja svo sjálfið og auka hugarró.. Það verður meðal annars farið í hugleiðslugöngur á ströndinni, skoðunarferðir um svæðið og dansað af gleði, hjólað og synt í sjónum.
Þessi ferð hentar öllum hvort sem þeir eru byrjendur í jóga, lengra komnir eða hafa aldrei prófað að stunda jóga. Ferðin er fyrir fólk á öllum aldri sem hefur gaman af því að ferðast og lifa í núinu. Markmiðið er að njóta lífins og dekra við líkama og sál og upplifa gleði og vellíðan í fallegu umhverfi Tenerife.
Það eru ýmis stéttarfélög sem veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeiðum og fræðslu/endurmenntun. Við hvetjum þig til að kynna þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það sé fyrir þessa ferð.
Dagskrá
Dagur 1, miðvikudagur, 18. september 2024 — Brottför
Beint flug með Neos frá Keflavík kl. 09:00 til Tenerife South flugvallarins. Lending er kl. 16:35 að staðartíma. Rúta flytur hópinn á Hotel Tigotan en þar verður fundur með fararstjóra þar sem farið verður yfir dagskrá vikunnar. Þátttakendur fá afhenta fallega gjafapoka.
Dagur 2, fimmtudagur, 19. september 2024
7:00 -7:45 verður morgunjóga og hugleiðsla með möntrum við sólarupprás. Kl. 8:00-9:30 er síðan morgunmatur. Kl. 9:45- 11:00 verður Íris með fyrirlestur um markmiðasetningu og mikilvægi hennar. Kl. 11:00 – 13:00 verður farið í göngutúr þar sem við kynnum okkur svæðið og endum í hádegismat á góðum heilsustað. Eftir það er frjáls tími.
Dagur 3, föstudagur, 20. september 2024
Kl. 8:00- 10:00 verða mjúkar teygjur og síðan morgunmatur. kl.10:00 – 12:30 verður Íris með pilates-æfingar og hugleiðslu. Kl 12:30- 13:30 verður haldið áfram með fyrirlestur um markmiðasetningu einnig fjallað um endurbættar lífsvenjur. Þáttakendur setja sér raunhæf markmið og vinna stutt verkefni. Kl. 13:30 er hádegismatur en eftir hann er frjáls tími til að njóta og slaka – Ef folk vill er í boði að fara í göngutúr og eða hjólaferð með fararstjóra. Kl. 16:00 -17:00 er svo jóga og hugleiðsluganga á ströndinni og eftir það er frjáls tími.
Dagur 4, laugardagur, 21. september 2024
Kl. 8:30 – 10:00 er morgunmatur. Kl. 10:00 – 11:30 verður farið í Yin-jóga og slökun undir mjúkum tónum singing Bowl og Koshi chime. Kl. 11:30 – 12:00 ætlum við að njóta lífsins og dansa sem er ekkert annað en gleði, gaman og góð útrás.
Dagur 5, sunnudagur, 22. september 2024
Kl. 8:00 – 9:00 er morgunjóga og hugleiðsla og síðan er morgunmatur milli kl. 9:00 – 10:30. Kl. 10:30 – 12:30 verður farið í pilates – og við leikum okkur í sjónum og njótum líðandi stundar. Kl. 12:30 – 13:30 verður fyrirlestur um töfrakraft þakklætis – og við dönsum í okkur lífskraftinn. Kl. 13:30 – 17:00 er síðan frjáls tími. Við hittumst aftur kl. 17:00 – 18:30 og förum í Yin-jóga.
Dagur 6, mánudagur, 23. september 2024
Kl. 7:30 – 8:30 er morgunjóga á ströndinni og slökun við sólarupprás. Morgunmatur er síðan á milli 8:30 – 10:30. Kl. 10:30 – 11:00 förum við í hugleiðslugöngu á ströndinni. Kl. 11:30 – 15.00 er boðið upp á göngu- og eða hjólatúr eftir Adeje ströndinni. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kíkja í verslunarmiðstöð þá er ein slík á leiðinni, PLAZA DEL DUQUE. Eftir það er frjáls tími. Kl. 19.30 – hefst lokahóf með kvöldverði á góðu veitingastað.
Dagur 7, þriðjudagur, 24. september 2024
Dagurinn hefst kl. 7:30 með morgujóga og hugleiðslu til 8:30. Kl. 8:30 – 10:30 er síðan morgunmatur og spjall og eftir það er frjáls tími
Dagur 8, miðvikudagur, 25. september 2024 — Heimferð
Gistingar í boði
Hótel Tigotan Lovers and Friends er gott 4ra stjörnu hótel staðsett í hjarta Playa de las Americas og í göngufjarlægð frá strönd og iðandi mannlífi. Hótelgarðurinn og umhverfi var endurnýjað árið 2016. Mjög fínn sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu og afþreying er í boði. Þetta hótel er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.
GISTING
Hægt er að velja um þrjár mismunandi tegundir af herbergjum.Tvíbýli, tvíbýli romance eða tvíbýli smart. Tvíbýli romance býður upp á opið herbergi með nuddpotti fyrir tvo og góða sturtu. Tvíbýli smart býður upp á mikla tækni en þar má finna gott wi-fi, USB tengi, góða hátalara og 47 tommu sjónvarp með tengi fyrir USB og HDMI. Einnig er hægt að óska eftir playstation tölvu. Öll herbergin eru einföld og snyrtileg, loftkæld, með síma, útvarpi,minibar, (áfylling aukagjald) sjónvarpi og baðherbergi með baðkari eða sturtu. Gestir geta leigt öryggishólf. Öllum herbergjum fylgja svalir eða verönd.
Með Smart og Romance herbergjum fylgir ,"Exclusive service" en hún felur í sér hraðsuðuketil og Nespresso vél á herbergjum, slopp og inniskó, lúxus baðvörur og flösku af vatni við komu á hótel.
Einnig fá gestir í þessum herbergjum ótakmarkaðann aðgang að “Exclusive Lounge” og 1 dag í viku er hægt að borða á veitingastað hótelsins, Santa Rosa Grill.
Hægt er að kaupa aukalega "Exclusive service" með öðrum herbergjatýpum.
AÐSTAÐA
Sundlaugagarðurinn er þægilegur með góðri sólbaðsaðstöðu. Á þakinu er sundlaug með nuddpotti og sólbaðsaðstaða þar sem hægt er að sóla sig í dásamlegu útsýni en auka gjald er tekið fyrir aðstöðuna þar. Handklæðaþjónusta er við sundlaugina. Nuddpottur og líkamsræktaraðstaða fyrir þá sem vilja halda sér í formi. Á hótelinu er þjónusta á borð við hárgreiðslustofu, þvottaaðstöðu, stjónvarpsstofu og fleira. Gestir hafa aðgang að þráðlausu interneti á hótelinu.
AFÞREYING
Gestir geta lokið deginum með hinum ýmsu skemmtikröftum sem troða upp á hótelinu.
VEITINGASTAÐIR
Gestir hótelsins eru í hálfu fæði og fá því morgunmat og kvöldverð á veitingastaðnum Areca Restaurant, þar er borinn fram gómsætur og fjölbreyttur matur í formi hlaðborðs. Á hótelinu er einnig veitingastaðurinn Santa Rosa Grill og tveir barir, þar af annar í sundlaugagarðinum.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett í Playa de las Americas í göngufjarlægð frá strönd. Um 15 mínútna gangur er niður í miðbæinn.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL TIGOTAN
Hálft fæði
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Sundlaugarbar
Nuddpottur
Sundlaug með útsýni
Skemmtidagskrá
Handklæðaþjónusta
Líkamsrækt
Heilsulind
Sjónvarpsstofa
Þvottahús
Hárgreiðslustofa
Areca Restaurant
Santa Rosa Grill
Loftkæling
Sími
Svalir
ATH
Tenerife
Tenerife hefur allt það að bjóða sem bestu sólarstaðir státa af. Eyjan er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Fjölskyldur geta notið alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða og í boði er fjöldi gististaða fyrir allar fjölskyldustærðir – allt frá íbúðum upp í stórglæsileg hótel. Bókaðu í tíma til að tryggja gistingu sem hentar þér og þinni fjölskyldustærð.
Ekki má gleyma að á Tenerife er flottasti vatnsrennibrautagarður heims, „Siam Park“, ásamt hinum stórglæsilega dýragarði „Loro Parque“.
Það skemmta sér allir vel á paradísareyjunni Tenerife!
Skemmtigarðar
- Siam Park
- Aqualand
- Loro Park
- Bubble Soccer
Verslunarmiðstöðvar:
- Siam Mall
- Parque Santiago
- Safari Center
- Bahaia del Duque
- Oasis
Afþreying:
- Vatnasport
- Gönguferðir
- Verslanir
- Frábærir veitingastaðir
- Leikhús
TENERIFE SUR – SUÐURHLUTINN
Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Úrval Útsýn býður upp á gistingu á suðurhlutanum í Playa de las Américas, Los Cristianos og Costa Adeje. Allir þessir staðir hafa sinn sjarma og sitt einstaka andrúmsloft. Í Los Cristianos slær hjarta suðurhlutans þar sem ferðamannaiðnaðurinn byrjaði. Á því svæði búa eyjaskeggjar Tenerife en gamli bærinn er afar sjarmerandi með litlum þröngum göngugötum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana. Playa de Las Americas hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” en þar er frábært úrval verslana og veitingastaða á heimsmælikvarða. Costa Adeje svæðið er svo yndislegt og rólegt, með fallegum ströndum og stórglæsilegum gistingum.
SANTA CRUZ – HÖFUÐBORGIN
Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett við sjávarsíðuna á norð-austur hluta eyjunnar, undir fjöllum Anaga tangans. Þetta er glaðleg heimsborg, full af orku, og litast af persónuleika eyjaskeggja. Í borginni, sem er samvaxin La Laguna, er ótal margt að skoða en samanlagt búa þar yfir 400 þúsund manns sem gerir þær að stærsta þéttbýlissvæði Kanaríeyja. Borgin hentar sérstaklega vel til gönguferða. Hún er þakin fallegum görðum, flottum verslunargötum og býður upp á alla þá kosti sem stórar heimsborgir státa af. Hér er að finna mjög áhugaverðan byggingarstíl gömlu tímanna, samofinn nýjum stefnum og straumum arkítektúrs 21. aldarinnar. Santa Cruz er sú borg Spánar sem státar af flestum nútíma byggingum á litlu svæði.
Menningarlíf borgarinnar er talið einstakt enda mikið af áhugaverðum söfnum og listsýningum á heimsmælikvarða. Fyrir tónlistarunnendur er sinfóníuhljómsveit borgarinnar í fremstu röð Evrópuþjóða. Borgin er byggð upp við fallegar breiðgötur, svo kallaðar „Ramblas“. Í borginni er skemmtilegt andrúmsloft, sem er bæði róandi og seiðandi, án þess að missa hið skemmtilega yfirbragð lítillar heimsborgar. Hér eru frábærar verslanir, verslunarmiðstöðar, veitingastaðir og kaffihús. Í næsta nágrenni er einnig stærsta og glæsilegasta strönd eyjunnar „Las Teresitas“. Í einungis 15 mínútna ferð með sporvagni er komið til hinnar þekktu 500 ára gömlu fyrrverandi höfuðborgar Tenerife, La Laguna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstaka sögu og fallegar byggingar.
PUERTO DE LA CRUZ – NORÐURHLUTINN
Puerto de la Cruz er staðsett á norðurhluta eyjunnar og er einna þekktust fyrir að hýsa einn glæsilegasta dýragarð Evrópu, Loro Parque. Ferðalangar hafa heimsótt þessa einstöku borg frá Evrópu síðan um miðja 19. öld og er fyrsti eiginlegi sumarleyfisdvalarstaður Kanaríeyja. Borgin hefur yfir sér rólegt yfirbragð þar sem gamli og nýi tíminn mætast á mjög sjarmerandi máta.
Gamli bærinn státar af afar fallegum gömlum byggingum og höfnin sem er í lykilhlutverki þjónaði vínútflutningi frá La Orotava dalnum í nokkur hundruð ár. Bærinn La Orotava er verðugur áningastaður þar sem eru stórglæsileg hús og hallir ásamt kirkjum sem skreyta bæinn. Við sjávarsíðuna er svo að finna afar fallegan sundlauga- og lystigarð, Lago Martiánes, sem þjónar borginni sem einskonar strandgarður, því fáar baðstrendur eru við borgina.
Í Puerto de la Cruz er einnig að finna mikið af skemmtilegum verslunum, en til að mynda er þar stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar, La Villa sem er staðsett rétt fyrir utan bæinn. Einnig er þar elsti skrúðgarður (Botanical Garden) Tenerife. Fallegar göngugötur, torg og garðar toppa svo þessa fallegu borg. Hér er mikið úrval af glæsilegum veitingastöðum, börum og kaffihúsum, bæði í gamla bænum sem og í næsta nágrenni hans.
Puerto De La Cruz er klárlega staður sem vert að skoða!
AFÞREYING Á TENERIFE
Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast enda nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Gaman er að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park, þar sem þú getur meðal annars rennt þér niður 28 metra rennibraut nánast í frjálsu falli sem endar með ferð í gegnum hákarlabúr! Eða farið á stærstu go-kart braut Evrópu.
Við nánast hverja strönd á Tenerife er mikið úrval vatnaíþrótta -> sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun svo eitthvað sé nefnt.
Athugið
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
- Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
- Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.