Madonna di Campiglio er vinsæl útivistarstaður í Dolomítunum á Ítalíu, þekkt fyrir fallegar og fjölbreytt fjallagöngu- og skíðasvæði. Bærinn er einnig þekktur fyrir glæsilegar verslanir, veitingastaði og ríkt menningarlíf. Madonna di Campiglio er tilvalin fyrir mismunandi utandyra starfsemi, svo sem göngu- skiða og fjallagönguferðir.
Dolomiti fjallgarðurinn, sem er hluti af Ölpunum, er þekktur fyrir sína sérstæðu liti og ljóst klettaform. Þetta svæði er á UNESCO heimsminjaskrá fyrir náttúrulega fegurð sína. Dolomiti fjallgarðurinn er vinsæll meðal fjallgöngufólks, skíðafólks og útivistarfólks þar sem hann býður upp á fjölbreyttar leiðir og heillandi landslag.
Verð og dagsetningar
Sæki verð...
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 9 nætur á 4 stjörnu gistingu með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, enskumælandi gönguleiðsögn í öllum dagsferðum samkvæmt ferðalýsingunni, og Dolomeet kort.
Ekki innifalið í verði:
Matur annar en morgunverður og kvöldmatur, city tax (greiðist á staðnum), aðrar skoðunarferðir (valkvæðar), eða þjórfé.
Dagskrá
Gistingar í boði
Athugið
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
- Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
- Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.