Vertu með í ógleymanlegri hringferð um Balí þar sem líflegir strandbæir, iðagrænir hrísgrjónastallar og andleg kyrrð mætast í einni stórkostlegri upplifun. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast leyndardómum eyjunnar í fylgd íslensks fararstjóra og njóta þess besta sem náttúran og menningin hafa upp á að bjóða. Við dveljum á sérvöldum úrvals hótelum í hjarta eyjunnar þar sem þægindi og algjör slökun eru í fyrirrúmi á meðan ævintýrin bíða við hvert fótmál.
Enginn þekkir Balí betur en Apríl Harpa sem bjó á eyjunni fögru til fjölda ára. Á Balí stundaði hún Háskólanám í mannfræði með áherslu á Balíska menningu og kenndi þar jóga og hugleiðslu í mörgum af glæsilegustu jógastöðum á eyjunni. Auk þess stofnaði hún þar ýmiss fyrirtæki og fæddi þar stúlku sem hún ól upp á Balí til þriggja ára aldurs. Apríl hefur verið fararstjóri á Balí í rúman áratug og er hvergi hætt, enda hefur hún ómælda ástríðu gagnvart þessari framandi eyju og stórkostlegu þjóð.
Verð og dagsetningar
14. – 30. sept.
17 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
1.299.800 kr. |
Verð frá
649.900 kr.
per farþega | |
14. – 30. sept.
17 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
848.900 kr. |
Verð frá
848.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, Flug frá Keflavík til Balí með Icelandair og Emirates. Allir skattar og gjöld innifalin., Allur akstur á milli gististaða, flughafn o.sv.fr, Skoðunarferðir og aðgangseyrir innifalinn samkvæmt dagskrá; einn kvöldverður og fimm hádegisverðir., Gisting í tvíbýli með morgunmat á framangreindum hótelum eða sambærilegum., og Íslensk fararstjórn og leiðsögn heimamanna þar sem þörf er á..
Ekki innifalið í verði:
Tryggingar, bólusetningar, þjórfé eða annað ótilgreint., eða Framlengd vist á hóteli (late check-out) eða snemm-innritun(early check-in)..
Athugið
- Staðfestingargjald er 120.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Að dagskrá geti breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna/góðra hugmynda.
- Gætið að sóttvörnum, gildistíma vegabréfs og tryggingum tímanlega.
- Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
- Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
- Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.










