Þetta er ferð fyrir metnaðarfulla ferðalanga sem vilja kafa dýpra og kynnast meiru en þeirri dásemd sem bíður allra á ströndum Balí. Í þessari ferð verður menningin krufin, komist í góða snertingu við mannlífi og fólkið í landinu og hinni iðagrænu og fallegu náttúru leyft að umlykja sig. Frábær hótel, tálgað ferðaplan, fróðir leiðsögumenn og íslensk fararstjórn er góður grunnur að fullkominni ferð.
Enginn þekkir Balí betur en Apríl Harpa sem bjó á eyjunni fögru til fjölda ára. Á Balí stundaði hún Háskólanám í mannfræði með áherslu á Balíska menningu og kenndi þar jóga og hugleiðslu í mörgum af glæsilegustu jógastöðum á eyjunni. Auk þess stofnaði hún þar ýmiss fyrirtæki og fæddi þar stúlku sem hún ól upp á Balí til þriggja ára aldurs. Apríl hefur verið fararstjóri á Balí í rúman áratug og er hvergi hætt, enda hefur hún ómælda ástríðu gagnvart þessari framandi eyju og stórkostlegu þjóð.
Verð og dagsetningar
26. mars – 9. apríl
15 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
1.317.800 kr. |
Verð frá
658.900 kr.
per farþega | |
26. mars – 9. apríl
15 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
844.900 kr. |
Verð frá
844.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 13 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og allur akstur á milli gististaða,flughafn o.sv.fr. Skoðunarferðir og aðgangseyrir innifalinn samkvæmt dagskrá; einn kvöldverður og 5 hádegisverðir, gisting í tvíbýli með morgunmat á framangreindum hótelum eða sambærilegum. Leiðsögn heimamanna þar sem þörf er á..
Ekki innifalið í verði:
Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, þjórfé eða persónuleg útgjöld og annað sem ekki er nefnt sérstaklega í ferðalýsingu, tryggingar, bólusetningar, þjórfé eða anna ótilgreint, eða framlengd vist á hóteli (late check-out) eða snemm-innritun (early check-in).
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Dagskrá getur breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna/góðra hugmynda. Gætið að sóttvörnum, gildistíma vegabréfs og tryggingum tímanlega.
- farþegar þurfa að kanna með góðum fyrirvara með bólusetningar hjá sinni heilsugæslu eða á Heilsuvera.is. Athugið að ferðaskrifstofan getur engar upplýsingar eða ráð gefið varðandi sóttvarnir og bólusetningar.
- mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi og að vegabréf gildi minnst 6 mánuði umfram áætlaða heimkomu. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- farþegar verða að tryggja að netfang og símanúmer allra farþega sé skráð við bókun ferðar svo tryggt sé að upplýsingar skili sér til allra aðila.
- farseðlar og ferðagögn eru send farþegum um mánuði fyrir brottför.
- Lokagreiðsla skal berast eigi síður en 12 vikur fyrir brottför














