Dásamleg tíu daga ferð til Amalfi og Sorrento bíður þín.
Ferðin leiðir þig inn í hjarta suður-Ítalíu þar sem stórbrotin náttúra, menning og bragðheimar renna saman í eina heild. Við heimsækjum litríku eyjuna Capri, göngum hina stórkostlegu Guðanna slóð og klífum hinar sögufrægu hlíðar Vesúvíusar. Í náttúrufriðlandinu Punta Campanella njótum við kyrrðar og sjávarútsýnis og í Napólí kynnumst við menningu og matargerð borgarinnar – þar á meðal lifandi pizzugerðarnámskeiðs. Á milli dagsferða gefst líka tími til að slaka, kanna líflegar götur Sorrento eða einfaldlega njóta sólarinnar við Miðjarðarhafið. Þetta er ferð sem sameinar hreyfingu, náttúru, mat og menningu í ógleymanlegu vorævintýri á Ítalíu.
Halla Hrund Arnardóttir er hjúkrunarfræðingur og vinnur á heilsugæslu. Hún stundar útivist og þá sérstaklega fjallgöngur, henni finnst fátt betra en að njóta náttúrunnar í gönguferðum. Hún hefur gengið um þetta svæði og hlakkar mikið til að leiða hópinn og upplifa þetta dásamlega ævintýri með ykkur.
Verð og dagsetningar
20. – 28. júní
9 dagar
| Ferð fyrir 2 fullorðna |
Heildarverð frá
819.800 kr. |
Verð frá
409.900 kr.
per farþega | |
20. – 28. júní
9 dagar
| Ferð fyrir 1 fullorðinn |
Heildarverð frá
459.900 kr. |
Verð frá
459.900 kr.
per farþega |
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Sorrento 4★ með hálfu fæði, 2 nætur á Napólí 4★ með hálfu fæði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, vínsmökkun, nestispakki, staðarleiðsögn með innlendum leiðsögumanni skv. ferðalýsingu, pizzugerðarnámskeið, og skoðunarferð til Capri.
Ekki innifalið í verði:
Borgarskattur, þjórfé, eða annað sem ekki er tilgreint í lýsingu.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
- Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
- Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
- Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
- Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
- Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
- Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.





