fararstjóri
per farþega
- 13. – 20. júní
Verð og dagsetningar
13. – 20. júní
8 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
879.800 kr. |
Verð frá
439.900 kr.
per farþega |
Ferðalýsing
Komdu með í ljúfa júníferð til Norður-Ítalíu, Gardavatn, rómantísk Verona og sögufræga Mantova. Ferðin býður upp á einstaka blöndu afslöppunar og ævintýra. Við heimsækjum ólík og heillandi svæði:
Verona, borg Rómeós og Júlíu, með sögulegum torgum og glæsilegum minjum.
Valpolicella, hjarta ítalskrar vínmenningu þar sem við fáum að smakka hin frægu rauðvín svæðisins.
Mantova, gleymda perla Lombardy-héraðsins, umlukin vötnum og prýdd stórbrotinni byggingarlist Gonzaga-ættarinnar.
Sirmione og Garda, þar sem við siglum á milli litríkra strandbæja yfir kyrrlát vatn Garda, stærsta vatns Ítalíu.
Valeggio og Borghetto sul Mincio, ljúf, söguleg þorp þar sem tíminn virðist standa í stað og maturinn er rótgróin menningarhefð – ekki síst hin frægu tortellini.


Auk þess eru tveir dagar án dagskrár þar sem þú getur notið hótelsins, farið í jóga, slappað af við sundlaugina eða kannað nágrennið á eigin hraða.


Dagskrá
Dagur 1, laugardagur, 13. júní 2026 — Komudagur til Verona - Gardavatnsins
Við komum okkur fyrir á hótelinu við Gardavatnið. Kvöldið er frjálst — fullkomið tækifæri til að rölta um næsta strandbæ, fá sér ítalska pizzu eða pasta og njóta fyrstu kvöldstundarinnar við vatnið.
Dagur 2, sunnudagur, 14. júní 2026 — Verona & Valpolicella með vínsmökkun
Í dag er haldið frá hótelinu til Verona, hinnar rómantísku borgar Rómeós og Júlíu. Þar tekur við göngutúr með leiðsögn um sögufræga miðbæinn, og einnig tími til að njóta hádegisverðar að eigin vali.
Seinnipartinn heldur hópurinn til Valpolicella, eins þekktasta vínræktarsvæði Ítalíu. Svæðið var ræktað allt frá tímum Etrúska og um fjórðungur vínanna sem framleidd eru bera DOC-staðal, sem tryggir uppruna og gæði.
Gestir heimsækja vínkjallara í Valpolicella, þar sem boðið verður upp á vandaða vínsmökkun ásamt smá snarli.
Dagur 3, mánudagur, 15. júní 2026 — Mantova & ostasmökkun
Í dag er ferðinni heitið til Mantova, borg fyrrum höfðingjaseturs Gonzaga-ættarinnar. Borgin er umlukin vatnalandslagi og hefur verið lýst af skáldum og rithöfundum sem einni rómantískustu borg Ítalíu.
Á gönguferð um borgina sérðu meðal annars miðaldatorg, rómanskar kirkjur og tilkomumiklar hallir.
Helstu kennileiti sem vert er að skoða eru:
- Castello S. Giorgio og Palazzo Ducale
- Piazza Sordello með húsi Rigoletto
- Dómkirkjan
- Piazza Broletto með gamla ráðhúsinu
- Piazza Erbe, réttarsalurinn, klukkuturninn
- Rotunda S. Lorenzo
- Basilica di Sant’Andrea
Að lokinni skoðunarferð verður boðið upp á ostasmökkun áður en haldið er aftur á hótelið – skemmtileg og bragðgóð leið til að ljúka deginum.
Dagur 4, þriðjudagur, 16. júní 2026 — Frjáls dagur til að njóta hótelsins, fara í jógaæfingar á útisvæðinu, slaka á við sundlaugina eða kanna nágrennið á eigin vegum
Dagur 5, miðvikudagur, 17. júní 2026 — Gardavatn – Bátsferð
Njóttu stórbrotinnar siglingar yfir Gardavatnið. Frá Sirmione siglir hópurinn í átt að bænum Garda.
Í Garda gefst tími til að rölta um þröngar, snotrar götur og skoða líflega vatnaskemmuna á eigin hraða.
Að lokinni heimsókn tekur hópurinn siglingu til baka, þar sem hægt er að njóta rólegrar fegurðar stærsta vatns Ítalíu.
Dagur 6, fimmtudagur, 18. júní 2026 — Valeggio & Borghetto sul Mincio
Í dag er haldið til Valeggio, þar sem ljúffengur hádegisverður bíður – hinn sígildu tortellini, sem svæðið er frægt fyrir.
Síðan heldur ferðin áfram til Borghetto sul Mincio. Það er eins og tíminn hafi staðnæmst í Borghetto — kyrrðin, áin og söguleg byggðin skapa andrúmsloft sem fangar mann strax. Hér gefst þér tækifæri til að ráfa um og njóta.
Dagur 7, föstudagur, 19. júní 2026 — Frjáls dagur við Gardavatnið
Dagur 8, laugardagur, 20. júní 2026 — Rútuferð frá hótelinu til Verona-flugvallar og heimferð
Gistingar í boði
Hotel Porta del Sole (AHG Golf Hotel Porta del Sole) er glæsilegt 4 stjörnu hótel í Soiano del Lago við Gardavatn. Hótelið er í fallega endurgerðri villu og er frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta rólegs umhverfis, fallegs útsýnis, góðrar matargerðar og slökunar – ekki síst fyrir golfáhugafólk þar sem stutt er í golfvöll.
Gisting:
Herbergin eru rúmgóð og þægileg, innréttuð í klassískum stíl sem sækir innblástur til villna við Gardavatn. Í herbergjum er m.a. loftkæling, minibar, öryggishólf og sjónvarp. Ókeypis Wifi er í boði og baðherbergin eru með sturtu/baðkari.
Aðstaða og afþreying:
Á staðnum er útisundlaug með sólbekkjum og sundlaugarbar yfir sumartímann. Hótelið býður einnig upp á þægilega setuaðstöðu og verönd/þaksvæði þar sem hægt er að njóta útsýnisins. Mjög góð staðsetning fyrir golf, gönguferðir og matar- og vínupplifanir á svæðinu.
Veitingar:
Veitingastaður er á hótelinu með áherslu á rétti úr héraðinu og hægt er að sitja bæði inni og úti þegar veður leyfir. Einnig er bar þar sem gestir geta fengið sér drykki og léttar veitingar.
Staðsetning:
Hótelið er staðsett við Gardavatn, rétt hjá Garda Golf Club, um 10 km frá Desenzano del Garda.
Aðbúnaður:
Sturta/baðkar
Sjónvarp
Wifi
Loftkæling
Minibar
Öryggishólf
Veitingastaður
Bar
Sundlaug
Sundlaugarbar (á sumrin)
Sólbekkir
Bílastæði
Móttaka / concierge þjónusta
Verona
Beint flug til Verona hefst 13. júní. 2026. Flogið er vikulega á laugardögum.

Hvað er að sjá?
Verona státar af fjölda skemmtilegra og áhugaverðra staða. Listinn gæti litið svona út:
Versur romae, vae romae

Fyrst skal nefna rómverska leikhúsið sem haldið sér vel í fleiri aldir. Stór jarðskjálfti á 12. öld hreyfði vart við húsinu enda er hluti þess byggður úr fyrsta flokks bleiklituðum marmara. Hér er pláss fyrir um 30.000 áhorfendur og hér eru haldnir tónleikar árið um kring.
Giardino giusti
Handan Adige-fljótsins er gullfallegur garður sem talinn er einn af gimsteinum endurreisnarinnar. Garðurinn er nefndur í höfuðið á aðalsættinni sem annast hefur reitinn frá stofnun hans árið 1591. Þótt garðurinn sé blómlegri yfir sumarmánuðina svífur þar magnaður andi yfir vetrartíma og allan ársins hring er hann athvarf elskenda.

Gamli bærinn
Gamli bærinn er mjög skemmtilegur með þröngum götum og ítalskri matargerð eins og hún gerist best og það er einna líkast að maður hafi dottið inn í ítalska bíómynd. Marmara göngugatan Via Mazzini liggur í gegnum hjarta bæjarins að Piazza Erbe torginu sem er gríðarlega fallegt.
Shakespeare
Borgin varð Shakespeare mikil hvatning og varð Verona leiksvið hans í þremur leikritum; Rómeó og Júlíu, Skassið tamið, og Tveir herramenn frá Verona. Hinar sögufrægu svalir þar sem Júlía stóð og hlustaði á ástarjátningar Rómeós er vinsæll skoðunarstaður.
Museo Di Castelvecchio

Í 28 sýningarrýmum hefur þetta einstaka safn að geyma fjölda muna og minja frá rómverskum tíma, miðöldum og endurreisninni auk nýlegri listmuna. Húsnæðið er sér kapítuli út af fyrir sig en það var reist sem virkisborg um miðja 14. öld ofan á rómverskum rústum og kirkju sem að hluta til má skoða innandyra.
Galleria D’Arte Moderna Achille Forti
Þetta listasafn geymir mörg djásn frá tímabilinu 1840-1940 með áherslu á málverk og höggmyndir.
Torre Deil Lamberti
Torre dei Lamberti er 84 m hár varðturn sem byggður var á löngu tímabili á 13.-15. öld, mest til að hafa fyrirvara á innrásum frá Feneyingum. Frá turninum er frábært útsýni yfir borgina og nágrenni hennar.
Piazza Dei Signiori

Umhverfis þetta aðaltorg Verona eru raðir af tignarlegum gömlum byggingum. Fyrst skal nefna Palazzo degli Scaligeri frá 14. öld. Þar bjó Cangrande I Dekla Scala, sá er reisti virkisborgina sem fyrr en nefnd. Loggia el Consiglio var reist á 16. öld sem eins konar ráðhús borgarinnar og Palazzo della Ragione var upphaflega byggt sem bústaður en hefur gegnt mörgum hlutverkum í gegnum tíðina. Á miðju togirnu er hin fræga stytta af skáldinu Dante sem fékk athvarf í Verona eftir útlegðardóm í Flórens.
Flóamarkaðurinn
Loks skal nefna flóamarkaðinn á Piazza San Zeno sem er opinn flesta sunnudaga árið um kring. Þar er að finna mikið úrval antíkmuna, allskyns apparöt og flíkur.
Verona er alltaf vinaleg heim að sækja og enginn ætti að snúa svikinn heim.

Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 70.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
Úrval Útsýn notar vafrakökur til að greina umferðina á vefnum, bæta þjónustuna og upplifun viðskiptavina. Nánar hér.