Gréta S. Guðjónsdóttir
fararstjóri
    Með Grétu Guðjóns Kalabría er fræg fyrir kristaltæran sjó og forna kastala og fornminjar. Kalabría er á tánni á Ítalíu næst Sikiley og liggur við Jóna og Týreníuhaf. markast af Týraníuhafi í vestri, Jónahafi í austri og Messínasundi í suðvestri. Höfuðstaðurinn er Catanzaro, en svæðið er þekkt fyrir fallegar strendur, hrikalegt landslag, fornar grískar minjar … Continue reading “Gönguferð um Calabria”

    Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.

    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    Skoða öll verð og bóka
    Dagsetningar
    • 21. – 29. sept.

    Verð og dagsetningar

    21. – 29. sept.  9 dagar
    Ferð fyrir 2 fullorðna Heildarverð frá
    799.800 kr.
    Verð frá 399.900 kr.
    per farþega
    21. – 29. sept.  9 dagar
    Ferð fyrir 1 fullorðinn Heildarverð frá
    419.900 kr.
    Verð frá 419.900 kr.
    per farþega
    Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 8 nætur á 4 stjörnu gistingu, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, beint flug fram og til baka, ferðataska og handfarangur, íslensk fararstjórn, Innlendir leiðsögumenn, 8 x 3 rétta kvöldverðir, og Vínsmökkun og snarl.

    Ferðalýsing

    Með Grétu Guðjóns

    Kalabría er fræg fyrir kristaltæran sjó og forna kastala og fornminjar. Kalabría er á tánni á Ítalíu næst Sikiley og liggur við Jóna og Týreníuhaf. markast af Týraníuhafi í vestri, Jónahafi í austri og Messínasundi í suðvestri. Höfuðstaðurinn er Catanzaro, en svæðið er þekkt fyrir fallegar strendur, hrikalegt landslag, fornar grískar minjar og söguleg Hallaþorp. Kalabría var áður hluQ af „Stór Grikklandi“ (Magna Graecia) og geymir mikla sögu.Héraðið er þekkt fyrir ólífurækt, víngerð og bragðmikla matargerð og og kallað Karíbahaf Evrópu vegna tærs vatns og stranda. Virkilega skemmtileg gönguferð sem er fyrir alla. Erfliðleikastig auðvelt til miðlungs.

    Dagskrá

    Dagur 1, mánudagur, 21. september 2026 — Ferðadagur

    Beint flug frá Keflavík til Kalabríu. Við komu er hópurinn keyrður á 4 stjörnu hótel.

        Dagur 2, þriðjudagur, 22. september 2026 — Gönguferð um Tropea og nágrenni

        Fyrsta ganga ferðarinnar er um bæinn Tropea og nágrenni. Ekið er með rútu á upphafsstað göngunnar.

        Á göngunni njótum við fegurðar Týreníuhafsins, sjáum fornar rústir og steingervinga ásamt fjölbreyttum gróðri og villtum blómum. Eftir hádegishlé höldum við inn í Tropea og göngum um gamla bæinn sem er einn sá fallegasti í Kalabríu.

        Göngutími: 4 klst.

        Vegalengd: 10 km

        Hækkun: 250 m

        Erfiðleikastig: Létt til miðlungs

            Dagur 3, miðvikudagur, 23. september 2026 — Aspromonte þjóðgarðurinn

            Við göngum í gegnum appelsínu- og ólívuakra á leið til Cinquefrondi, inngangsins að Aspromonte þjóðgarðinum.

            Í þjóðgarðinum njótum við útsýnis til fjalla og sjávar ásamt ósnortinni náttúru. Svæðið er einnig þekkt fyrir handverksbúðir og lakkrísgerð. Í hádeginu setjumst við niður á ítalskan veitingastað og smökkum vinsæla rétti frá Kalabríu.

            Göngutími: 4 klst.

            Vegalengd: 11 km

            Hækkun: 400 m

            Erfiðleikastig: Miðlungs

                Dagur 4, fimmtudagur, 24. september 2026

                Frjáls dagur.

                Dagur 5, föstudagur, 25. september 2026 — Strandganga

                Falleg og víðáttumikil ganga meðfram klettum Týreníuhafs. Við sjáum yfir til Sikileyjar og Aeolian-eyja og einnig strandbæina Scilla og Bagnara.

                Gangan endar í þorpinu Scilla þar sem Týreníuhaf og Jónahaf mætast. Þorpið er frægt fyrir sverðfisksveiðar.

                Göngutími: 4 klst.

                Vegalengd: 11 km

                Hækkun: 350 m

                Erfiðleikastig: Miðlungs

                    Dagur 6, laugardagur, 26. september 2026

                    Frjáls dagur.

                    Dagur 7, sunnudagur, 27. september 2026 — Pizzo

                    Við heimsækjum heillandi bæinn Pizzo sem stendur á kletti með útsýni yfir flóa.

                    Gengið er um gamla bæinn, í gegnum eikarskóg til Maierato og áfram að Angitola-vatni þar sem blasir við stórbrotið útsýni yfir Týreníuhaf og Stromboli-eldfjallið.

                    Við snúum aftur til Pizzo þar sem við smökkum hinn fræga Tartufo-ís og heimsækjum kirkju sem byggð er inn í helli.

                    Göngutími: 3 klst.

                    Vegalengd: 9 km

                    Hækkun: 250 m

                    Erfiðleikastig: Auðvelt

                        Dagur 8, mánudagur, 28. september 2026 — Heimferð

                        Hópurinn er sóttur á hótelið og keyrður á flugvöll. Beint flug til Keflavíkur.

                            Gistingar í boði

                            Athugið

                            • Staðfestingargjald er 9.997 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
                            • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
                            • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
                            • Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
                            • Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
                            • Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.