Þetta er ferð fyrir metnaðarfulla ferðalanga sem vilja kafa dýpra og kynnast meiru en þeirri dásemd sem bíður allra á ströndum Balí. Í þessari ferð verður menningin krufin, komist í góða snertingu við mannlífi og fólkið í landinu og hinni iðagrænu og fallegu náttúru leyft að umlykja sig. Frábær hótel, tálgað ferðaplan, fróðir leiðsögumenn og íslensk fararstjórn er góður grunnur að fullkominni ferð. Dvalið er 3 nætur í upphafi ferðarinnar í strandbænum Sanúr, síðan taka við 6 nætur í fjallabænum Úbúd og að lokum aðrar 3 nætur við ströndina en á á vesturströndinni í Seminyak.
Adolf Jónsson er með víðtæka reynslu af fararstjórn um víða veröld og hefur síðastliðin ár verið búsettur í Mexíkó og leitt fjölda ferða um Yucatánskaga, Playa del Carmen og Cancun auk annara landa í Mið- og Suður Ameríku. Adolf ferðaðist víða um Kína meðan hann dvaldi við nám í Shanghai og nýtti allar frístundir til að bæta við sig þekkingu á álfunni.
Verð og dagsetningar
14. – 30. sept.
17 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
1.397.800 kr. |
Verð frá
698.900 kr.
per farþega | |
14. – 30. sept.
17 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
883.900 kr. |
Verð frá
883.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 13 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn, og allur akstur á milli gististaða,flughafn o.sv.fr. Skoðunarferðir og aðgangseyrir innifalinn samkvæmt dagskrá; einn kvöldverður og 5 hádegisverðir Gisting í tvíbýli með morgunmat á framangreindum hótelum eða sambærilegum. Leiðsögn heimamanna þar sem þörf er á..
Ekki innifalið í verði:
Kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum, þjórfé eða persónuleg útgjöld og annað sem ekki er nefnt sérstaklega í ferðalýsingu.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Dagskrá getur breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna/góðra hugmynda. Gætið að sóttvörnum, gildistíma vegabréfs og tryggingum tímanlega.
- farþegar þurfa að kanna með góðum fyrirvara með bólusetningar hjá sinni heilsugæslu eða á Heilsuvera.is. Athugið að ferðaskrifstofan getur engar upplýsingar eða ráð gefið varðandi sóttvarnir og bólusetningar.
- mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi og að vegabréf gildi minnst 6 mánuði umfram áætlaða heimkomu. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- farþegar verða að tryggja að netfang og símanúmer allra farþega sé skráð við bókun ferðar svo tryggt sé að upplýsingar skili sér til allra aðila.
- farseðlar og ferðagögn eru send farþegum um mánuði fyrir brottför.